Tíminn - 29.06.1975, Síða 1

Tíminn - 29.06.1975, Síða 1
Vefjabreyt- ingar í slímhúð algengar hér SJ-ReykjavIk Danskir og islenzk- ir læknar hafa haft samvinnu um samanburðarrannsóknir á bólg- um i slimhúð i maga. Hvatinn að þessum rannsóknum var sú stað- reynd að tiðni magakrabba hér á landi hefur verið með þvi hæsta sem gerist, en i Danmörku hins vegar með þvi lægsta. Ætlunin er að rannsaka hugsanlegt samband á milli breytinga á slimhúð og magakrabba. Rannsókn þessari er ekki nærri lokið, en á ráðstefnu norrænna meltingarfræðinga að Hótel Esju fyrir helgina var skýrt frá þvi m.a. að töluverðar vefja- breytingar i slimhúð væru al- gengari hér á landi en i Dan- mörku. Rannsóknin náði til 96 Islenzkra sjúklinga með magasár eða ó- þægindi i maga og 93 danskra. Borin voru saman ýmis atriði, t.d. neyzla sjúklinganna á lyfjum, tóbaki, áfengi og kaffi, en þau virtust ekki gefa skýringu á þess- um mun á dönsku og islenzku sjúklingunum. BH-Reykjavik. — Talningu at- kvæða f allsherjaratkvæða- greiðslu sjómannafélaganna var ekki lokið, þegar blaðið' fór i prentun upp úr hádeginu i gær. Timinn ræddi við Jón Sigurðs- son, forseta Sjómannasam- ■ bandsins, og kvað hann at- kvæðin vera komin frá sjómannafélögunum, en fundur hjá matsveinum var ekki haldinn fyrr en siðdegis i gær, svo að biða varð eftir þeimmeð talningu atkvæðanna. Yfirmenn samþykktu samningana á fundi i fyrradag, ogféllu atkvæði þannig, 82 voru þeim fylgjandi, en 15 voru and- vigir þeim. SAS tekur upp íslands- flug NOKKUR undanfarin ár hafa Flugfélag lslands og SAS haft samvinnu um flug milli Skandi- naviu. tslands og Grænlands. SAS hefurleigt þotur Flugfélagsins til tveggja ferða i viku frá Kaup- mannahöfn til Keflavikur og það- an til Narssarssuaq. Að auki hefur Flugfélagið flogið tvær til þrjár ferðir i viku milli Keflavik- ur og Narssarssuaq. Á fundi fulltrúa félaganna, sem nýlega var haldinn i Stokkhólmi, tilkynnti SAS, að flugfélagið mundi frá og með 1976 sjálft ann- ast framangreint flug með eigin þotum. Næsta sumar eru ráð- gerðar fjórar SAS flugferðir milli Norðurlanda og Islands. Tvær ferðir verða flognar milli Kaup- mannahafnar, Keflavikur og Narssarssuaq fram og aftur og aðrar tvær milli Kaupmanna- hafnar, ósló og Keflavikur fram og aftur. SAS hóf flug til Islands árið 1968 með DC-8 þotum. Félagið hætti svo flugi haustið 1970 með eigin þotum, en leigði næsta sumar Boeing-727 þotur Flugfélags Is- lands til þessara flugferða. Nú hefur SAS hins vegar tekið i notk- un Boeing-727 þotur, sem félagið keypti af Transair i Sviþjóð ný- lega, og hyggst nota þær til ts- lands- og Grænlandsferðanna. Viðhorf fólks til bank- anna jókvæðari en banka menn sjólfir bjuggust við Síldveiðar í haust: REKNETAVEIÐAR VERÐI FRJÁLSAR — 7.500 tonn mó ve HJ—Reykjavik. — Allir nema einn nefndarmanna mæitu með þvi, að siidin yrði söltuð um borð i skipunum sjálfum undir eftirliti Sildarútvegsnefndar. Einnig var lagt til, að farið yrði eftir ákveðn- um rcglum um söltun sildarinnar um borð, t.a.m. yrði einn maður vanur slldarsöltun um borð i hverju skipi, svo og beykir til að loka tunnunum. Svo hljóðaði svar Matthiasar Bjamasonar sjávarútvegsráð- herra við þvi, hverjar tillögur nefnd, er skipuð var til að gera iða í herpinót ályktanir um hentugasta fyrir- komulag sildveiða við Island i haust, hefði haft fram að færa. Sjávarútvegsráðherra skipaði fyrir skömmu sex manna nefnd, sem hafði þetta hlutverk með höndum og skilaði nefndin tillög- um