Fréttablaðið - 19.02.2005, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 19. febrúar 2005
fyrir hana
Rómantískar gamanmyndir
Win a date with Ted
Hamilton
Anything else
Heart burn
Breakfast at Tiffany´s
You´ve got mail
Addicted to love
Three to tango
Along came Polly
Sweet home Alabama
Pretty woman
Pretty woman
Love actually
1.999kr/pk
2 sam
an í pa
kka
Langur og litríkur Bruckner
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands sl. fimmtudagskvöld var á efniss-
kránni eitt verk; Sinfónía nr. 8 eftir
Anton Bruckner. Stjórnandi var Petri
Sakari. Þetta var í fyrsta sinn sem verk-
ið er flutt hér á landi.
Stundum er sagt að nútímamenn
geti ekki einbeitt sér eins lengi og fyrri
tíma menn. Ef lengd tónverka er höfð
sem mælikvarði kann það að virðast
rétt. Nútímatónverk sem stendur í
hálfa klukkustund telst langt verk. Fyrir
einni öld þótti hálf klukkustund ekki
óhæfileg lengd á einum kafla af þrem-
ur eða fjórum í verki. Menn virðast
hafa haft góðan tíma þá og ró í sálinni.
Áttunda sinfónía Bruckners tekur u.þ.b.
eina klukkustund og tuttugu mínútur í
flutningi. Slík lengd gerir sérstakar kröf-
ur til flytjenda, hlustenda og verksins
sjálfs því ætlast verður til þess að sam-
hengi haldist allan tímann.
Áttunda sinfónían er í fjórum köflum
í samræmi við klassíska hefð. Form
einstakra kafla virðist líka vera í hefð-
bundnum stíl þótt það sé teygt og tog-
að með ýmsum hætti og röð kaflanna
breytt að nokkru. Hinn rómantíski andi
lagði meira upp úr öflugu flæði tilfinn-
inganna en skýrleika skilningsins.
Formið mátti ekki verða of fyrirsjáan-
legt. Það gengur hins vegar á skjön við
aðrar þarfir listarinnar. Því lengra sem
verkið er, því meiri þörf er á skýrleika í
framsetningu ef samhengi á ekki að
týnast. Ef áttundu sinfóníunni er líkt við
fljót borgar sig ekki að hlusta eftir ná-
kvæmri mynd af grjótinu á botninum.
Betra er að láta berast með flaumnum
og grípa það sem upp úr stendur. Þar
með kann að fara framhjá hlustandan-
um eitthvað af því sem nauðsynlegt er
til að halda verkinu saman.
Ef eitthvað er hægt að finna að
þessu mikla verki er það þetta. Hinn
frægi þráður Leopolds er þunnur á
köflum og stundum við það að slitna.
Skertsóið ásamt tríóinu er þó undan-
tekning að þessu leyti. Stefjaefnið er
grípandi og andstæðan við tríóið skýr
og allt þetta heldur hlustandanum frá
upphafi til enda. Mikið er af vel skrif-
aðri og fallegri tónlist í hinum köflun-
um einkum hæga kafla og lokakafla.
Hljómsveitarútsetningin er afrek út af
fyrir sig. Hljómsveitin er stór; þrefalt
brass og þrefalt tré ásamt með átta
hornum að meðtalinni Wagner-túbu
og annað í samræmi við þetta. Áber-
andi er hve hljómar eru víða vel út-
færðir og hljómur hljóðfærahópanna
safaríkur og öflugur. Einnig er greini-
legt að verkið hefur orðið síðari tíma
mönnum að fyrirmynd. Má þar nefna
t.d. Mahler og Sibelius.
Það er töluverð raun fyrir hljómsveit
og hljómsveitarstjóra að flytja þetta
verk. Hljómsveitarstjórinn Petri Sakari
var greinilega vel undirbúinn og stjórn-
aði af öryggi og skörungsskap. Margt
var sérlega vel spilað. Má t.d. nefna
strengjastaði í hæga kafla og málm-
blásara í lokakafla. Menn leiksins voru
liðsmenn hins fríða hornaflokks, sem
léku stórt hlutverk og blésu af hjartans
list. Hvergi varð þess vart að örendið
þryti og virðist hljómsveitin í fínu formi.
Þessir tónleikar voru óvenjulegir að því
leyti að leikið var án hlés. Misstu tón-
leikargestir þar með af því að hitta
kunningjana í hléinu, en að öðru leyti
var það mjög við hæfi. ■
TÓNLIST
FINNUR TORFI STEFÁNSSON
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í Háskólabíói
Sinfónía nr. 8 eftir Anton Bruckner
Stjórnandi: Petri Sakari
Niðurstaða: Hljómsveitarstjórinn Petri Sakari
stjórnaði af öryggi og skörungsskap. Margt
var sérlega vel spilað og virðist hljómsveitin í
fínu formi.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Flutti áttundu sinfóníu Antons Bruckner á
tónleikum sínum á fimmtudagskvöldið.
44-45 (32-33) Skrípó 18.2.2005 19:10 Page 3