Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 21
21LAUGARDAGUR 11. júní 2005
Vísitala neysluverðs hækkaði
um 0,71 prósent í maí. Þetta kem-
ur fram á vef greiningardeildar
Íslandsbanka. Áður hafði verið
spáð um 0,3 prósenta hækkun.
Segir Íslandsbanki að spá-
skekkjan skýrist af mikilli verð-
hækkun matar- og drykkjarvara
og að vænta megi frekari áhrifa í
þessa átt á næstunni.
Að sögn Ingvars Arnarsonar,
sérfræðings á greiningardeild
Íslandsbanka, kemur hækkunin
ekki á óvart þótt ekki hafi verið
gert ráð fyrir henni í þessari
mælingu. „Hækkunin liggur
fyrst og fremst í því að matur og
drykkur eru að hækka og það er
að ganga til baka lækkun að
hluta, lækkun sem hafði átt sér
stað meðal annars vegna verð-
stríðs á matvörumarkaði,“ segir
Ingvar. Hann segir að hækkunin
breyti litlu sem engu um verð-
bólguhorfur til langs tíma.
Að hans mati gefur hækkun
vísitölunnar nú ekki tilefni til
endurskoðunar á vaxtaákvörðun-
um Seðlabankans enda sé hætta
á verðbólgu aðallega bundin við
næsta ár.
Húsnæðisverð hækkaði veru-
lega í mánuðinum, en þó í takt
við spár. - jsk/- þk
Meiri ver›bólga
Neysluverðsvísitalan hækkað um 0,7 prósent milli
mánaða en búist var við miklu minni hækkun.
Vilja fá hærra ver›
Lágmarksverð Lithuanian Airlines rúmar 200 milljónir króna.
Einkavæðingarnefnd í Litháen,
sem vinnur að sölu á ríkisflugfé-
laginu Lithuanian Airlines, gaf
öllum bjóðendum í félagið frest
til 15. júní til að hækka tilboð
sín. Fjórir buðu í félagið og var
Pálmi Haraldsson í Feng einn
þeirra. Samkvæmt frétt
Bloomberg eru aðrir bjóðendur
frá Litháen.
Bloomberg hefur eftir emb-
ættismönnum í Litháen að lág-
marksverð fyrir flugfélagið sé
rúmar tvö hundruð milljónir
króna. Gerð er sú krafa að kaup-
endurnir endurnýi flugflotann
fyrir álíka upphæð næstu tvö
árin verði af kaupunum. Ekki
fékkst uppgefið hversu há til-
boðin fjögur hljóðuðu.
Lithuanian Airlines flýgur
frá höfuðborginni Vilnius til
sextán áfangastaða í Evrópu all-
an ársins hring og notar til þess
níu flugvélar.
Í fyrra nam taprekstur félag-
ins um 200 milljónum króna, en
lítilsháttar hagnaður var af
starfseminni árið áður.
– bg
PÁLMI HARALDSSON Býður í litháenskt
ríkisflugfélag.
HB GRANDI, SÍF OG JARÐBORANIR
KOMA NÝ Í ICEX-15 Vægi nýrra félaga í
Úrvalsvísitölunni er 3,4 prósent.
N‡ félög í Úr-
valsvísitölu
Atorka Group og Og Vodafone eru
ekki gjaldgeng í Úrvalsvísitölunni
þar sem félögin uppfylltu ekki
skilyrðu um að birta allar fréttir á
ensku.
HB Grandi, SÍF og Jarðboranir
koma inn í Úrvalsvísitöluna frá
fyrsta júlí og koma í stað Atorku
Group og Og Vodafone. Samherji
var einnig í Úrvalsvísitölunni en
félagið mun hverfa af markaði
innan skamms.
Íslandsbanki, KB banki og Ís-
landsbanki vega sem fyrr mjög
þungt í Úrvalsvísitölunni og var
vægi þeirra samtals 66 prósent af
Úrvalsvísitölunni þann 31. maí
síðastliðinn. - dh
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
EIGN ÍSLENDINGS ERLENDIS
Erlendar eignir þjóðarinnar hafa nær þre-
faldast á þremur árum.
Erlendar
eignir aukast
Eignir Íslendinga erlendis námu í
mars síðastliðnum 1.172 milljörð-
um króna og hafa nær þrefaldast
á þremur árum. Skýrist þessi
eignaaukning að miklu leyti af út-
rás íslenskra fyrirtækja, segir á
vef greiningardeildar Íslands-
banka.
Íslendingar hafa fjárfest mikið
undanfarið í matvæla- og lyfjaiðn-
aði og fjármálaþjónustu erlendis
og var bein fjárfesting erlendis
275 milljarðar í lok mars, sem er
um þriðjungur af áætlaðri lands-
framleiðslu ársins 2005.
Íslandsbanki segir þó ekki ein-
ungis beinar erlendar fjárfesting-
ar aukast heldur hafi Íslendingar
einnig fjárfest talsvert í erlend-
um markaðsverðbréfum. Námu
þær eignir 341 milljarði króna í
mars síðastliðnum. - jsk