Fréttablaðið - 19.02.2005, Síða 38
Sjónvarpsþættirnir um
Latabæ, eftir Magnús
Scheving, virðast vera
að slá í gegn út um all-
an heim.
Þættirnir voru frumsýndir í
Kanada fyrir skömmu og brátt
líður að því að þeir verði sýndir í
löndum Suður-Ameríku. Þá hafa
portúgalskar og spænskar sjón-
varpsstöðvar keypt sýningarrétt-
inn á þáttunum og sömu sögu eru
að segja af þýsku sjónvarpsstöð-
inni RTL Super.
Latabæjarþættirnir verða lík-
lega teknir til sýningar í Þýska-
landi nú í haust en stöðin sýnir
barnaefni fjórtán tíma á dag.
Stöðin mun einnig koma að sölu
og þróun á vörum tengdum Lata-
bæ.
Fréttablaðið hefur velt þessu
máli fyrir sér og setur hér fram
hugmyndir um leikara og nöfn
sem mætti notast við þegar þátt-
unum verður snarað yfir á þýsku.
Því er ekki úr vegi að byrja á
byrjuninni, það er þáttanafninu
sjálfu, sem í stað hins enska heits
Lazytown fær nafnið Faulstadt.
Í Faulstadt búa að sjálfsögðu
sömu persónur og voru í upphaf-
lega leikritinu eftir Magnús:
Nenni níski, Solla stirða, Halla
hrekkjusvín, Maggi mjói, Bæjar-
stjórinn, Stína símalína, Lolli
lögga, Glanni glæpur og Siggi
sæti að Íþróttaálfinum ógleymd-
um.
Fáir eru betur til þess fallnir að
túlka íþróttaálfinn en austurríski
ríkisstjórinn Arnold Schwarze-
negger sem hefur margoft unnið
titilinn Herra alheimur. Arnold er
álíka vel vaxinn og Íþróttaálfur-
inn og þarf í raun bara að setja
upp húfuna og safna örmjóu yfir-
varaskeggi til að líkjast hinum
upprunalega íþróttaálfi.
Hinn heimfrægi leikari Otto
Waalkes, sem túlkaði sjálfan Otto
í samnefndum myndum, færi
með hlutverk Nenna níska enda
keimlíkar persónur sem hoppa
um í sakleysi sínu teljandi mörk
og peninga.
Sjálfur David Hasselhoff fær
að leika Sigga sæta sem er al-
mennt veikari fyrir sælgæti en
gengur og gerist hjá venjulegu
fólki. Hasselhoff sló í gegn í þátt-
unum um Strandverði en færri
vita að hann þykir einnig liðtæk-
ur söngvari. Stærsti aðdáenda-
hópur hans þegar tónlistin er ann-
arsvegar er einmitt í Þýskalandi.
Hinn fallega Solla stirða, sem
Selma Björnsdóttir og Linda Ás-
geirsdóttir hafa meðal annars
leikið, verður talsett af ofurfyrir-
sætunni Claudiu Schiffer. Hið
bleika hár fer Claudiu afar vel og
ljóst er að hún mun einnig bera
bleika búninginn vel.
Túlkun bæjarstjórans yrði í
höndum Helmuts Kohl, fyrrver-
andi kanslara, en þeir eiga meira
en vaxtarlagið sameiginlegt.
Pönkdrottningin Nina Hagen færi
með hlutverk Höllu hrekkjusvíns
og lögreglustjórann myndi sjálf-
ur Horst Tappert túlka af sinni al-
kunnu snilld enda fáir lögreglu-
þjónar sem hafa notið jafn mikilla
vinsælda hér á landi og Derrick.
Þá yrði Fritz Wepper, sem lék
Harry Klein samstarfsmann
Derricks, í hlutverki Glanna
glæps en það má segja að hann
sigli undir fölsku flaggi, rétt eins
og Glanni glæpur, en hann var
handtekinn með eiturlyf í fórum
sínum þegar hann var á hátindi
sjónvarpsfrægðar sinnar. Það var
auðvitað mikið áfall þegar þessi
kynþokkafulli, lágvaxni maður
sem heimsbyggðin þekkti sem
samviskusama lögreglu reyndist
vera eiturlyfjafíkill. Áfallið hefur
vart verið minna en þegar Glanni
glæpur felldi grímuna. ■
19. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Aldrei fleiri
áfangastaðir!
Netverðdæmi
Verð frá 47.066 kr.*
Costa del Sol
57.438 kr. ef 2 ferðast saman.
