Fréttablaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 34
Reynsluakstur
Mikilvægt er að vanda valið við kaup á nýjum bíl og nauðsynlegt að fá að
reynsluaka honum. Sniðugt getur verið að koma aftur nokkrum dögum seinna
og fá að reynsluaka honum aftur áður en endanleg ákvörðun er tekin. [ ]
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
VINNUM EFTIR
CABAS-KERFINU
Tjónaskoðun
Súðavogur 6 Jeppi á þjóðvegi og fjöll
Nissan Pathfinder er verklegur bíll og alls ekki ólaglegur.
Höfuðkostur nýja Nissan
Pathfinder-jeppans er að hann
er framúrskarandi ferðabíll,
óháð því á hvers konar vegi
ferðast er. Þetta á bæði við
um aksturseiginleika og þæg-
indi í búnaði bílsins.
Nýr Nissan Pathfinder var kynntur
hjá Ingvari Helgasyni fyrir
skömmu. Pathfinderinn tekur við
af Terrano II sem aftur tók við af
gamla Pathfindernum um miðjan
síðasta áratug. Pathfinder er jeppi
af millistærð, á Patrolinn fyrir
stóra bróður en er til muna stærri
og öflugri en þeir bílar sem í dag-
legu tali eru kallaðir jepplingar.
Bíllinn fæst nú eingöngu með
díselvél en verður í haust fáanlegur
með 270 hestafla V6 bensínvél.
Nissan Pathfinder er afar vel
búinn bíll, ekki síst þegar komið
er upp fyrir grunnútfærslu (XE).
Meðal skemmtilegs búnaðar í
bílnum má nefna áttavita í bak-
sýnisspegli regnskynjara (SE),
loftkælingu í aftursæti og minni í
sæti og speglum (LE) og bakk-
myndavél (IT pakki).
Reynsluekinn var Nissan Path-
finder LE IT. Í þeim bíl eru til
dæmis leðursæti, skynvæddur
lykill, topplúga og leiðsögukerfi
með litaskjá en sá búnaður nýtist
ekki nema farið sé til Evrópu, að
minnsta kosti ekki að sinni.
Bíllinn er þægilegur í allri um-
gengni. Hann er vel búinn
geymsluhólfum og glasahöldur-
um, sem er hlutur sem ekki skyldi
vanmeta í ferðabíl. Skottið er að-
gengilegt og rúmgott og þriðja
sætaröðin jafnast alveg við gólf,
sé hún ekki í notkun. Miðstöðin er
tvískipt þannig að farþegi getur
kosið annað hitastig en bílstjóri,
auk þess sem aftursætisfarþegar
geta sjálfir stýrt hitastigi hjá sér.
Allt þetta hjálpar til við að gera
Nissan Pathfinder að þeim góða
ferðabíl sem hann er.
Bíllinn var hinn ljúfasti í með-
förum og öll þægindi og búnaður
framúrskarandi. Nissan Pathfind-
er er fyrsta flokks ferðabíll. Ekki
má á milli sjá hvort hann nýtur
sín betur á malbiki þar sem hann
steinliggur, á malarvegi þar sem
ökumaður finnur vel fyrir því að
vera á stöðugu og öruggu ökutæki
eða á grófum vegi þar jeppaeigin-
leikarnir njóta sín. Þessir góðu
eiginleikar eru þó ögn á kostnað
lipurleika sem margir leggja upp
úr í innanbæjarakstri. Nissan
Pathfinder er því bíll sem hentar
þeim best sem leggja meira upp
úr góðum eiginleikum ferðabíls
en lipurs innanbæjarbíls. ■
REYNSLUAKSTUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Nissan Pathfinder kemur í einni
grunnútfærslu hvað varðar stærð og
afl en ýmsar útfærslur eru varðandi
búnað.
Lengd 4.740 mm
Breidd 1.850
2,5 l 174 hestafla díselvél
XE beinskiptur 3.990.000 kr.
SE beinskiptur 4.450.000 kr.
SE sjálfskiptur 4.650.000 kr.
LE IT sjálfskiptur 5.350.000 kr.
Bíllinn er sjö manna.