Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 31
r^(}t Iffiu V‘: fU'V
Sunnudagur 29. júni 1975.
iai/í \ i/ít
TÍMINN
HLJÓMPLÖTUDÓMAR
NÚ-TÍMANS
★ ★ ★ ★ ★
Þá hefur Roger McGuinn haf-
ið sig til flugs á ný, og nú með
meiri gný og glæsibrag en oft
áður.
Á þessari plötu, sem einfald-
lega heitir „Roger McGuinn
And Band” notasthann ekki við
sessionmenn heldur sina eigin
hijómsveit, sem hann stofnaði
um það leyti, er platan „Peace
On You” kom út. Um þessa nýju
hljómsveit hans er aðeins eitt
hægt að segja: Hún er frábær.
Hún stendur ekki neinum
Byrds-útgáfum að baki, hvað
varðar gæði, en tónlistarlega
séð, eru þeir ekki beint á sömu
linu. Hljómsveitin er skipuð
þeim Steve Love á bassa, Rich-
ard Bowden gitar, Greg Atta-
way trommur, David Lovelace
píanóorgei, og svo auðvitað
Roger McGuinn syngur öll lög
plötunnar og sannar enn einu
sinni, hversu fjölhæfur söngvari
hann er.
Fimm lög plötunnar eru rokk-
arar af þyngri gerðinni, ekki
beint eins og maður á að venjast
frá McGuinn, en hann gerir
þeim öllum það góð skil, að
halda mætti, að hann hefði aldr-
ei spilað neitt annað. Tvö iög af
þyngri gerðinni eru gömul
Byrds lög „Lover Of The
Bayou” og „Born To Rock And
Roll” sem hann glæðir þarna
nýju lifi með kraftmikilli með-
ferð.
A plötunni er einnig að finna
country rokk, gullfalleg, meló-
disk og róleg lög, eitt reggae lag
eftir McGuinn (þar kemur hann
duglega á óvart) og Dylan lagið
„Knocking on Heavens Door”
þar sem McGuinn sannar enn
einu sinni orð Dylans, að enginn
rokkari túlki lögin sin betur en
McGuinn.
Roger McGuinn And Bana er
mjög góð hljómsveit, sem hefur
sent frá sér mjög góða og at-
hyglisverða plötu og er hún með
þvi bezta, sem McGuinn hefur
gert, að Byrds plötunum með-
töldum.
LP-PLATA VIKUNNAR — ROGER McGUINN & BAND
★ ★ ★
B.T.O. er ein af þeim
rokkhljómsveitum, sem skotizt
hafa upp á stjörnuhimininn á
siðustu árum, og eiga þeir
umtalsverðum vinsældum að
fagna i Bandarikjunum um
þessar mundir. A þeim stutta
tima, sem hljómsveitin hefur
starfað, hefur hún veriö iðin viö
að gefa út plötur, og er sú
nýjasta nýkomin á markað.
Platan, sem ber nafnið Four
Wheel Drive, gæti komið til með
að tákna þáttaskil i sögu hljóm-
sveitarinnar, og það þáttaskil til
hins verra, þvi samkvæmt þess-
ari plötu eru þeir félagar al-
gjörlega þurrausnir tónlistar-
menn — þvi að I grófum drátt-
um er þessi plata algjör eftir-
liking á siðustu plötu, ekki að-
eins uppbyggingu og stíl, heldur
hafa þeir gerzt svo ósvifnir að
nota svo að segja sömu lögin
(með smávægilegum breyting-
um að visu) og voru á plötunni
Not Fragile. Mér finnst þetta
gróf móðgun við aðdáendur
hljómsveitarinnar. Samt sem
áöur efast ég ekki um að aðdá-
endur B.T.O.munu kaupa þessa
plötu, þvi aö þó að þetta séu allt
það sama gamla, sem þeir
leika, — er alltaf einhver
„sjarmi” við tónlist þeirra.
Fari þeir ekki að breyta til,
þótt ekki væri nema að semja
nokkrar nýjar melódiur — þá
eru þeir dæmdir til aö detta
uppfyrir, þvi enginn lætur bjóða
sér það að kaupa alltaf sömu
plötuna undir nýju og nýju
nafni. SÞS
★ ★ ★ ★ —
AF ÖLLUM tegundum soultón-
listar hefur ein náð mestum
frama siðustu mánuði, — svo-
nefnt Phillysound, sem áður
hefur verið minnzt á i Nú-tim-
anum. Sú hljómsveit, sem talin
er hafa mótað þennan anga
soultónlistar, er hljómsveitin
MFSB, — og hefur hún nýlega
gefið út LP-plötuna: UNI-
VERSAL LOVE.
MFSB fara að bessu sinni
engar ótroðnar slóðir en þess i
stað má heyra að tónlist þeirra
hefur nú þroskazt meira og
meðlimir hljómsveitarinnar
vita nú betur en áður, hvernig
þeir vilja setja fram tónlist sina.
Tónlist MFSB er „instrument-
al” (bakraddir að visu notaðar I
einstöku lagi), og hljóðfæra-
skipanin er mjög fjölþætt, en
mikið ber á ýmiss konar blást-
urshljóðfærum, svo og strengja-
hljóðfærum. MFSB flytur meló-
diska tónlist á nokkuð þung-
lamalegan hátt, en af stakri ná-
kvæmni og mikilli smekkvisi.
Tónlist þeirra er þvi mjög á-
heyrileg, — enda eru þeir félag-
arnir i MFSB engir aukvisar i
faginu. MFSB er virt og dáð
hijómsveit i Bandarikjunum og
er eitt lag þessarar plötu harla
vinsælt þar I landi: lagið Sexy.
