Fréttablaðið - 11.04.2005, Side 70

Fréttablaðið - 11.04.2005, Side 70
■ ■ SJÓNVARP  17.00 Þrumuskot – ensku mörkin á Skjá einum. Mörk helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.  18.30 Bandaríska Masters-mótið í golfi á Sýn. Útsending frá fjórða keppnisdegi bandaríska Masters- mótsins í golfi.  20.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Guðni Bergsson og Heminr Karlsson fara yfir allt það helsta úr enska, ítalska og spænska boltanum um helgina.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Endurtekinn þáttur. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 8 9 10 11 12 13 14 Mánudagur APRÍL Fótboltaveisla í Madríd 22 11. apríl 2005 MÁNUDAGUR > Við gleðjumst yfir því ... ... að Íslendingar hafi eignast tvo Norðurlandameistara, Róbert Kristmannsson og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur úr Gerplu í fimleikum unglinga um helgina. Róbert vann gull á bogahesti en Kristjana Sæunn vann gull í gólfæfingum. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... frjálsíþróttakonunni Silju Úlfarsdóttur sem hefur sýnt miklar framfarir á hlaupabrautinni í vetur og skapað sér nafn í hinum harða heimi bandarísku háskólakeppninnar í frjálsum íþróttum. Um helgina sigraði Silja með yfirburðum í 400 metra grindar- hlaupi á móti í Clem- son. Úr handboltanum Íslenskur úrslitaleikur Það verður íslenskur úrslitaleikur í EHF-keppninni í handbolta en Essen, lið Guðjóns Vals Sigurðssonar, tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með því að leggja rússneska liðið Astrakhan og skoraði Guðjón Valur tvö mörk. Essen mætir Magdeburg, liði Alfreðs Gíslasonar í úrslitum. Ólöf María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili lauk í gær keppni á Opna Tenerife- mótinu á evrópusku kvennamótaröð- inni í golfi, hennar fyrsta golfmóti sem atvinnumaður. Ólöf María lék síðasta hringinn á 74 höggum eða tveimur höggi yfir pari og endaði í 41. til 47. sæti mótsins á fjórum höggum yfir pari. Hún mætti til leiks á Tenerife með unnusta sinn, hinn bandaríska Randall Auerbach, sem kylfusvein og vakti það nokkra athygli þó ekki væri nema fyrir þær sakir að Randall er tennisspilari sem hefur ekki hundsvit á golfi. Ólöf María sagði í samtali við Frétta- blaðið að Randall væri fyrirtaks kylfu- sveinn. „Hann skiptir sér ekkert af spila- mennskunni hjá mér og er ekkert í því að ráðleggja mér hvaða kylfur ég að nota í það og það skiptið. Hann lætur hins vegar í sér heyra ef honum finnst ég vera í einhverju rugli. Ég hef hins vegar lagt mikla áherslu á andlegu hlið- ina í vetur og hann hef- ur verið með mér í því allan tímann. Hann hefur góð áhrif á mig á vellin- um, hvetur mig til dáða og hvað er hægt að fara fram á meira af kylfusveini,“ sagði Ólöf María. Hún játti því að það væri gott að hafa unnstan með sér á mótum og þetta væri fyrirtaksleið til að koma því við. Real Madrid sigraði Barcelona í stórkostlegum knattspyrnuleik í gær, 4-2. Dagsskipun beggja þjálfara var sóknarleikur og úr varð taumlaus skemmtun. KVENNKYLFINGURINN ÓLÖF MARÍA JÓNSDÓTTIR: MEÐ FJÖLKYLDUNA Á GOLFVELLINUM Með unnustan sem kylfusvein á Spáni FÓTBOLTI Það var snemma í leikn- um ljóst í hvert stefndi því að Real var komið með tveggja marka forystu eftir aðeins 20. mínútna leik eftir mörk