Fréttablaðið - 11.06.2005, Page 24

Fréttablaðið - 11.06.2005, Page 24
Hótelum í miðborg Reykjavíkur fjölgaði um eitt í gær þegar Rad- isson SAS 1919 var opnað í Póst- hússtræti. Hótelið er í húsinu þar sem höfuðstöðvar Eimskipafé- lagsins voru til margra áratuga og hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á húsakynnunum á síðustu misserum. Húsið var á sínum tíma reist undir skrifstofur skipafélagsins og hófust fram- kvæmdir við það árið 1919. Er nafn hótelsins dregið af þeirri staðreynd. Andri Már Ingólfsson í Heims- ferðum festi sér húsið þegar það var til sölu fyrir nokkrum árum með það fyrir augum að opna þar hótel. Er það nú orðið að veru- leika. „Hér er verið að fínpússa allt saman; skúra, ryksuga og bletta í og svona,“ sagði Gréta Björg Blængsdóttir, sölustjóri nýja hót- elsins, í gærmorgun. Öllu átti að vera lokið fyrir klukkan eitt í gærdag þegar fyrstu gestirnir voru bókaðir inn á hótelið. Var þar á ferðinni hópur franskra ferða- manna sem var að ljúka ferð um landið og ætlaði að eiga náðugan tíma á nýja og fína miðbæjarhót- elinu. Er vonandi að fólkið hafi sofið vel. Sjálf hefur Gréta Björg ekki varið nótt á 1919, hana hefur lang- að heim til sín eftir langan vinnu- dag en býst fastlega við að prófa að sofa hjá hótelinu á næstunni. 70 herbergi eru á hótelinu, í fjórðum verð- og stærðarflokk- um. Þykir það í minna lagi og því eru þegar uppi áform um stækk- un. Samliggjandi hús við Hafnar- stræti hafa verið keypt og senn verður hafist handa við að inn- rétta þar herbergi. Þegar upp verður staðið verða herbergin á 1919 orðin 88. Á hótelinu verður matsölustað- urinn Salt opnaður í næstu viku, sem og samnefndur bar. Verður gengið inn á veitingastaðina frá Pósthússtræti en í afgreiðslusali hótelsins sjálfs verður gengið frá Hafnarstræti og Tryggvagötu. 1919 hótelið tilheyrir alþjóð- legu Radisson SAS hótelkeðjunni en fyrir var Hótel Saga hluti af þeirri keðju. 24 11. júní 2005 LAUGARDAGUR JOHN WAYNE (1907-1979) lést þennan dag. TÍMAMÓT: HÓTEL 1919 Í MIÐBORGINNI TEKIÐ TIL STARFA „Talaðu lágt og hægt og ekki of mikið.“ – John Wayne var bandarískur kvikmyndaleikari. Hann er hvað þekktastur er fyrir hlutverk sín sem harðsvíraður kúreki. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Kristinn Sigurður Helgi Jóhannesson andaðist á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi mánudaginn 23. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Marguerite Angelique Le Sage De Fontenay Matthíasson lést á Landspít- ala Fossvogi föstudaginn 27. maí. Jarðar- förin fór fram í kyrrþey. Dallas Harms Steinthorsson lést laug- ardaginn 4. júní. Vikar Davíðsson, Hátúni 8, Reykjavík, lést í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, mánudaginn 6. júní. Gill Eiríkur Del’Etoile lést af slysförum á Flórída, Bandaríkjunum, þriðjudaginn 7. júní. Svavar Vemundsson, múrarameistari, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést á Land- spítalanum Hringbraut miðvikudaginn 8. júní. JAR‹ARFARIR 11.00 Rósa Magnúsdóttir frá Bíldudal verður jarðsungin frá Selfoss- kirkju. 