Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 32
Sólarvörn
Á ferðalögum erlendis þarf sólarvörnin alltaf að vera við hendina. Sérstak-
lega þarf að passa ungbörn í sólinni og hafa þarf í huga að þau geta
brunnið jafnvel þó að það sé skýjað.[ ]
Ilmur af rósum og víni
Í Móseldalnum. Svæðið allt geymir ótal menningarsögulegar minjar frá tímum Rómverja.
Iceland Express hefur hafið
flug til nýs áfangastaðar,
Frankfurt Hahn, í einu feg-
ursta héraði Þýskalands.
Flogið er á þriðjudögum, mið-
vikudögum og laugardögum.
Þegar vélin lækkar flugið til lend-
ingar á Frankfurt Hahn blasa lítil
sveitaþorp og akrar við hvert sem
litið er. Völlurinn er í héraðinu
Hunsrück sem afmarkast af fljót-
unum Mósel, Rín, Nahe og Saar er
falla um einstaklega frjósama
dali. Vínviðarekrur uppi um hlíð-
ar setja sterkan svip á umhverfið
og í Rínardal standa kastalar frá
miðöldum vörð á brekkubrúnum.
Heillandi smábæir með ótal hótel-
um og öðrum byggingum í fornum
stíl bjóða ferðamanninn velkom-
inn og höfugan ilm af rósum og
víni leggur fyrir vitin. Héraðið er
einn samfelldur aldingarður.
Hahn-flugvöllur hefur verið í
notkun frá árinu 1947 en fram til
ársins 1997 var hann einungis not-
aður til fragflugs. Einn af kostum
hans er smæðin. Varla er hægt að
villast í flugstöðvarbyggingunni
og einkar auðvelt er að komast frá
vellinum út á vegina, sem liggja
til allra átta. Landsvæðið er líka
upplagt til hjóla- og gönguferða
því vinsælustu ferðamannastaðir
Þýskalands eru innan seilingar.
Völlurinn er miðja vegu milli
borganna Frankfurt og Lúxem-
borgar og frá honum er stutt til
landamæra Frakklands og
Belgíu. Þá eiga þeir sem hyggja
á ferðir til fjarlægari staða eins
og Miðjarðarhafsins auðvelt
með að velja sér vegi og bruna
eftir þeim í suðurátt. En þeir
sem á annað borð eru komnir til
Frankfurt Hahn ættu samt ekki
að láta undir höfuð leggjast að
heimsækja Móseldal og Rínar-
dal. Þeir eru eins og klipptir út
úr ævintýrum. ■
Costa del Sol
M
all
or
ca
Sóla
rlottó
Síð
ustu
sætin í
sólina í júní og júlí.
• Þú velur áfangastað og ferðadag
og tekur þátt í lottóinu
um hvar þú gistir.
• Viku fyrir brottför
staðfestum
við gististaðinn.
Sama sólin, sama fríið
en á verði fyrir þig.
*Innifalið er flug, gisting
í 7 nætur, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
á mann miðað við 2 eða 4
í stúdíói eða íbúð.
Enginn barnaafsláttur.
Spilaðu með!
Krít
27. júní, 4. 25. júlí
22. og 29. ágúst
Mallorca
15. 29. júní, 6. 13. júlí
17. og 24. ágúst
Costa del Sol
16. 23. 30. júní
7. 21. júlí og 18. ágúst
Portúgal
20. 27. júní, 4. 11.18. júlí
15. og 22. ágúst
Tvö sumarhús
á mjög
fallegum stað
í Eyjafirðinum.
Til leigu í
lengri eða
skemmri tíma.
Vel staðsett.
Upplýsingar
í síma
466 – 1961.
Uppfærð landakort
LANDMÆLINGAR ÍSLANDS HAFA
ENDURÚTGEFIÐ NOKKUR VINSÆL
FERÐAKORT.
Kortin eru í fyrsta lagi heildarkort af
landinu í mælikvarðanum 1:500 000,
með yfir 3000 örnefnum, vegum
landsins, vega-
lengdum og vega-
númerum, auk
upplýsinga um
ferðaþjónustu. Í
öðru lagi er sér-
kort af Suðvestur-
landi er nær yfir
Reykjanesið, aust-
ur fyrir Selfoss og
upp fyrir Akranes.
Auk akvega sýnir
það fjölda áhugaverðra göngu- og
reiðleiða. Það er í mælikvarðanum
1:75 000. Í þriðja lagi gefa Landmæl-
ingar út þrjú landshlutakort í mæli-
kvarðanum 1:250 000. Þau nefnast
Vestfirðir og Norðurland, Vesturland
og Suðurland og Norðaustur- og
Austurland. Þar fæst góð heildarsýn
yfir vegi og þekktar ferðamannaslóðir.
Kortablöðin eru í handhægu broti.
Sigling á Rín er toppurinn á tilverunni.
Frankfurt Hahn er vinalegur völlur úti í sveit.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
AR
I