Fréttablaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 2
2 21. maí 2005 LAUGARDAGUR
Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Akureyri:
Samstarf eflt vi› Gæsluna
ÖRYGGI Á SJÓ Á fimmta landsþingi
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar, sem hófst á Akureyri í gær, var
undirritaður nýr samstarfssamn-
ingur félagsins og Landhelgis-
gæslunnar. Samninginn undirrit-
aði einnig Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra, en báðir samnings-
aðilar heyra undir ráðuneyti hans.
Að sögn Jóns Gunnarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsbjargar,
er samningurinn einkum gerður
til að hámarka nýtingu björgunar-
skipaflotans sem Landsbjörg hef-
ur byggt upp hringinn í kringum
landið. „Tilefnið er fjölgun stórra
björgunarskipa sem félagið hefur
staðið fyrir,” sagði Jón í samtali
við Fréttablaðið. Í gangi sé loka-
átak í því verkefni félagsins að
stækka björgunarflotann í fjórtán
stór skip. Eftir sé að endurnýja
eldri skip á Vopnafirði, Siglufirði
og Patreksfirði. Jón segir samn-
inginn kveða á um að Landhelgis-
gæslan muni nýta þessi skip til
björgunar- og hjálparstarfa auk
annarra tilfallandi verkefna.
„Það gerði til dæmis gæfumun-
inn að svona skip var á Raufar-
höfn í dag og bjargaði tveimur
mönnum úr björgunarbát,“ segir
Jón.
Inntak samningsins dregur Jón
saman í þessum orðum: „Þessir
aðilar eru að taka höndum saman
um að skipuleggja sína starfsemi
þannig að nýting á tækja- og
mannafla verði betri en hún er í
dag.“ -aa
Hildur ÞH-38 sökk á Þistilfiði:
Tveimur bjarga›
úr sjávarháska
SJÓSLYS Mannbjörg varð þegar
Hildur ÞH-38 sökk á Þistilfirði um
7 sjómílur austsuðaustur af Rauf-
arhöfn.
Tveir skipverjar höfðu komist
sjálfir í björgunarbát. Þeim var síð-
an bjargað um borð í björgunarskip
Slysavarnarfélagsins Landsbjarg-
ar, Gunnbjörgu frá Raufarhöfn.
Vaktstöð Landhelgisgæslunnar
barst tilkynning um það bil
fimmtán mínútur fyrir klukkan eitt
í gærdag frá flugstjórn um að flug-
vél hefði tilkynnt um neyðarsend-
ingar.
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, lagði svo af stað um klukkan
tuttugu mínútur gengin í tvö. Þyrl-
an sneri hins vegar við þegar stað-
festar upplýsingar bárust um að
mönnunum tveimur hefði verið
bjargað um borð í Gunnbjörgu.
„Við vorum komin rétt að Ei-
ríksjökli þegar við fengum það
staðfest að mönnum hefði verið
bjargað, það voru að sjálfsögðu
gleðifréttir“ sagði Benóný Ás-
grímsson, flugstjóri hjá Landhelg-
isgæslunni.
Talsverður sjór var á Þistilfirði
er báturinn sökk. Vindhraðinn var
um 8-10 metrar á sekúndu í norð-
austan kalda.
Róbert Þorláksson, umsjónar-
maður björgunarskipsins Gunn-
bjargar, sagði björgunarferðina
hafa gengið vel. „Við vorum fljót-
ir að finna bátinn og björgunin
gekk hratt og vel fyrir sig. Skips-
brotsmennirnir voru ágætlega
haldnir þótt þeir hafi verið svolít-
ið kaldir“, sagði Róbert. - mh
Áfanga ná› í stofn-
frumurannsóknum
Su›urkóreskir vísindamenn hafa greint frá flví a› fleim hafi tekist a› rækta
stofnfrumur sem innihalda nákvæma eftirlíkingu erf›aefnis nokkurra sjúk-
linga. Enn er fló langt í a› uppgötvunina ver›i hægt a› nota í lækningaskyni.
VÍSINDI Suðurkóreskum vísinda-
mönnum hefur tekist að rækta
stofnfrumur sem passa fullkom-
lega við erfðaefni nokkurra sjúk-
linga. Uppgötvunin eykur vonir
um að hægt verði að þróa lækn-
ingar á grunni stofnfrumuvísinda
en henni fylgja þó alvarleg sið-
ferðileg álitamál.
Á síðustu árum hefur áhugi
vísindamanna á stofnfrumum
vaxið hröðum skrefum en stofn-
frumur eru ósérhæfðar frum-
stæðar frumur sem geta bæði
fjölgað sér og breyst í sérhæfðar
frumur, til dæmis brisfrumur og
lifrarfrumur. Ef fundin verður
leið til að rækta stofnfrumur og
stýra þróun þeirra í sérhæfðar
frumur binda menn vonir við að
hægt verði að lækna ýmiss konar
áverka og sjúkdóma á borð við
brunasár, sykursýki og
Alzheimer.
Uppgötvun Suður-Kóreumann-
anna þykir mikilvægur áfangi á
þessari leið. Árangri sínum náðu
þeir með því að taka erfðaefni úr
sjúklingunum og koma því fyrir í
eggfrumu sem erfðaefnið hafði
verið tekið úr. Eggfruman varð
síðan að örsmáum fósturvísi og úr
honum voru teknar stofnfrumur
sem innihéldu nákvæma eftirlík-
ingu af erfðaefni sjúklinganna.
Enn er þó langt í land að hægt
verði að nota uppgötvunina til
lækninga. Næsta skref verður að
þróa aðferð við að stýra sérhæf-
ingu stofnfrumnanna til að taka á
sig ákveðnar myndir.
Þá tókst vísindamönnum við
Newcastle-háskóla á Bretlandi
að klóna fósturvísa í vikunni en
slík vinnsla er nauðsynleg til að
hægt sé að rækta stofnfrumur í
einhverjum mæli. Þeir ítrekuðu
hins vegar að á grundvelli þess-
arar tækni mætti aldrei rækta
klónuðu fósturvísana áfram svo
að þeir yrðu að fóstrum og síðan
börnum.
Andstæðingar stofnfrumu-
rannsókna benda hins vegar á að
þær séu siðferðislega óréttlætan-
legar þar sem fósturvísir sé lífs-
form sem eigi möguleika á að þró-
ast í manneskju. „Stór hluti mann-
kyns lítur svo á að við ræktun
stofnfrumnanna hafi þurft að
eyða mannslífum eða vísi að
þeim,“ segir dr. Richard Nichol-
son, ritstjóri The Bulletin of Med-
ical Ethics.
sveinng@frettabladid.is
Íslenski söfnuðurinn í Osló:
Afsagnir
vegna fjár-
dráttarmáls
NOREGUR Tveir starfsmenn ís-
lenska safnaðarins í Ósló hafa
sagt af sér vegna fjárdráttar sem
afleysingastarfsmaður hans varð
uppvís að. Maðurinn segir ástæðu
fjárdráttarins vera spilafíkn, að
því er Stöð tvö greindi frá.
Maðurinn kvað hafa verið ráð-
inn tímabundið til starfa fyrir
söfnuðinn í haust sem leið, en
meðal verkefna var að greiða
reikninga. Því hafði hann aðgang
að sjóðum safnaðarins og dró sér
alls um 560.000 norskar krónur,
andvirði nærri sex milljóna ís-
lenskra. Maðurinn játaði á sig
brotið en er fjárdrátturinn komst
upp sögðu gjaldkeri og formaður
safnaðarins af sér. Málinu var vís-
að til lögreglunnar í Ósló. ■
SAAB bílar:
Alkóhóllás
í alla bíla
SVÍÞJÓÐ Sænsku Saab-bílaverk-
smiðjurnar hafa tilkynnt að innan
tveggja ára verður hægt að fá sér-
staka alkóhóllæsingu í alla bíla
þeirra.
Nú þegar eru tilraunir hafnar á
þessari nýju tækni sem á að geta
dregið verulega úr ölvunarakstri
sem er mikið vandamál um allan
heim. Gert er ráð fyrir að alkóhól-
lásinn muni kosta kringum 30 þús-
und íslenskar krónur og að ekki
eigi að taka lengri tíma fyrir hann
að mæla alkóhólmagnið í út-
blæstri ökumanns en nokkrar sek-
úndur. ■
Lögregla á Suðvesturlandi:
Meira um
hra›akstur
UMFERÐARMÁL Lögreglan á Suð-
vesturlandi hefur orð á því að
ökumenn fari fullgeyst nú þegar
sumarið er gengið í garð.
Lögreglan í Kópavogi stöðvaði
10 ökumenn í gær og í Hafnarfirði
stöðvaði lögregla tvöfalt fleiri í
fyrradag. Þar af einn á 132 kíló-
metra hraða á Reykjanesbraut.
