Fréttablaðið - 19.02.2005, Qupperneq 46
„Þetta leikrit er um mjög skarpar
andstæður þar sem þemað er ástin,“
segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,
höfundur leikritsins Brotið sem
frumsýnt verður í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu í kvöld.
„Ástin getur bæði límt fólk sam-
an og líka verið tortímandi afl sem
slítur fólk í sundur. Þetta fjallar um
ungt par sem hittist og verður
svona gríðarlega ástfangið, en síðan
verða aðstæður til þess að allt snýst
gegn þeim. Og þá fer ástin í vörn og
snýst upp í andstæðu sína.“
Velt er upp spurningum um
hvort ástin eigi sér takmörk, hvað
eigi að ganga langt fyrir þá sem
maður elskar, og hvenær ástin dug-
ar hreinlega ekki til lengur.
Leikendur í verkinu eru Þrúður
Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Ingi
Þorvaldsson, Friðrik Friðriksson og
Elma Lísa Gunnarsdóttir.
Brotið er fyrsta leikrit Þórdísar í
fullri lengd sem frumsýnt er í at-
vinnuleikhúsi, en síðastliðið sumar
var sýnt eftir hana örleikritið Áttu
smit. Hún þýddi einnig hið um-
deilda verk „Ég er ekki hommi“
sem hefur verið sýnt í Loftkastalan-
um undanfarið.
Hún segir Brotið vissulega vera
óvægið verk, en þó sé allur subbu-
skapur víðs fjarri.
„Þetta er tiltölulega klassískt
þema um ástina og hvað það er sem
laðar fólk hvert að öðru og hvað
rekur það í sundur. En vissulega er
það samt brútal á köflum.“
Hollenski myndlistarmaðurinn
Gideon Gabriel Kiers setur sterkan
svip á þessa sýningu með vídeó-
myndum sem hann varpar á sviðið.
„Hann notar þarna byltingar-
kennda tækni til að lýsa upp sviðið
með myndvarpa sem stundum kem-
ur alveg í staðinn fyrir þessi hefð-
bundnu sviðsljós.“
Margrét Örnólfsdóttir sér um
tónlistina í sýningunni en leikstjóri
er Erling Jóhannesson. ■
36 19. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Kl. 14.00
Tilfinningatorgið verður haldið á Hressó
í dag á milli klukkan 14 og 18. Þar gefst
fólki kostur á að bera tilfinningar sínar
á torg, stórar og smáar, í gríni og alvöru.
Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur tekur
á móti gestum, bæði þeim sem vilja tjá
sig og hinum sem vilja hlusta.
menning@frettabladid.is
!
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT Fö 25/2 kl 20,
Lau 26/2 kl 20 - UPPSELT Fö 4/3 kl 20 -
UPPSELT Lau 5/3 kl 20, Su 13/3 kl 20 Fi
17/3 kl 20, Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Sýningar halda áfram eftir páska.
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 20/2 kl 14
Su 27/2 kl 14
Su 6/3 kl 14 - Aukasýning Síðustu sýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana.
Forsala aðgöngumiða hafin.
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
Su 6/3 kl 20, Su 13/3 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Su 20/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson, Gríman fyrir besta leik í
aðalhlutverki
Su 20/2 kl 20 - UPPSELT,
Fi 24/2 kl 20, Fö 25/2 kl 20 - UPPSELT,
Fi 3/3 kl 20, Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20,
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Allra, allra síðustu sýningar
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA.
Í kvöld kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 6/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson. Í samstarfi við
Hið lifandi leikhús.
Forsýning Má 21/2 kl 20 - kr. 1.000
Forsýning Þri 22/2 kl 20 - kr. 1.000
Aðalæfing Mi 23/2 kl 20 - kr. 1.000
Frumsýning Fi 24/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson. Í samstarfi við TÓBÍAS.
Fö 25/2 kl 20, Mi 2/3 kl 20
VESTURFARARNIR - NÁMSKEIÐ
Í samstarfi við Mími - símenntun
Mi 23/2 - Böðvar Guðmundsson
Innifalið: Boð á Híbýli vindanna
15:15 TÓNLEIKAR
HILDIGUNNUR HALLDÓRSDÓTTIR
SÓLÓ - KYNSLÓÐABIL FIÐLUNNAR
Í dag kl 15:15
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Frumsýning Fö 4/3 kl 20,
Su 6/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Su 12/3 kl 20,
Fö 18/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í
fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Sögur kvenna frá hernámsárunum
Sunnudagur 20/2 kl.14.00
Miðvikudagur 23/2 kl.14.00
Sunnudagur 27/2 kl. 14.00
ÁstandiðTenórinn
Sýningum fer fækkandi
Vetrarhátíð - Grímuball
Bardukha og Andrea Jónsdóttir
laugardaginn 19. febrúar.
Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir:
Sun. 20. feb. kl. uppselt
Sun. 27. feb. kl. örfá sæti
Sun. 6. mars kl. 20
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
5. sýn. 25. feb. kl. 20 – Uppselt - 6. sýn. 27. febrúar kl. 19 – Uppselt
7. sýn. 4. mars kl. 20 – Örfá sæti laus - 8. sýn. 6. mars kl. 19 – Örfá sæti
9. sýn.12. mars kl. 19 - Uppselt. – Síðasta sýning
AUKASÝNING: Mið. 2. mars kl. 20
AUKASÝNING: Fim. 10. mars kl. 20 í boði Vinafélags Íslensku óperunnar
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst
Tosca – Vetrarkvöld með Puccini og Verdi, í Laugarborg mið. 23. feb. kl. 20.30
Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór og Kurt Kopecky,
píanó flytja aríur og dúetta úr Toscu og öðrum óperum eftir Puccini og Verdi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
■ ■ KVIKMYNDIR
14.00 Heimildamyndavika Gagn-
auga hefst í dag í Snarrót við Garðar-
stræti. Sýndar verða um 50 heimild-
armyndir þar sem fram koma sjónar-
mið sem stangast á við ríkjandi
heimsmynd og söguskoðun.
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn-
ir sænsku myndina Herr Arnes
Pengar í Bæjarbíói, Strandgötu 6,
Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLEIKAR
15.15 Hildigunnur Halldórsdóttir
leikur á fiðlu verk eftir Telemann,
Bach, Hafliða Hallgrímsson og
Hildigunni Rúnarsdóttur. Tónleikarnir
verða í Borgarleikhúsinu.
20.00 Karlakórinn Heimir, Álfta-
gerðisbræður, Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir, Anna Sigríður Helgadóttir og
vestur-íslenski tenórinn Peter John
Buchan koma fram á skemmtikvöldi
Vesturfarasetursins í Salnum í Kópa-
vogi. Söngur, frásagnir, grín og glens.
21.00 Hljómsveitin Choral spilar
órafmagnað á Kaffi Hljómalind.
22.00 Hvanndalsbræður, Helgi og
hljóðfæraleikararnir, Douglas Wil-
son, Norðanpiltar, Kristján Pétur
og Populus Musika á Grand Rokk.
22.00 Reggí-hljómsveitin Hjálmar
heldur tónleika í Stúdentakjallaranum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
16 17 18 19 20 21 22
Laugardagur
FEBRÚAR
EKKI MISSA AF…
... Böðvari Guðmundssyni
sem ætlar að segja frá Vesturfara-
sögum sínum í Ráðhúsi Reykja-
víkur klukkan 15.30. Leikarar frá
Leikfélagi Reykjavíkur flytja einnig
brot úr Híbýli vindanna og lesa
úr bréfum vesturfara.
... sænsku
kvikmyndinni
Herr Arnes
Pengar sem
Kvikmynda-
safn Íslands
sýnir í Bæjar-
bíói í Hafnarfirði klukkan 16.
Myndina gerði Mauritz Stiller
árið 1919.
... hinu árlega Spaðaballi sem
haldið verður á Nasa í kvöld og
hefst klukkan 22.
Fjölskrúðugt mannlíf og alls konar menning
verður kraumandi á Þjóðahátíð Alþjóðahúss-
ins sem haldin verður í Perlunni í dag.
Markmið Þjóðahátíðar er að kynna það fjöl-
menningarlega samfélag sem Íslandi er í
dag og hvaða áhrif fólk af erlendum upp-
runa hefur á samfélagið; hvernig það auðgar
menningu okkar og stuðlar að fjölbreyttara
mannlífi. Með þessu er jafnframt verið að
auka skilning milli fólks af ólíkum uppruna
og leggja því starfi lið sem miðar að frið-
samlegu fjölmenningarlegu samfélagi á Ís-
landi.
Hátíðin hefst á hádegi og stendur til klukkan
18. Þátttakendur í henni eru fulltrúar frá 20
þjóðlöndum auk ýmissa sem starfa að mál-
efnum innflytjenda hér á landi.
Þjóðahátíð er þannig kjörið tækifæri fyrir
innfædda Íslendinga til að kynna sér fjöl-
breytta menningu og uppruna þess erlenda
fólks sem kosið hefur að setjast að hérlend-
is. Sérstaklega vinsælt hefur verið meðal
gesta Þjóðahátíða að fá að bragða á fram-
andi réttum.
Litríkt og lifandi
ÁSTIN DUGAR EKKI TIL Nýtt leikrit eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur verður frumsýnt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Ástin snýst gegn sjálfri sér
48-49 (36-37) Slanga/Menning 18.2.2005 20:15 Page 2