11.00 Jófríður Ólafsdóttir, Staðarhrauni 3, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju. 14.00 Ásta Haraldsdóttir frá Garðs- horni, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju. 14.00 Sigurður Sigurjónsson verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju. 14.00 Guðlaug Halla Jónsdóttir, áður til heimilis að Skeljatanga 27, Mosfellsbæ, verður jarðsungin frá Víkurkirkju, Vík í Mýrdal. Í ANDDYRI HÓTELS 1919 Starfsfólk hótelsins 1919 í miðborg Reykjavíkur var tilbúið til starfa þegar hótelið opnaði í gær. Ekki löngu eftir opnun kom fyrsti hópur hótelgesta sem skráði sig inn. GRÉTA BJÖRG BLÆNGSDÓTTIR Sölustjóri nýja hótelsins hefur enn ekki fengið að njóta gestrisni hótelsins síns, en ætlar að prófa að gista þar fljótlega. Þennan dag árið 1962 tókst þremur mönnum að sleppa úr hinu illræmda fangelsi Alcatraz í Bandaríkjunum. Mennirnir gufuðu upp og aldrei spurðist til þeirra síð- an. Þótt sumir telji að um sé að ræða best heppnaðasta flótta frá fangelsinu, er mun líklegra að þeir hafi drukkn- að í köldu vatni San Francisco-flóa. Fjórum dög- um eftir flóttann fannst taska í flóanum með ljós- myndum sem tilheyrðu ein- um fanganum. Fangarnir byrjuðu á því að nota eldhús- áhöld til að kroppa burtu steypuna í kringum loftræst- ingu í klefum sínum og bjuggu til gervirist úr pappa til að fela gatið. Síðan út- bjuggu þeir gervihöfuð úr sápu og steypu og komu þeim þannig fyrir í rúmum sínum að verðirnir tækju ekki eftir að þá vantaði. Þeg- ar út var komið klifruðu þeir yfir hátt grindverk og stungu sér til sunds með flot- hringi sem þeir bjuggu til úr regnjökkum. Á þeim árum sem Alcatr- az var notað sem fangelsi reyndu 36 fangar að flýja. 11. JÚNÍ 1962 Clint Eastwood gerði síðar kvikmynd um flóttann. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1509 Hinrik VIII Englandskon- ungur giftist í fyrsta sinn. Það gerði hann fimm sinn- um í viðbót á ævinni. 1928 Flugfélag Íslands fer í fyrsta áætlunarflug sitt milli Reykjavíkur og Akureyrar á sjóflugvélinni Súlunni. 1935 Auður Auðuns lýkur lög- fræðiprófi frá Háskóla Ís- lands fyrst kvenna. Hún varð síðar fyrst kvenna borgarstjóri í Reykjavík og ráðherra. 1955 Á áttunda tug manna látast og mikill fjöldi slasast þeg- ar tveir bílar rekast á og keyra inn í áhorfenda- þvögu á Le Mans kappakstursbrautinni í Frakklandi. Flóttinn frá Alcatraz Elskulegur sonur minn og bróðir Gill Eiríkur DeL'Etoile lést af slysförum á Flórída, USA, þriðjudaginn 7. júní. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Eiríksdóttir DeL'Etoile, Linda Stefanía DeL'Etoile. Elskulegur maður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Ólafur E. Eggertsson Móabarði 16, Hafnarfirði, verður jarðsunginn mánudaginn 13. júní kl. 13 frá Hafnarfjarðar- kirkju. Ingveldur Ingvadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. AFMÆLI Tryggvi Gíslason, fyrrver- andi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er 67 ára. Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra er 62 ára. Kristinn T. Haraldsson (Kiddi Rót), rótari og veit- ingamaður í Hveragerði, er 51 ára. Sofið á gömlu forstjóraskrifstofunni ÁNÆGÐUR EIGANDI Andri Már Ingólfsson var mjög ánægður með nýja hótelið í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FÆDDUST fiENNAN DAG 1864 Richard Georg Strauss tónskáld. 1910 Jacques-Yves Cousteau, sjávarlíffræðingur og kvik- myndagerðarmaður. 1918 Nelson Mandela, fyrr- verandi forseti Suður-Afríku. 1935 Gene Wilder leikari. 1946 John Lawton, söngvari Uriah Heep.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.