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
svo einn í fyrrinótt á sama hraða á
Gullinbrú. Lögreglan í Keflavík
hefur svipaða sögu að segja og lík-
ir ökumönnum við kýrnar sem er
sleppt lausum á vorin. Þá hafði
Reykjavíkurlögreglan orð á því að
enn væru fullmargir á nagla-
dekkjum. - jse
Ítalskur gísl:
Sög› hafa
veri› myrt
KABÚL, AP Óvissa ríkir um hvort
ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clem-
entina Cantoni sé lífs eða liðinn.
Í gærmorgun
var haft eftir
Temur Shah,
sem sagður er
hafa rænt Cant-
oni, að hann
hefði drepið
hana þar sem
ekki hefði verið
gengið að kröf-
um hans. Síð-
degis sagðist hins vegar Paul
Barker, framkvæmdastjóri hjálp-
arsamtakanna CARE í Afganist-
an, efast um að fréttirnar ættu við
rök að styðjast. AP-fréttastofan
hermdi svo að Shah hefði hringt
og sagt að Cantoni væri aðeins lít-
illega særð.
Cantoni var rænt á mánudag-
inn í Kabúl. ■
STJÓRNMÁL
GUÐNI TIL NOREGS Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra verður
í opinberri heimsókn í Noregi 22.
til 24. maí. Heimsóknin er í boði
hins norska starfsbróður Guðna,
Lars Sponheim. Dveljast þeir í
Hörðalandi meðan á heimsókn
stendur en það er mikið landbún-
aðarhérað og kjördæmi Spon-
heims.
LÖGREGLUMÁL
BROTIST INN Í APÓTEK Brotist
var inn í Apótekið á Hellu í fyrri-
nótt. Innbrotsþjófurinn braut
rúðu og kom sér þannig inn.
Engu var þó stolið svo vitað sé og
engar skemmdir voru unnar inn-
andyra. Að sögn lögreglunar á
Hvolsvelli hefur þjófurinn annað
hvort ekki náð því sem hann var
á eftir eða brotist inn í öðrum og
óskiljanlegum tilgangi. Málið er
nú í rannsókn.
„Besta bók Auðar“
„Makalaus bók, við höfum
eignast dúndurhöfund ...
Frábærlega hugsuð og
yndislega stíluð.“
Páll Baldvin Baldvinsson,
Stöð 2
„Greip mig svo fast og
snerti mig svo sterkt að
ég hreinlega táraðist á
stundum.“
Úlfhildur Dagsdóttir,
bokmenntir.is
Kilja
- Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið
6. sæti
Skáldverk – kiljur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
11. – 17. maí
SPURNING DAGSINS
Íris, er l‡›ræ›i› ekki bara
rotnandi hræ?
„Ja, maður spyr sig eftir svona úrslit.“
Íris Davíðsdóttir skrifaði BA-ritgerð sína í stjórn-
málafræði um Eurovision-keppnina. Ísland féll úr
leik eftir símakosningu á fimmtudag.
CLEMENTINA
CANTONI
VÍSINDAMAÐUR SVARAR FJÖLMIÐLUM Hwang Woo-suk prófessor við Háskólann í í Soul
svarar spurningum blaðamanna en hann fer fyrir Suðurkóresku vísindamönnunum.
RÚSSLAND
SPRENGT Í DAGESTAN Sprengja
sprakk í íbúðarblokk í Dagestan-
héraði syðst í Rússlandi í gær.
Ráðherra í héraðsstjórn Dagest-
an og lífvörður hans létu lífið í
sprengingunni. Grunnt er á því
góða milli ólíkra þjóðernis- og
trúarhópa í héraðinu en hinn
myrti stýrði ráðuneyti sem fór
með málefni minnihlutahópa.
Snekkja dregin til hafnar:
Vélarvana vi›
Gar›skaga
BJÖRGUNARSVEITIR Vélarvana
snekkja var dregin til hafnar í
Sandgerði í gærkvöldi. Báturinn
er hollenskur, um 250 tonn og
nefnist Daphne, en hann var að
sögn tilkynningaskyldunnar á leið
til Grænlands og þaðan til Banda-
ríkjanna.
Kallaðar voru út björgunar-
sveitir frá Sandgerði, Grindavík
og Reykjavík. Báturinn kallaði
eftir aðstoð um klukkan hálf sjö í
gærkvöldi, en var þá staddur um
eina og hálfa mílu suðvestur af
Garðskaga. Bátur að nafni Sæ-
mundur frá Grindavík dró skipið
til hafnar þar sem nú er hugað að
viðgerðum. -óká
JÓN GUNNARSSON
Upplýsingafulltrúi
Landsbjargar
BJÖRN BJARNASON
Ráðherra björgunar-
mála.