Tíminn - 29.06.1975, Side 8

Tíminn - 29.06.1975, Side 8
8 TÍMINN Sunnudagur 29. júni 1975. framkvæmdastjóra frysti- hússins. Fyrstur var sóttur heim, Sverrir Guðmundsson á Lóma- tjörn. Hann byrjaði þar búskap 1939 og rekur þar nú félagsbú með tengdasyni sinum Arvid Krog og Valgerði Sverrisdóttur. Jafnframt sveitastörfunum er Sverrir framkvæmdastjóri minkabúsins og sveitarstjóri, en I það embætti var hann ráðinn síðastliðið vor. Léleg útkoma minkabúsins — Hvernig hefur rekstur minkabúsins gengið frá stofn- un þess: — Frá fyrsta rekstrarári, eða 1972, hefur verið stöðugt tap á rekstri búsins. Sala á skinnum hefur verið með lélegasta móti, og við höfum ekki fengið nema helming þess verðs, sem til dæmis Norðmenn telja nauðsynlegt til að rekstur geti borgað sig. Þess verður hrtns vegar að gæta, að við búum við mun ódýrara fóður, en Norðmenn, og getum leyft okkur að lita bjartari aug um á framtiðina, þar sem þeir eru að draga saman seglin. — Hafið þið náð fullum tökum á framieiðslunni? — I pelsun skinnanna höfum við náð ágætum árangri, en nokkuð hefur borið á að óhreinindi og matarleifar setjist i feldinn, en það kemur út sem hrúður, og lækkar eðlilega gæði skinnanna. Þannig varmikiðaf þvi, er við sendum án erlendan markað, i lægfi gæðaflokkum, en hjá sams konar framleiðend- um I Noregi. Hins vegar litur nú út fyrir að meira vald sé að nást á framleiðslunni og rekstur búsins að færast i eðlilegt horf. Má benda á,'að hvolpafjöldi er • með mesta móti, i búinu eru nú tæplega 8000hvolpar og um 2000 læður. Þá eru að koma til búsins fullkomnari tæki til hreinsunar búranna og ætti það að geta bætt að mun gæði fram- leiðslunnar. — Hver er hlutdeild minka- búsins I atvinnulifi Grenvikinga? — Ég held, að það megi segja að fjórir starfsmenn vinni þar allt árið, en þess utan vinnur fjöldi fólks af og til við pelsun skinna. Þá er ótalin sú atvinna er .búið veitir bæði beint og obeint. Launagreiðslur fyrir- tækisins voru á siðasta ári um 5 milljónir króna og það eitt segir slna sögu.” Leitað að heitu vatni i sumar — Hverjar eru heiztu fram- kvæmdir á vegum hreppsins? — í sveitarfélagi er fær um 13 milljónir I heildartekjur verður tæplega miklu varið til stór- framkvæma. En við höfum beitt okkur fyrir því, að Orkustofnun leiti að vatni við Gljúfurá og reiknum með að þær fram- kvæmdir geti hafizt nú I sumar. Þá verður byrjað næsta sumar á skólabyggingu, en á fjárlögum var veitt 300 þúsund til þeirra framkvæmda, hins vegar verður tæplega hafizt handa i ár. Þá verður væntanlega reist ein Ibúð fyrir ríkisfé, en af þeim fimm er sveitarfélagið óskaði eftir lánum fyrir, fékkst aðeins vilyrði fyrir einni. Húsnæði vantar tilfinnanlega i Grenivlk, en einstaklingar hafa byggt þar tiltölulega mikið undanfarin ár, þannig eru nú I smíðum fimm einbylishús. En i einu mesta áhugamáli okkar heimamanna verður ekk ert gert I sumar, en það eru vegamálin, að visu verður veitt i Grenivikurveginn fjórum milljónum á næsta ári, en það er einungis endurgreiðslu á þvi fé er hreppurinn hefur lagt i þann veg. Einn gjafafrekasti vet- urinn — Reyndist vetrinn bændum þungur I skauti? Æði margir bændur voru orðnir heylausir þegar loks voraði, og litlar sem engar fyrningar voru til, en Grenivik Ungir Grenvikingar. Timamyndir: Ask. Sverrir Guðmundsson, Lómatjörn TÍAAINN HEIMSÆKIR Höfðahverfi ASK-Akureyri. Við utanverðan Eyjafjörð að austan er Höfða- hverfi, litil sveit en þéttbýl og nær frá Fnjóská að Grenivik. Höfðahverfi dregur nafn sitt af Þengilshöfða, sem er vestan við Grenivik. Þar I sveit eru nokkrir staðir, merkilegir frá söguiegu sjónarmiði. Nes, bær Einars Ás- mundssonar fyrrum alþingis- manns og samvinnufrömuðar, Höfði, prestsetur til 1890 og kirkjustaður til 1880. Höfði er landnámsjörð og bjó þar Þengill, við hvern höfðann er kenndur. Núverandi kirkjustaður er Laufás sem er ef til vill kunnari en flestir aðrir staðir i Höfðahverfi, fyrir gamlan torfbæ, sem þar er og kirkjuna sem er frá 1865. Þá er og kirkja á Grenivik, sem er þjónað frá Laufási. Tlminn heimsótti Höfðahverfi nú fyrir skemmstu og ræddi við ýmsa framámenn i hreppnum. Þá Sverri Guðmundsson bónda á Lómatjörn, Bolla Gústafsson prest I Laufási og Knút Karlsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.