frá Zinedine Zidane og Ronaldo. Auk þess að skora annað markið, hans fyrsta svo mánuðum skiptir fyrir Real, lagði Ronaldo upp markið fyrir Zidane og þaggaði þar með heldur betur í þeim sem sögðu hann eiga skilið að byrja leikinn á varamannabekknum eftir herfi- lega frammistöðu í síðustu leikj- um. Það herbragð Vanderlei Lux- emburgo að hafa Ronaldo og Michael Owen í framlínunni og setja Raul í stað Luis Figo í stöðunna fyrir aftan framherjana gekk fullkomnlega upp og spilaði Real sóknarbolta af bestu gerð. Figo horfði á af tréverkinu og var augljóslega ekki skemmt. Það sama var reyndar upp á teningnum hinum megin á vellin- um og var ekki að sjá að Barcelona saknaði Portúgalans Deco sem var í leikbanni. Undir stjórn Ronaldinho bauð Barcelona upp á dúndrandi sóknarbolta og á 28. mínútu minnkaði hinn magn- aði Samuel Eto’o muninn með sínu 22. marki á leiktíðinni. Það var síðan umræddur Raul sem kom Real í 3-1 með marki í uppbótar- tíma fyrri hálfleiks eftir frábær- an undirbúning Roberto Carlos. Oft vill það gerast í jafn hröð- um leik og var spilaður í fyrri hálfleik í gær að liðin slaka ósjálfrátt á í þeim síðari. Sú var hins vegar ekki raunin í gær, út- hald og orka leikmanna virtist takmarkalaus og verður leikurinn fyrir við minnst sem eitt mesta augnakonfekt fótboltaársins. Micheal Owen skoraði fjórða mark Real á 65. mínútu eftir magnaða sendingu frá David Beckham, en ensku landsliðs- mennirnir tveir áttu mjög góðan dag fyrir Real. Börsungar sóttu hart að marki Real eftir þetta en Iker Cassilas, markvörður Real, átti stórleik og varði eins og ber- serkur. Hann kom þó engum vörn- um við þegar Ronaldinho minnk- aði muninn í 4-2 með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Þrátt fyrir nokkrar góðar tilraun- ir fundu leikmenn Barca ekki leið- ina framhjá Cassilas á lokamínút- unum og sætur sigur Real því staðreynd í leik sem í raun var sigur fótboltans. Með sigrinum minnkaði Real forskot Barcelona á toppnum nið- ur í sex stig, en sjö umferðir eru enn óleiknar í spænsku úrvals- deildinni. vignir@frettabladid.is STÍFLAN BRAST HJÁ RONALDO Brasilíski framherjinn Ronaldo fagnar hér marki sínu fyrir Real Madrid gegn Barcelona í gær ásamt Michael Owen en það mark var kærkomið því það var hans fyrsta í deildinni í rúman mánuð. Ótrúleg spenna í einvígi ÍBV og Fram í handboltanum: Kalandadze hetja ÍBV HANDBOLTI Tite Kalandaze tryggði Eyjamönnum sæti í undanúrslit- um í DHL-deildar karla þegar hann skoraði sigurmarkið með þrumuskoti á síðustu sekúndu oddaleiks ÍBV og Fram í Vest- mannaeyjum í gær. Enn einu sinni í einvígi liðanna var jafnt á öllum tölum og stefndi allt í eina framlenginguna til við- bótar. En á síðustu sekúndu leiks- ins reif Tite Kalandaze sig á flug og þrumaði knettinum í samskeyt- in – lokatölur 25-24. „Ég vil þakka Fram-liðinu fyrir verulega verðugt verkefni en þetta eru án efa með erfiðari leikjum sem við höfum spilað í vetur,“ sagði Samúel Ívar Árna- son, hornamaður hjá ÍBV sem var að vonum ánægður með að vera kominn áfram í undanúrslit þar sem liðið mætir ÍR. „Við töpuðum óverðskuldað fyrir þeim í bikarnum og hlökkum til að borga fyrir okkur.“ ■ HETJAN FRÁ GEORGÍU Tite Kalandadze skoraði sigurmark ÍBV gegn Fram.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.