Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 32
Sigrún Lára Shanko rekur vinnu-
stofu og verslun á Skólavörðustíg.
Þar vinnur hún fallega silkimuni
sem flestir eiga það sameiginlegt
að vera hin mesta heimilisprýði.
„Ég er eiginlega sjálfmenntuð í silki-
málun. Þetta fag er nánast hvergi
kennt en það má segja að mér hafi tek-
ist að læra þetta með eindregnum
ásetningi,“ segir Sigrún, sem situr og
málar á silki þegar blaðamann ber að
garði.
Sigrún vinnur aðallega púða og
veggteppi og á vinnustofunni má sjá
púða í öllum regnbogans litum. Þótt
silkistrangarnir minni einna helst á
austrænar slóðir er greinilegt að nor-
rænn menningararfur er Sigrúnu hug-
leikinn. Í verkum hennar má sjá
munstur og myndir sem minna á gamla
tíma því rúnaristur, víkingaskip og
goðsögulegar verur vakna til lífsins á
silkinu.
Sigrún segist vera hrifin af gömlu
norrænu munstri en leitar líka í fornan
kveðskap og sagnagerð til að fá hug-
myndir. „Ég hef lesið Íslendingasög-
urnar, Eddukvæðin og Heimskringlu
til að fá innblástur og þykir það ákaf-
lega gaman. Ég hef til að mynda gert
veggteppi sem byggir á einu erindi
Hávamála og gæti auðveldlega gert
fleiri slík.“
Sigún hefur hlotið töluverða athygli
fyrir verk sín og átti meðal annars
verk á stórri sýningu í Santa Fe í
Mexíkó í fyrra. Hún hefur nóg að gera
því auk þess að vinna púða og teppi til
að selja í versluninni tekur hún að sér
verkefni og vinnur eftir pöntunum. ■
Blómavasar
Hægt er að raða saman nokkrum gerðum af lituðum glervösum í
gluggakistu og láta sólina skína í gegnum þá og skapa litríkt listaverk. [
Mikið úrval
af viðarörnum og
eldstæðum
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
Maricel
181.000 kr.
Barbara 90
294.900 kr.
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Nú fást TIVOLI útvörpin og
hljómflutningstækin í DUKA
Málar menningararfinn á silki
Sigrún notar hreint silki til að mála á og þarf að flytja það inn sjálf.
Mynstrið er margvíslegt á púðunum hennar Sigrúnar.
Silkipúðar með norrænu munstri sóma sér vel í
hvaða sófa sem er.
Fagurlega skreyttir strigaskór.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
]
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »