Tíminn - 29.06.1975, Side 11
Sunnudagur 29. júni 1975.
TÍMINN
11
LÖGFRÆÐINGAR OG LÆKNAR Á ÖNDVERÐUM MEIÐI í AFAR
SÉRSTÆÐU MORÐMÁLI. ER HÆGT AÐ HALDA ÞVÍ FRAM,
AÐ MAÐUR SÉ LÁTINN, ÞEGAR HÆGT ER AÐ NOTA HJARTA
HANS TIL HJARTAÍGRÆÐSLU?
mjög þjáður og sýndi einstaka
viðbrögð.
— Möguleikar hans á að lifa
þetta af voru alls engir, lýsti dr.
Burns yfir. Mér er ekki kunnugt
um nokkurt tilfelli, þar sem
sjúklingur hefur lifað af heila-
skaða sem þennan.
Tveimur timum eftir að Allen
var lagður inná sjúkrahúsið, var
ekki vart nokkurs lifsmarks i
heila hans. Viðbrögð hans urðu
sifellt veikari, en hann dró ennþá
andann og hjartað starfaði óað-
finnanlega.
— Við vorum þess fullvissir, að
sár Allens væru banvæn, segir dr.
Burns. — Við vissum einnig, að
dr. Norman Shumway á sjúkra-
húsi Stanfordháskóla vantaði
hjartagjafa, og okkur virtist
Allen afskaplega vel til þess fall-
inn.
Þá var leitað til lögreglunnar til
að fá leyfi til liffæraflutningsins.
Likskoðunarmennirnir i Oakland
og Santa Clara, þar sem Stanford
er, beindu athyglinni að þvi, að
það striddi gegn öllum venjum að
nota liffæri manna, sem orðið
höfðu fórnarlömb skotárásar, til
liffæraflutninga. Likskoðunar-
mönnum væri skylt að kryfja slik
lik mjög nákvæmlega, rannsaka
hvert einstakt liffæri og ákvarða
hina raunverulegu dánarorsök.
Yfirvöld bentu á hinn bóginn á,
að hægt væri að flytja Allen til
Santa Clara, þar sem hægt væri
að lýsa hann látinn og siðan mætti
hefja liffæraflutninginn > Dr.
Burns hringdi til Stanford og út-
skýrði aðstæðurnar fyrir læknum
þar, Klukkan hálfsex um
morguninn hafði hann samband
við konu Allens, Gwendolyn
Joyce Allen, sem var 23 ára að
aldri og bjó i Austin i Texas.
Hún segir svo frá: — Mér var
tilkynnt, að maðurinn minn hefði
verið særður til ólifis. Læknirinn
vildi fá a vita, hvort ég leyfði, að
nýrun og hjartað úr Sam yrðu
flutt i sjúka menn, þeim til
bjargar, ef Sam lifði ekki af sár
sin. Að sjálfsögðu var mér mjög
brugðið, en þar sem heili Sams
var algjörlega hættur að starfa,
var hann ekki lengur á lifi sem sá
maður, er ég þekkti. Hann hefði
lika ábyggilega sjálfur óskað
þess, að hjarta hans mætti verða
annarri mannveru til gagns eða
jafnvel lifs.
Klukkan tiu árdegis næsta dag
hringdi dr. Shumway á Highland-
sjúkrahúsið og tilkynnti, að yfir-
völd vildu ekki fallast á liffæra-
flutninginn. En eftir langvarandi
viðræður við yfirvöld, var dr.
Shumway þó veitt leyfi til að fjar-
lægjahjarta Allens, þegar dauða
hans bæri að höndum á sjúkra-
húsinu i Oakland. Siðan skyldi
flytja hjartað flugleiðis með þyrlu
til Stanford.
Klukkan ellefu var Allen settur
i gervilunga. Hann dró þó sjálfur
ennþá andann, og hjarta hans sló
án nokkurra örðuleika.
Siðdegis fékk hinn 52 ára
Blaine Wixom, sem lá fyrir
dauðanum á sjúkrahúsi i Salt
Lake City, skilaboð frá hópi
hjartasérfræðinga, sem áttu að
vinna að hjartaflutningnum undir
stjórn dr. Shumway. Wixom hafði
lengi óskað sér nýs hjarta, enda
var hans eigið nánast óstarfhæft
sakir hjartagalla.
Læknarnir sögðu honum, að nú
væri kominn til þeirra hjarta-
gjafi — Allen — og báðu sjúkling-
inn að koma til Stanford. Wixom
og kona hans, Joy, flugu til
Kaliforniu siðar þennan sama
dag.
