Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 29
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
-
9
0
4
0
3
7
9
agstæð sumarhúsalán
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað?
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt sumar-
húsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Lánið
getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til
framkvæmda er lánað allt að 75% af byggingar-
kostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar
nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
www.frjalsi.is
5 ár 18.850 19.100 19.560 19.800
10 ár 10.580 10.850 11.350 11.610
15 ár 7.880 8.170 8.710 8.990
* Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00%
Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
60%veðsetningarhlutfall
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 11. júní,
162. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.01 13.27 23.55
AKUREYRI 1.55 13.12 0.33
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir á stóran
Land Cruiser-jeppa sem hún á oft í
basli með að leggja í miðborginni.
Hún er í borgarstjórnarflokki sjálf-
stæðismanna og hefur mikinn áhuga á
samgöngumálum.
„Já, ég er jeppadellukerling og það eru
margar ástæður fyrir því. Mér finnst gott
að vera á stórum bíl til að hafa yfirsýn og
svo er ég mikið í veiði og þar er jeppinn
alveg nauðsynlegur. Maður þarf að keyra
heilmikið upp með ánum og ég hef slæma
reynslu af að vera á ómögulegum bíl í veiði-
ferð. Sú ferð fór mest í labb á milli þannig
að fiskeríið var ekki mikið í það skiptið.“
Þorbjörg á Landcruiser 90 jeppa á
stækkuðum dekkjum sem hún keypti nýjan
fyrir ári. Hún er þokkalega ánægð með bíl-
inn. „Það er samt eitthvað. Mér finnst ég
ekki alveg komin heim,“ segir hún hlæjandi
og hyggst skoða bílamarkaðinn betur í
framtíðinni. Hestöfl skipta hana þó ekki
meginmáli heldur að bíllinn sé flottur og
snöggur upp.
„Ég vil hafa góða tónlist og græjurnar
sem fylgdu þessum voru alveg nógu góðar
fyrir mig. Svo verð ég að mæla með síma-
kerfi sem maðurinn minn gaf mér í bílinn.
Maður setur bara símann í samband og
talar alveg handfrjálst. Það er hægt að
klára ýmis mál þannig án þess að missa ein-
beitinguna við aksturinn.“
Þorbjörg vinnur sem ráðgjafi mennta-
málaráðherra í skólamálum og er að spá í að
taka slaginn í prófkjöri sjálfstæðismanna í
haust, og þá að komast í öruggt í sæti. „Ég
hef mikinn áhuga og metnað í skólamálum,
en af því að við erum að tala um bíla liggur
kannski beinna við að nefna samgöngumál-
in, sem ég hef líka brennandi áhuga á. Mér
finnst umferðarþungi í borginni allt of mik-
ill miðað við stærð og þar er mikilla úrbóta
þörf, ekki síst þurfum við mislæg gatnamót.
Ég vinn í miðbænum og það getur verið
ótrúlega erfitt að komast í stæði á stærri
bílum og bílastæðahúsin eru allt of þröng.
Það er líka allt of mikið af stöðumælum, við
þurfum að hafa allt öðruvísi kerfi. Nú er allt
orðið rafrænt og enginn með klink þannig
að þetta er alveg úrelt.“ ■
Erfitt að vera á stórum
bíl í miðbænum
bilar@frettabladid.is
Bílainnflutningur nam 7.560 millj-
ón króna á fyrstu fjórum mánuð-
um ársins samkvæmt hálf fimm
fréttum KB Banka. Innflutnings-
verðmæti bifreiða jókst um 75,5
prósent á föstu gengi. Síðast liðið
ár var metár í bílainnflutningi ef frá
er talið skattlausa árið 1987. Miðað
við aukningu á fyrstu fjórum mán-
uðum ársins stefnir allt í að bíla-
innflutningur í ár verði enn
meiri.
ADAC Systurfélag FÍB, í
Þýskalandi, hefur
árekstursprófað tvo af
ódýrustu smábílunum í Evrópu
samkvæmt sömu aðferðum og
kröfum og EuroNCAP beitir eins
og sagt er frá á heimasíðu FÍB,
fib.is. Nýi smábíllinn frá
Volkswagen sem er smíðaður í
Brasilíu fær fjórar stjörnur af fimm
en Renault/Dacia Logan fær hins
vegar bara þrjár. VW Fox, arftaki
bæti VW Polo og VW Lupo stóð
sig vel í framan á árekstri og fékk
27,4 stig af 34 mögulegum.
Toyota MR2, Toyota Celica og
Previa verða allar teknir út af evr-
ópskum bílamarkaði frá og með
næsta ári samkvæmt Automotive
News. Ástæðan er sú að Toyota
ætlar að einbeita sér að gerðum
sem eru hannaðar og framleiddar í
Evrópu. Einnig spilar inn í að allar
þrjár bílagerðirnar hafa ekki selst í
stórum upplögum. Í allri Evrópu
árið 2005 seldust 6.600 Celicur,
5.400 Previur og 2.900
MR2.
Hyundai Tucson sigraði í
sínum flokki, flokki jeppa
og jepplinga, í TQA gæða-
könnun Strategic Vision eins og
kemur fram á heimasíðu B&L, bl.is.
Könnunin er gerð árlega og mælir
meðal annars ánægju kaupenda
nýrra bíla hvað eiginleika bílsins
varðar og þægindi. Tucson hlaut
879 stig, Chevrolet Equinox var í
öðru sæti með 860 stig og Toyota
RAV4 í því þriðja með 859 stig.
Meðaltalið í flokknum var 847 stig.
Þorbjörg fyllti Land Cruiserinn af blómum fyrir helgina því nú á að gróðursetja.
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Af hverju er það
sem ég er að leita að
alltaf á síðasta
staðnum sem ég
leita á?!
Glæsileg bílasýning fyrir norðan
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is