Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 27

Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 27
Sunnudagur 29. júni 1975. TÍMINN 27 tSLANDSMEISTARARNIR frá Akranesi: Móti hvaöa liöi lenda þeir i Evrópukeppni meistaraiiöa? Þeir hafa tvisvar sinnum áöur leikiö I Evrópukeppni 1970 og 1971 en þá voru þeir óheppnir meö mótherja. Fyrst fengu þeir Spörtu frá Hollandi og siöan Möltuliö og léku þá leiki slna á útivöllum. * ■■Draumurinn er að fá Skagamenn i Evrópukeppnina Evrópumeistara Bayern Munchen sem mótherja,, — segir leikreyndasti leikmaður íslandsmeistaranna frá Akranesi, Þröstur Stefánsson „Ég vona að við dettum í lukkupottinn i þetta sinn", sagði ÞRÖSTUR STEFÁNSSON, hinn kunni miðvörður islandsmeistaranna frá Akranesi, þegar við spurðum hann, hvaða lið hann óskaði eftir að fá sem mótherja Skagamanna i Evrópukeppni meistaraliða — en 8. júli n.k. verður dregið um það, hvaða lið lenda saman í fyrstu umferðinni í Evrópukeppninni. — „Draumurinn er að sjálfsögðu að fá Evrópumeistara Bayern Munchen, sem mótherja — þannig gætum viö Akurnesingar boöiö islenzkum knattspyrnu- unnendum upp á það bezta, sem knattspyrna i heiminum hefur upp á aö bjóöa. — Þegar maöur fer aö hugsa nánar út i þetta, finnst manni þaö ótrúlegt, að viö Akurnesingar gætum dregizt á móti þessu heimsfræga liöi frá Vestur- Þýzkaiandi, sem hefur á aö skipa mörgum snjöllustu knattspyrnu- mönnum heims, eins og Franz „Keisara” Beckenbauer, fyrir- liöa V-Þýzkalands, sem maður heföur dáöst aö i fjarlægö og fylgzt meö afrekum hans á knatt- spyrnuveilinum, og markveröin- um snjalla Sepp Maicr, Uli Honess og Gerd „Bomber” Muller, svo einhverjir séu nefndir. Já, þetta er ótrúlegt, en viö eigum eins mikla möguieika á að dragast á móti þessu snjalla liöi, eins og hvert annaö liö, sem tekur þátt I meistarakeppninni. — Annars fer þaö ekki á milli mála, aö öll þau lið, sem tryggja sér þátt i Evrópukeppni meistaraliöa, eru ekki af verri endanum allt meistarar frá sin- um iöndum. Þrátt fyrir þaö, er drátturinn mikiö happdrætti þvi ÞRÖSTUR STEFANSSON.... fyrrum Iandsliösmiövöröur. þaö þýöir ekki aö bjóöa íslenzkum knattspyrnuáhugamönnum nema upp á það allra bezta, það hefur sýnt sig i gegnum árin. ís- lendingar koma helzt ekki á vöilinn nema til að sjá þekktar knattspyrnustjörnur, sem hafa skapaö sér stórt nafn I knatt- spyrnuheiminum. Þaö þýðir ekk- ert aö bjóöa upp á lið, sem leika góöa knattspyrnu, nema i þeim séu heimsfrægir menn. Gott dæmi er um það, þegar Valsmenn léku gegn Benifica, sem frægt varð. Fólkið kom ekki til aö sjá Benifica-liðiö, heldur til aö sjá Eusebio, sem var stórstjarna i HM-keppninni i Englandi 1966. — Nú ef draumurinn rætist ekki og viö'. keppum ekki viö Bayern Munchen, þá eru mörg önnur fræg iiö eftir i hattinum. Td. lið eins og Real Madrid, sem hefur sjaldan veriö jafn gott og um þessar mundir. Fróöir menn segja, aö liöiö I dag sé jafnvel betra en gullaldarliöiö Real Madrid, sem var ósigrandi hér á árunum. i liöinu leika tveir V- Þjóðverjar, sem voru I HM-Iiöi V- Þýzkaland — þeir Gunter Netzer og Paul Breitner. Þá er italska liðið Juventus ekkert slor, svo ekki sé talaö um hina ný- krýndu meistara V-Þýzkalands, Borussia Mönchengladbach, sem unnu EFA-bikarkeppni Evrópu meö yfirburðum fyrir stuttu. Ekki má gleyma Englands- meisturunum frá Derby — sem allir knattspyrnuáhugamenn á þekkja, en I Derby-liöinu er valinn maöur i hverju rúmi. Þaö væri gaman að fá Bayern Munchen eða Dave Mackey og strákana hans úr Derby sem mót- herja. Ég gæti lofað þér þvi, aö uppselt yröi á Laugardalsvöllinn löngu fyrir leikinn, ef Akranes- liöiö lenti gegn þessum liöum, sagöi Þröstur aö lokum, og viö þökkuöum honum fyrir spjalliö. Nú er bara aö biöa eftir drættinum i Evrópukeppninni, sem fer fram 8. júli i Berú i Sviss, og sjá, hvort draumur Skaga- manna og jafnframt allra knatt- spyrnuunnenda á tslandi, rætist.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.