á Santa Clara í 7 nætur.
*á mann m.v. að 2 fullorðnir
og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting, 10.000 kr.
bókunarafsláttur og flugvallarskattar.
á Skala í 7 nætur.
á Elimar í 7 nætur.
á Halley í 7 nætur.
Verð frá 49.400 kr.*
Krít
60.100 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 39.500 kr.*
Portúgal
54.200 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 38.730 kr.*
Mallorca
47.730 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 34.230 kr.*
Benidorm
46.300 kr. ef 2 ferðast saman.
Sumar
Plús 2005
Áfram
Faulstadt!
Íbúar Latabæjar á íslensku og
tillögur að þýskum nöfnum:
Solla stirða – Silke Stocksteif
Glanni glæpur – Kornelius Kriminal
Siggi sæti – Siegfried Zuckerbrot
Nenni níski – Gustav Geizig
Halla hrekkjusvín – Steffi Störenfried
Stína símalína – Tanja Telefon
Íþróttaálfurinn – Sportacus
Maggi mjói – Moritz Mager
Lolli lögga – Peter Polizei
Bæjarstjórinn – Der Bürgermeister
SPORTACUS Arnold Scwharzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, gæti hæglega leiklesið Íþrótta-
álfinn. Þetta austurríska vöðvatröll var brautryðjandi í vaxtarrækt á sínum tíma og gæti
með vörpulegu atgervi sínu hafa blásið ungum Magnúsi Scheving líkamsræktaranda í
brjóst. Arnold komst á árum áður í Heimsmetabók Guinness fyrir fullkomna líkamsbygg-
ingu og er því heppileg fyrirmynd þýskra barna sem vilja hrista af sér setuspikið sem safn-
ast á þá sem sitja tímunum saman yfir tölvum og sjónvarpi. Þá var Arnold einu sinni
heilsufars- og leikfimiráðgjafi ríkisstjórnar Bush eldri í Bandaríkjunum og gegndi því svip-
uðu hlutverki og Íþróttaálfurinn hefur gert hér á landi með því að skóla íslenskan æskulýð
til í hreyfingu og mataræði.
Siegfried Zuckerbrot Sigga sæta leikur hinn bandaríski David Hasselhoff en hann hefur
slegið hressilega í gegn í Þýskalandi með tónlist sinni sem hann hefur unnið með þýsk-
um lagahöfundi. Hasselhof er elskaður og dáður í Þýskalandi og því kjörinn í hlutverk
Sigga sæta sem er veikur fyrir og berst við sykurfíkn sína á hverjum degi. Hasselhof hefur
sjálfur þurft að berjast fyrir því að halda línunum í lagi frá því að hann hætti að skokka
um sólarstrendur á eftir Pamelu Anderson í Baywatch og hefur þar fyrir utan farið halloka
í glímu sinni við brennivínsfíkn sína þannig að hann getur ekki orðið annað en sannfær-
andi þegar hann grætur undan átlöngun sinni, Siegfrieds Zuckerbrot, í Súpermann-bún-
ingi með bumbuna út í loftið.
DER BÜRGERMEISTER Bæjarstjórann leikur enginn annar en Helmut Kohl. Kohl hefur
allt sem þarf til að prýða Bæjarstjóra Latabæjar. Báðir eru þéttir á velli og geta verið fastir
fyrir ef svo ber undir en báðir eru einnig breyskir og þeim er hætt við að falla í freistni.
Þeir eru þó báðir bestu skinn og geta með góðri hjálp haldið illfyglum á borð við Glanna
glæp og Kornelius Kriminal í skefjum.
SILKE STOCKSTEIF Hin gullfallega
Claudia Schiffer ljáir Sollu stirðu rödd sína.
Solla stirða sprangaði um leiksvið Lata-
bæjar í Loftkastalanum í aðskornum bleik-
um nærbuxum og teygði sig á alla kanta.
Illar tungur héldu því fram að hlutverk
hennar væri því fyrst og fremst að laða
fjölskyldufeður í leikhúsið en hvað sem
öllum slíkum vangaveltum líður er engum
blöðum um það að fletta að Claudia er
rétta konan í hlutverkið á þýsku. Hún er
vissulega góð í leikfimi og vön sviðsljósinu
auk þess sem hún hefur með hegðun
sinni og framkomu á almannafæri þótt
góð fyrirmynd. rétt eins og Solla stirða.
40-41 (28-29)Helgarefni 18.2.2005 19:13 Page 2