Fréttablaðið - 11.04.2005, Side 4

Fréttablaðið - 11.04.2005, Side 4
4 11. apríl 2005 MÁNUDAGUR Forstjóri Vinnumálastofnunar: Reglugerðin er útfærsla á vinnulagi VINNUMARKAÐURINN Alþýðusam- bandið gagnrýnir nýja reglugerð félagsmálaráðuneytisins um at- vinuréttindi útlendinga og telur að hún sé meingölluð. Vinnumála- stofnun sé látin um að túlka stefnu stjórnvalda í þessum mála- flokki á hverjum tíma. Reglugerðin er gengin í gildi og hyggst ASÍ því tryggja að „skikkanlega verði haldið á fram- kvæmdinni“ í gegnum Vinnu- málastofnun. Þetta segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmda- stjóri Alþýðusambandsins. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, telur að reglugerðin sé útfærsla á vinnu- lagi en hin pólitíska stefna eða stefnumótun geti birst með öðrum hætti en í formi reglugerðar. „Það er ekkert sem segir að þó að þessi reglugerð hafi tekið gildi og sé mjög til bóta varðandi fram- kvæmd laganna þá geti ekki kom- ið fram pólitískar áherslur ráðu- neytisins sem stofnunin reyni að framkvæma,“ segir hann. „Ég held að ráðuneytið hafi ekki sleppt hendinni af þessum málaflokki með útgáfu reglugerð- arinnar. Sjónarmið þess geta kom- ið fram síðar,“ segir hann. -ghs Danir ráku Gyðinga úr landi í stríðinu Rannsóknir Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar sagnfræðings um örlög danskra Gyðinga í Þýskalandi á stríðsárunum hafa nú verið staðfestar. Dönsk stjórn- völd íhuga að biðjast opinberlega afsökunar. GYÐINGAR Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Dana íhugar að biðja samfélag Gyðinga í Dan- mörku opinberlega afsökunar á því að dönsk stjórnvöld vísuðu fjölmörgum Gyðingum úr landi til Þýskalands á stríðsárunum, þar sem flestir enduðu ævina í fanga- búðum nasista. Samkvæmt danska dagblaðinu Politiken komu upplýsingar um þetta fyrst fram árið 1998, þegar íslenski sagnfræðingurinn Vil- hjálmur Örn Vilhjálmsson birti niðurstöður rannsókna sinna á ör- lögum danskra Gyðinga í Þýska- landi á stríðsárunum. Þáverandi ríkisstjórn í Danmörku ákvað í framhaldinu að skipa opinbera nefnd til að gera ítarlega könnun á örlögum þessa fólks. Nefndin hef- ur nú skilað af sér skýrslu þar sem niðurstöður Vilhjálms Arnar eru staðfestar. Fram kemur að dönsk stjórn- völd höfðu frumkvæði að því að vísa að minnsta kosti 19 Gyðing- um úr landi á árunum 1940-1942. Hvergi kemur fram að þetta hafi verið gert að beiðni Þjóðverja, sem hersátu Danmörku á þessum tíma. Í nokkrum tilvikum var um að ræða Gyðinga sem flúið höfðu til Danmerkur undan ofríki nas- ista. Í skýrslunni segir enn fremur að lögfræðingar hafi ítrekað var- að danska embættismenn við því að vísa þessu fólki úr landi, þar sem lífi þess væri bráð hætta búin í Þýskalandi. Talsmenn nefndar- innar segja þó ekki hægt að sýna fram á að dönsk stjórnvöld hafi haft vitneskju um fyrirætlanir nasista um útrýmingu Gyðingum á þessum tíma. Engu að síður er fullyrt að dönskum stjórnvöldum hafi verið ljóst að Gyðingar voru ofsóttir í Þýskalandi á þessum árum. Síðar í þessum mánuði kemur út bók eftir Vilhjálm Örn um ör- lög þessa flóttafólks þar sem með- al annars segir frá konu að nafni Brandla Wassermann sem var vís- að frá Danmörku ásamt þremur börnum sínum og endaði ævidag- ana í útrýmingarbúðunum í Auschwitz. ssal@frettabladid.is ODDUR FRIÐRIKSSON Aðaltrúnaðarmaður á Kárahnjúkum. Aðaltrúnaðarmaður á Kárahnjúkum: Þreyta á löng- um úthöldum KÁRAHNJÚKAR Oddur Friðriksson, aðaltrúnaðarmaður á Kárahnjúk- um, segist