Fréttablaðið - 21.05.2005, Side 34

Fréttablaðið - 21.05.2005, Side 34
Reynsluakstur Mikilvægt er að vanda valið við kaup á nýjum bíl og nauðsynlegt að fá að reynsluaka honum. Sniðugt getur verið að koma aftur nokkrum dögum seinna og fá að reynsluaka honum aftur áður en endanleg ákvörðun er tekin. [ ] • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 VINNUM EFTIR CABAS-KERFINU Tjónaskoðun Súðavogur 6 Jeppi á þjóðvegi og fjöll Nissan Pathfinder er verklegur bíll og alls ekki ólaglegur. Höfuðkostur nýja Nissan Pathfinder-jeppans er að hann er framúrskarandi ferðabíll, óháð því á hvers konar vegi ferðast er. Þetta á bæði við um aksturseiginleika og þæg- indi í búnaði bílsins. Nýr Nissan Pathfinder var kynntur hjá Ingvari Helgasyni fyrir skömmu. Pathfinderinn tekur við af Terrano II sem aftur tók við af gamla Pathfindernum um miðjan síðasta áratug. Pathfinder er jeppi af millistærð, á Patrolinn fyrir stóra bróður en er til muna stærri og öflugri en þeir bílar sem í dag- legu tali eru kallaðir jepplingar. Bíllinn fæst nú eingöngu með díselvél en verður í haust fáanlegur með 270 hestafla V6 bensínvél. Nissan Pathfinder er afar vel búinn bíll, ekki síst þegar komið er upp fyrir grunnútfærslu (XE). Meðal skemmtilegs búnaðar í bílnum má nefna áttavita í bak- sýnisspegli regnskynjara (SE), loftkælingu í aftursæti og minni í sæti og speglum (LE) og bakk- myndavél (IT pakki). Reynsluekinn var Nissan Path- finder LE IT. Í þeim bíl eru til dæmis leðursæti, skynvæddur lykill, topplúga og leiðsögukerfi með litaskjá en sá búnaður nýtist ekki nema farið sé til Evrópu, að minnsta kosti ekki að sinni. Bíllinn er þægilegur í allri um- gengni. Hann er vel búinn geymsluhólfum og glasahöldur- um, sem er hlutur sem ekki skyldi vanmeta í ferðabíl. Skottið er að- gengilegt og rúmgott og þriðja sætaröðin jafnast alveg við gólf, sé hún ekki í notkun. Miðstöðin er tvískipt þannig að farþegi getur kosið annað hitastig en bílstjóri, auk þess sem aftursætisfarþegar geta sjálfir stýrt hitastigi hjá sér. Allt þetta hjálpar til við að gera Nissan Pathfinder að þeim góða ferðabíl sem hann er. Bíllinn var hinn ljúfasti í með- förum og öll þægindi og búnaður framúrskarandi. Nissan Pathfind- er er fyrsta flokks ferðabíll. Ekki má á milli sjá hvort hann nýtur sín betur á malbiki þar sem hann steinliggur, á malarvegi þar sem ökumaður finnur vel fyrir því að vera á stöðugu og öruggu ökutæki eða á grófum vegi þar jeppaeigin- leikarnir njóta sín. Þessir góðu eiginleikar eru þó ögn á kostnað lipurleika sem margir leggja upp úr í innanbæjarakstri. Nissan Pathfinder er því bíll sem hentar þeim best sem leggja meira upp úr góðum eiginleikum ferðabíls en lipurs innanbæjarbíls. ■                            REYNSLUAKSTUR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Nissan Pathfinder kemur í einni grunnútfærslu hvað varðar stærð og afl en ýmsar útfærslur eru varðandi búnað. Lengd 4.740 mm Breidd 1.850 2,5 l 174 hestafla díselvél XE beinskiptur 3.990.000 kr. SE beinskiptur 4.450.000 kr. SE sjálfskiptur 4.650.000 kr. LE IT sjálfskiptur 5.350.000 kr. Bíllinn er sjö manna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.