Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 30
Hjólkoppar
Útliti bíls er hægt að breyta með því að setja nýja hjólkoppa á dekkin. Til-
valið er að skipta út hjólkoppunum á bíl sem kominn er til ára sinna og
þá yngist hann upp um nokkur ár.[ ]
Súðavogur 6
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
Partur–Spyrnan–Lyftarar
Eldshöfða 10
s. 585 2500 og 567 8757
TRIO
G O L F H J Ó L
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Með króníska bíladellu
Hondan gerð upp í þriðja sinn.
Geiri stefnir að því að ljúka við bílinn fyrir bílasýningu á Akureyri 17. júní.
Ásgeir Ingvason, alltaf kallaður
Geiri, er viðgerðamaður hjá AB
bremsum í Akralind og sérhæfir
sig í Honda-bílum. Geiri á að
sjálfsögðu sjálfur einn slíkan.
„Þetta er þvílíkur eðalbíll,
Honda CRX. 1,6 V-tec. Í honum
er ventlasystem sem lengir opn-
unartíma á ventlum, sem aftur
eykur kraftinn. Því lengur sem
ventlarnir eru opnir því meiri
kraftur.“
Geiri er búinn að skipta
þrisvar um vél í bílnum og segist
lifa og hrærast í bílaviðgerðum.
„Þessi bíll var 60 hestöfl en er
núna 90,“ segir hann. „Ég er með
króníska bíladellu, þetta er í
blóðinu og teygir sig aftur um
þrjá eða fjóra ættliði.“
Aðspurður hvort þetta þjóni
einhverjum tilgangi þar sem
hvergi má aka mjög hratt hér-
lendis segist hann fara upp í
braut. „Þar er hægt að gefa í og
finna kraftinn. Það er ólýsanlegt
kikk.“
En hvað er svona merkilegt
við Hondur?
„Það er bara snilldarsmíð á
þeim, mótoruppsetningin er svo
brilljant og allt annað í bílnum
frábært. Ég er búinn að eiga sex
Hondur og er hvergi hættur.“
Þó að Geiri sé heltekinn af bíl-
um og sé mikið í bílskúrnum
þegar hann er ekki í vinnunni á
hann sér annað áhugamál.
„Ég spila á gítar og sem lög.
Nei, ég hef aldrei komið fram, en
núna er allt í bígerð og hljóm-
sveit í smíðum svo það er aldrei
að vita. Við erum að spila allt frá
Zeppelin upp í íslenska sveita-
ballatónlist. En aðalatriðið er að
koma Hondunni á götuna fyrir
17. júní, þá verður stefnan tekin
á bílasýningu á Akureyri.“
Til að sýna bílinn?
„Nei, bara til að sýna sjálfan
sig og sjá aðra.“ ■
Carlos Ghosn er tekinn við sem
forstjóri Renault Group. Ghosn
hefur verið forstjóri Nissan frá
1999, allt frá því að Renault eign-
aðist ráðandi hlut í Nissan, og
mun hann halda því starfi áfram
samhliða nýja forstjórastarfinu.
Ghosn hefur verið orðaður
við forstjórastól Renault undan-
farin ár eða allt frá því að honum
tókst að snúa taprekstri Nissan
við á árinu 2001. Sá viðsnúning-
ur þótti undraverður, ekki hvað
síst fyrir þá sök að hann tók ekki
nema 12 mánuði, en tap Nissan
hafði verið tilfinnanlegt á árun-
um áður. Renault Group skilaði á
síðasta ári 3,5 milljörðum evra í
hagnað og hefur forstjórinn ný-
ráðni lýst því yfir, að í ljósi góðr-
ar afkomu sé mikilla breytinga
ekki að vænta hjá Renault á
næstunni.
Starf stjórnarformanns og
forstjóra Renault hefur fram að
þessu verið á hendi eins manns,
Louis Schweitzer. Fyrir nokkru
var ákveðið að skilja þessi tvö
æðstu stjórnunarstörf sam-
steypunnar að og mun Schweitz-
er starfa við hlið Ghosn sem
stjórnarformaður. Ghosn er af
brasilískum uppruna og er
þekktur fyrir að fara sínar eigin
leiðir. Þessi óhefðbundni stjórn-
unarstíll vakti neikvæð viðbrögð
á upphafsárum hans hjá Nissan.
Til dæmis varð hann frægur á
einni nóttu fyrir að heilsa öllu
starfsfólkinu hjá Nissan með
handabandi. Það þótti ekki góðs
viti í japönsku viðskiptalífi og
hann vakti einnig mikla athygli
fyrir að taka morgunverð með
börnum sínum fjórum fram yfir
háttskrifaða morgunverðar-
fundi. ■
Óvenjulegur
forstjóri hjá Renault
Forstjóri Nissan sest í forstjórastól Renault.
Carlos Ghosn og Louis Schweitzer.
Valdís Gunnarsdóttir
Sunnudagsmorgna 9-12