sinum til ráðuneytisins á föstudaginn. — Ekki er enn fullákveðið, sagði sjvarútvegsráðherra, hvenær veiðarnar munu hefjast, en ákveðið hefur verið að leyfa veiðar á 7.500 tonnum i herpinót, en ætlunin er sú, að reknetaveiðar verði frjálsar. ÞETTA VAR SIÐARI VELIN SEM AIR VIKING KEYPTI HJ-Reykjavik. — Þessi könnun okkar bendir til, að viðhorf fólks til bankanna sé jákvæðara en við bjuggumst nokkru sinni við. Fólk virðist tiltölulega ánægt með þá þjónustu sem bankarnir veita, og vilja minni breytingar en við átt- um von á, sagði Valur Valsson að- stoðarbankastjóri Iðnaðarbank- ans I viðtali við Timann, en fyrir skömmu gekkst Iðnaðarbankinn i samvinnu við auglýsingastofu Gisla B. Björnssonar fyrir könn- un á viðhorfi fólks tii bankanna. — Ég vil taka það skýrt fram, sagöi Valur, að þessi könnun náði yfir of litið úrtak til þess að hægt sé að telja hana hafa almennt gildi. Hér er miklu fremur um aö ræða grófar upplýsingar fyrir okkur, sem við getum stuðzt við, þegar við motum stefnuna i kynningarstarfsemi okkar. — Könnunin var i raun tviþætt, annars vegar sendum við út 250 bréfeftir úrtaki úr simaskrá, og gættum þess aðhafasem jafnast- an fjölda karla og kvenna. Fólkið var beðið að svara nokkrum spurningum viðvikjandi bönkum og bankastarfsemi og það kom okkur á óvart, hversu góð þátt- takan varð, þvi að 110 manns eða 45% sendu inn svör. — Ýmsar spurningar voru lagðar fyrir fólkið m.a., hvort og hvemig það notfærði sér banka- þjónustu. Mjög hátt hlutfall gerði það, margir áttu ávisanareikn- inga og notkun giróþjónustu fer vaxandi. Flest fólk eða 88% virð- ist aöeins eiga viðskipti við 1 til 2 banka og virðist lengi hafa haft viðskipti við sama bankann. 30% þeirra, sem spurðir voru, völdu sér viðskiptabanka með tilliti til þess, að hann var nálægt vinnu- stað, og 25% vegna þess að hann var nálægt heimili viðkomandi. Þá voru einnig nefndar aðrar á- stæður svo sem tengsl bankans við atvinnugrein viðkomandi o.fl. Það sem fólk lagði mesta áherzlu á i þjónustu bankanna var skjót og góð afgreiðsla. — Þá var að þvi spurt, hvernig opnunartimi bankanna hentaði fólki. 84% svöruðu vel, 2% sæmi- lega en 10% illa. 61% þeirra, sem spuröir voru, vildu láta fækka bönkum á Islandi, 31% vildu halda i horfinu, en 8% svöruðu ekki þeirri spurningu. En þgar spurt var hvort fækka ætti af- greiðslum bankanna, kom dálitið annað hljóð i strokkinn, þvi að að- eins 32% voru fylgjandi þvi, 59% á móti, en 9% tóku ekki afstöðu. — Hinn þáttur könnunarinnar, sagði Valur, fór fram meðal við- skiptavina bankans sjálfs og voru þar lagðar fram ýmsar spurning- ar um, hvernig fólki likaði þjón- ustan, hvað mætti betur fara o.s.frv. 1 þessum hluta könnunar- innar tóku einnig þátt 110 manns og munum við styðjast við niður- stöður beggja kannananna, þegar viö mótum framtlðarstefnu okk- ar. AF UNITED FJ—Reykjavik.— Þessi flugvéla- kaup Air Viking, er við skýrum frá I siðasta mai-hefti fóru fram á siðasta ársfjórðungi ársins 1974, sagði Green, framkvæmdastjóri Worldwide Aviation Marketing Service, þegar Timinn spurði hann nánar um upplýsingar þær, úr fréttaritinu „Avmark” sem Timinn hefur vitnað til um við- skipti Air Viking og United Airlin- es. — A okkar skrá hefur Air Vik- ing, Reykjavik, keypt tvær flug- vélar af gerðinni Boeing 720-022, af United Airlines. Og það eru kaupin á siðari vélinni, sem við ti- undum i mái-heftinu. Kaupverðið var 65.000 dollarar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.