telja að Íslendingarnir sem vinna hjá Impregilo á Kára- hnjúkum séu þreyttir á löngum úthöldum. „Það er það sem er langerfið- ast fyrir Íslendinga hjá Impreg- ilo. Önnur verktakafyrirtæki vinna mun styttri úthöld og þar er þetta með hefðbundnum hætti,“ segir hann. Íslendingum hefur ekki fjölgað svo neinu nemi þrátt fyrir að samið hafi verið um staðaruppbót fyrir starfsfólk í löngu úthaldi og starfsfólk fengið greitt sam- kvæmt því sex mánuði aftur í tím- ann. -ghs Iceland International Film Festival www.icelandfilmfestival.is 7. - 30. apríl 2005 65 kvikmyndir á 3 vikum Reykjavík-Keflavík-Akureyri-Selfoss J Ó N S S O N & L E ’M A C K S ■ KÁRAHNJÚKAR KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 61,27 61,57 114,57 115,13 78,62 79,06 10,55 10,62 9,62 9,68 8,59 8,64 0,56 0,57 91,94 92,48 GENGI GJALDMIÐLA 8.4.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 108,56 -0,07% ÚTRÝMINGARBÚÐIR NASISTA Fjöldi danskra Gyðinga lét lífið í útrýmingarbúðum nasista í stríðinu eftir að dönsk yfirvöld vísuðu þeim úr landi. Jarðskjálfti við Súmötru: Engin flóðbylgja JAKARTA, AP Þúsundir manna flúðu heimili sín á eyjunni Súmötru í Indónesíu þegar snarpur neðan- sjávarjarðskjálfti reið yfir í gær. Skjálftinn mældist 6,8 stig á Richt- er en enginn flóðbylgja myndaðist af völdum hans. Skjálftans varð meðal annars vart í borginni Padang þar sem rúður brotnuðu, en yfirvöldum bárust engar tilkynningar um al- varleg slys eða mikið tjón. Tíu eft- irskjálftar fylgdu þeim fyrsta eftir og mældist sá stærsti 6,3 stig á Richter. Súmatra er enn í rúst eft- ir jarðskjálftann á annan í jólum þar sem 126 þúsund Indónesa týndu lífi. ■ SEINKAR EKKI Oddur Friðriks- son, aðaltrúnaðarmaður á Kára- hnjúkum, telur að nýjar upplýs- ingar um Kárahnjúka sem virkt jarðskjálftasvæði verði ekki til þess að seinka framkvæmdum á svæðinu. ■ KJARASAMNINGAR KJÖLUR SAMÞYKKIR SAMNINGA Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, hefur sam- þykkt kjarasamning við ríkið með 88 prósentum greiddra at- kvæða. Kjörsókn var 68 prósent. Nei sögðu átta prósent og auðir og ógildir voru fjögur prósent. Kjarasamningurinn var því sam- þykktur og gildir frá 1. febrúar 2005 til 30. apríl 2008. GISSUR PÉTURSSON Forstjóri Vinnumálastofnunar. Meirihluti í Skagafirði: Getur fallið á fimmtudag SKAGAFJÖRÐUR Framtíð meirihluta- samstarfs Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna í sveitarstjórn Skagafjarðar ræðst á fundi sveit- arstjórnar á fimmtudag. Einn fulltrúi Sjálfstæðismanna lýsti yfir vantrausti á oddvita flokksins í síðustu viku en ekki hef- ur formlega reynt á yfirlýsingu hans vegna þess að sveitarstjórn hefur ekki komið saman til fundar. „Samkvæmt lögum ber oddvita að hafa meirihluta á bak við sig og það kemur í ljós á fimmtudag hvort meirihlutinn er fallinn eða ekki“, segir Ársæll Guðmundsson sveitarstjóri. -sþs Týndi Brasilíumaðurinn: Leitað aftur án árangurs MANNSHVARF Á laugardaginn gengu björgunarsveitarmenn fjörur frá Þjórsá til Herdísarvíkur í leit að Brasilíumanninum Ricardo Cor- reia Dantas, sem ekkert hefur spurst til síðan hann hvarf á Stokkseyri fyrir rúmri viku. Leitin bar engan árangur. Formleg leit hafði þá legið niðri í tæpa viku. Ekki hefur verið ákveðið hvenær næst verður leitað. Anna Kjartansdóttir, fóstur- móðir hans, segir að haft hafi verið samband við fjölskyldu hans úti í Brasilíu, en hún standi ráðþrota eins og aðrir. -gb

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.