Universal Love er ákjósanleg
plata fyrir alla unnendur Philly-
soundsins. G.S.
★ ★ ★ +
t tilefni þess að Earl Scruggs
er búinn að gefa út plötur f tutt-
ugu og fimm ár, hefur Columbia
plötufyrirtækið gefið út plötu
honum til heiðurs, sem nefnist
Anniversary Special Number
One.
Þarna er á ferðinni plata, þar
sem hljómsveit Earls, Earl
Scruggs Revue, flytur nokkra
góða Country rokkara og þjóð-
lög með aðstoð margra þekktra
tónlistarmanna. Um Earl
Scruggs er það að segja, aö
hann hefur á undanförnum 20-30
árum verið talinn bezti banjó
leikari heims og af sumum,
mesti banjóleikari allra tima.
Hvað um það, eins og áöur
sagði, eru lögin í þjóðlagastil,
eða fjörugir country rokkarar,
þar sem allur flutningur ein-
kennist af miklu fjöri og krafti,
svo ekki hefur aðstoðarmönnun-
um ieiözt á meðan, þótt margir
þeirra séu eflaust að spila svona
tónlist I fyrsta skipti eins og t.d.
Alvin Lee (Ten Years After).
Um frammistöðu einstakra
manna skulum við ekki fjöl-
yrða, allir gera sitt bezta, og
Earl karlinn er I þrumu stuði og
spilar á banjóið með miklum til-
burðum, og er eflaust enn þann
dag i dag sá bezti á þvi sviði.
Að lokum, nöfn nokkurra að-
stoðarmanna: Loggins and
Messina, Roger McGuinn, Billy
Joel, Alvin Lee, Jim Keltner
Johnny Cash, Michael
Murphey, Dan Fogelberg, Lo-
nard Cohen og New Riders of
The Purple Sage. G.G.
★ ★ ★ +
nú það? kynni einhver að
spyrja. Til fróðleiks þeim, sem
ekki vita það, skal upplýst, að
hann hefur um árabil leikið á
gitar i hljómsveitum með
Winter-bræðrunum, Johnny og
Edgar, og hefur hann ekki að-
eins verið hljóðfæraleikari,
heldur einnig samið fjöldan all-
an af lögum, sem þeir bræður
hafa gert fræg. Nægir að nefna
lög eins og „Rock And Roll IIou-
chie Koo” og „Still Alive And
Well”.
Að því kom þó, að Derringer
entist ekki til að láta Winter-
bræðrunum eftir alla frægð-
ina fyrir lögin hans, og þvi
gaf hann út sólóplötu I fyrra.
Platan vakti töluverða athygli,
og sáu menn að þarna var á
feröinni efnilegur tónlistarmað-
ur. t vor kom svo út önnur sólo-
plata frá Derringer: Spring
Fever, — og eru öll lögin eftir
hann sjálfan utan tvö, en það
eru tvö gömui lög, „Hang On
Sloopy” og „Walking the Dog”,
— bæði I stórgóðum útsetning-
um Derringers.
Rick Derringer hefur fengið
marga fræga kappa til aö aö-
stoöa sig við plötuna, s.s. bræð-
urna Edgar og Johnny, Chick
Corea, Bobby Caldwell o.fl. Það
þarf þvi enginn að undrast, þótt
allur hljóðfæraleikur sé pott-
þéttur og fyrsta flokks.
Báðar sólóplötur Derringers
eru likar, flest lögin eru létt og
skemmtileg áheyrnar, en einn
og einn dauðan punkt er þó hægt
að finna, — en I heild er platan
samt ágæt. Ég spái Derringer
miklum frama, þvi aö hann er
óefað miklum hæfileikum gædd-
ur, — og aö þvi kemur að hann
hlýtur verðuga viðurkenningu.
SþS
0C
31
Jlöskr
Eigum nokkur stykki af
þessum hljómfögru pianóum
á gömlu verksmiðjuverði.
1 árs ábyrgð. Mjög gott verð.
Staðgreiðsluafsláttur.
Hljóðfæraverzlun Pdlmars Árna
Borgartúni 29.
Simi 3 28 45.
t* 'T
-A*
® TILBOÐ
óskast i eftirtaldar bifreiðar, er verða til
sýnis þriðjudaginn 1. júli 1975, kl. 1-4 i
porti bak við skrifstofu vora Borgartúni 7:
Chevrolet Impala, fólksbifreið Árg. 1969
Plymouth Valiant, fólksbifreið ” 1968
LandRover diesel ” 1972
LandRoverbenzin ” 1968
LandRoverbenzin ” 1968
Land Rover benzin ” 1967
LandRoverbenzin ” 1966
Mercedes Benz, sendiferðabifreið ” 1967
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 5:00, að
viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn til
að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðun-
andi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 _
Minningarsjóður
Vigdísar Ketilsdóttur og
Ólafs Ásbjarnarsonar
Ákveðið hefur verið að sjóðurinn veiti
styrk tveim læknum til framhaldsnáms
næsta skólaár.
Umsóknir ásamt upplýsingum um hvaða
sérgrein væri að ræða og aðrar sem að
umsókninni lúta sendist formanni sjóðsins
Ásbirni Ólafssyni, Borgartúni 33 fyrir lok
júlimánaðar 1975.
BILAVARA-
HLUTIR
NOTAÐIR l
VARAHLUTiR j
I FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLAf
Öxlar
hentugir í aftanikcrrur
bretti
hurðir
húdd
rúður o.fl.
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—7 alla vlrka daga og 9—5
laugardaga.
Ódýrt:
vélar
gírkassar
drif
hósingar
fjaðrir