Klukkan hálffjögur gekkst
Allen enn á ný undir rannsókn á
Highlandsjúkrahúsinu.
Læknarnir voru sammála um, að
heilaskaðinn væri svo mikill að
ekki væri nokkur möguleiki á, að
sjúklingurinn lifði þetta af.
Klukkan ellefu um kvöldið var
Allen orðinn ófær um að draga
andann af eigin mætti og
gervilungað tók til starfa.
Sjúklingurinn sýndi öll einkenni
sykursýki, vegna þess hversu
hæg kirtlastarfsemin var orðin.
Að morgni þriðjudagsins var
fyrsta heilalinuritið sem sýnir raf
sveiílur heilans, tekið af Allen.
Samkvæmt þvi virtist ekki um
neina heilástarfsemi að ræða.
Wixom var lagður inn á Stan-
ford og klukkan hálf fimm veitti
likskoðunarmaðurinn i Oakland
leyfi til flutningsins á hjarta
Allens. — Við vorum i mjög
mikilli klipu, segir likskoðunar-
maðurinn, Roland Prahl. — Ef
við samþykktum hjarta-
flutninginn, gerðum við lög-
reglunni erfiðara fyrir i hennar
starfi, en ef við á hinn bóginn
neituðum að samþykkja hann,
hefðum við verið ákærðir af lækn-
unum.
Klukkan hálftiu var á ný tekið
heilalinurit af Allen og aftur var
það neikvætt — engin viðbrögð.
Um hádegisbilá miðvikudeginum
kom kona Allens til Oakland og ók
til sjúkrahússins ásamt tengda-
móður sinni og mágkonu.
Hún segir svo frá: — Ég man
ekki nákvæmlega, hvort
læknirinn sagði, að Sam væri
látinn eða bara, að heili hans væri
hættur að starfa. 1 sjálfu sér
skiptir það heldur ekki máli. En
ég sá aftur á móti að Sam dró
andann — og mér fannst endilega
að hann væri lifandi. En þrátt
fyrir það, var hann látinn og hafði
verið það allan timann, jafnvel
áður en læknarnir sögðu hann
vera það.
Klukkan hálfþrjú skrifaði
Gwendolyn Allen undir yfir-
lýsingu þess efnis, að hún
samþykkti flutning á hjarta
manns sins, ef þriðja heilalinu-
ritið yrði einnig neikvætt.
Klukkan hálfátta var svo
þriðja heilalinuritið tekið — og
Framhald á bls. 36
Plastprent hf.
f lytur að
HÖFÐABAKKA 9
o
A
MIKLABRAUT
U
O
I Plaitprent hf.
X o T1 o
CD í» * . GLIT
U3
SIS
VESTURLANDSVEGUR
Systurfyrirtæki sameinast
Plastprent h/f. og Plastpokar h/f. hafa nú hafió
starfsemi nýrrar og fullkominnar plastverksmiðju aö
Höföabakka 9 í Árbæjarhverfi. í hinni nýju og rúmgóðu
verksmiðju verða framleiðslu- og söludeildir undir einu
þaki.
Ný og fullkomin verksmiðja.
Plastprent h/f. hefur frá upphafi verið í fararbroddi í
plastiðnaði. Fyrirtækið hóf starf sitt árið 1958 með
einni vél og tveim mönnum á 60 m gólffleti. í dag
starfa 30 manns við fyrirtækið. Gólfflötur nýju verk-
smiðjunnar er 2018 m og vélarnar eru 18, þar af 6
nýtízku vélar, sem hafa verið teknar í notkun á þessu
ári.
Tækninýjungar.
Aukning vélakosts og sífelld endurnýjun hefur gert
fyrirtækinu kleift að framleiða plastvörur í háum gæða-
flokki, — fyllilega sambærilegum við erlenda fram-
leiðslu. í hinni nýju verksmiðju að Höfðabakka 9, mun
Plastprent h/f. framleiða sína eigin plastfilmu í öllum
þykktum, hvort sem filman verður notuð í bygginga-
plast eða umbúðaplast, garðaplast eða heimilispoka.
Framleiðsiuvörur.
Plastprent h/f. er fyrsta fyrirtækið á íslandi, sem
framleiðir og prentar á plastpoka. Plastprent h/f fram-
leiðir heimilispoka, burðarpoka, sorpsekki, umbúöa-
poka fyrir iðnvarning, byggingaplast, garðaplast ofl.
Auk þess annast fyrirtækið prentun á umbúðapappír
og sellofanumbúðir.
VERIÐ VELKOMIN AÐ
HÖFÐABAKKA9
SÍMINN ER 85600
Plastprent
fyrstirog ennþá fremstir