Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 64
Margverðlaunaður kór
frá Tallin í Eistlandi
syngur á kórastefnu við
Mývatn um helgina, sem
nú er haldin í þriðja sinn.
Ekki er gott að segja hvort gengið
verður á Mývatni um helgina, en
víst er að Messías verður á staðn-
um. Rúmlega 200 manna kór ætl-
ar á sunnudaginn að flytja óraró-
tíuna Messías eftir Händel ásamt
fimm einsöngvurum við undirleik
Sinfóníuljómsveitar Norðurlands.
Þessir tónleikar verða haldnir í
íþróttahúsinu í Reykjahlíð og eru
þeir hápunkturinn á hinni árlegu
kórastefnu við Mývatn, sem hefst
í dag og stendur fram á sunnudag.
Alls taka fjórir kórar auk
fimmtíu söngvara úr öðrum kór-
um þátt í kórastefnunni, sem lík-
lega verður fjölmennasta tónlist-
arhátíð sumarsins.
„Við tvöföldum nærri því íbúa-
fjöldann á staðnum,“ segir Mar-
grét Bóasdóttir, listrænn stjórn-
andi kórastefnunnar, sem nú er í
þriðja sinn haldin við Mývatn.
Samtals eru þátttakendurnir um
240 talsins, en meðal þeirra er nú
í fyrsta sinn erlendur kór, Noorus
kórinn, sem kemur frá Tallin í
Eistlandi.
„Þessi kór frá Tallin er marg-
verðlaunaður úr virtum kóra-
keppnum og hátíðum. Hann hefur
fengið held ég milli átta og tíu al-
þjóðleg verðlaun,“ segir Margrét.
„Ég er búin að marka kóra-
stefnunni þá braut að verða al-
þjóðleg kórahátíð, en svo er ég
líka að bjóða þessum eistneska
kór í virðingarskyni við það tón-
listarstarf sem eistneskir tónlist-
armenn hafa verið að vinna hér á
Norðausturlandi. Þeir hafa lagt
mikið af mörkum til samfélagsins
hérna og kennslunnar.“
Kórastefnan hefst í kvöld með
opnunartónleikum í félagsheimil-
inu Skjólbrekku þar sem Noorus
kórinn kemur fram undir stjórn
Raul Talmar. Í kjölfarið munu
þátttakendur fjölmenna í Jarð-
böðin þar sem við tekur miðnæt-
ursöngur.
Annað kvöld verða síðan aftur
tónleikar í Skjólbrekku þar sem
fram koma Árnesingakórinn í
Reykjavík, undir stjórn Gunnars
Ben, Kór Dalvíkurkirkju, undir
stjórn Hlínar Torfadóttur og
Noorus kórinn, undir stjórn Raul
Talmar.
Þá tekur við hlöðuball í ferða-
mannafjósinu í Vogum þar sem
eistneska þjóðlagahljómsveitin
Folkmill leikur tónlist frá heima-
landi sínu auk írskrar og nor-
rænnar sveitatónlistar.
Aðaltónleikar hátíðarinnar
verða síðan haldnir á sunnudag-
inn í íþróttahúsinu í Reykjahlíð
þar sem flutt verður óratorían
Messías eftir G. F. Händel.
Kórastefnan þróaðist upphaf-
lega út frá röð sumartónleika við
Mývatn, sem haldnir hafa verið
undanfarin 18 ár að frumkvæði
Margrétar. Árið 2002 fjármagnaði
Menningarborgarsjóður sumar-
tónleika með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands. Þetta hlóð utan á sig
og varð á endanum að tónleikum
með kór og hljómsveit. Þar fædd-
ist hugmyndin alþjóðlegri kóra-
stefnu. ■
36 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
... Náttúrunni í ríki markmið-
anna, ráðstefnu um náttúrusið-
fræði sem verður haldin á Sel-
fossi um næstu helgi.
... söngvakeppni hinna mörgu
tungumála, sem haldin verður í
húsnæði Hafnarfjarðarleikhússins
í umsjá Alþjóðahússins á Björtum
dögum í Hafnarfirði.
... Menningarhátíð Seltjarnar-
ness, sem sett verður á morgun
og stendur yfir helgina. Meðal
annars opna fjölmargir listamenn
vinnustofur sínar.
Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, verður sér-
stakur gestur Selkórsins á tónleikum í Seltjarn-
arneskirkju í kvöld. Auður er bæjarlistamaður
Seltjarnarness í ár, en tónleikarnir eru liður í
Menningarhátíð Seltjarnarness.
Hátíðin verður þó ekki formlega sett fyrr en á
morgun með athöfn í Bókasafni Seltjarnar-
ness. Á setningunni verður afhent fyrsta ein-
takið af Myndlyklinum, sem er bók með úrvali
listaverka í eigu Seltjarnarnesbæjar. Jafnframt
verður opnuð sýning á handgerðum brúðum
Rúnu Gísladóttur.
Menningarhátíðin stendur fram á sunnudag
með fjölmörgum viðburðum, meðal annars
ætla listamennirnir Auður Sigurðardóttir, Gerð-
ur Guðmundsdóttir, Kristín Gunnlaugsdóttir,
Messíana Tómasdóttir, Ragna Ingimundardótt-
ir og Tolli að hafa vinnustofur sínar opnar al-
menningi á laugardaginn.
Tónleikar Selkórsins í Seltjarnarnesskirkju hefj-
ast klukkan 20 í kvöld. Stjórnandi er Jón Karl
Einarsson en Arndís Inga Sverrisdóttir leikur á
píanó.
Kl. 20.00
Valur Grettisson, Haukur Ingvarsson,
Ólafur Kolbeinn Guðmundsson og fleiri
ung ljóðskáld úr Hafnarfirði lesa upp á
ljóðakvöldi í húsnæði
Hafnarfjarðarleikhússins.
menning@frettabladid.is
Menningarhátíð á Seltjarnarnesi
MARGRÉT BÓASDÓTTIR Hefur skipulagt tónlistarhátíð við Mývatn um næstu helgi þar
sem fjórir kórar koma saman.
Messías á Mývatni
!
Rá›stefna
Hva› me›
náttúruna?
„Hvert ætlum við okkur með
náttúruna? Hvað ætlar náttúr-
an sér með okkur?“
Þessar spurningar verða
ræddar á ráðstefnunni „Nátt-
úran í ríki markmiðanna“, sem
haldin verður á Selfossi núna
um helgina.
Meðal fyrirlesara eru heim-
spekingarnir Mikael Karlsson,
Páll Skúlason, Holmes Rolston,
Roger Pouvet og Emily Brady
ásamt listamönnunum Ósk Vil-
hjálmsdóttur og Mariele Neu-
decker. Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti setur ráðstefnuna á
laugardaginn, en Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi for-
seti, slítur henni á sunnudags-
kvöld. ■
Taktu þátt...
í kjöri um áhorfendaverðlaun ársins á visir.is
og þú gætir farið frítt í leikhús - 20 miðar og 2 árskort í boði!
Verðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní
B
as
eC
am
p
Pr
od
uc
tio
ns
Í samvinnu við: