Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 55
LAUGARDAGUR 11. júní 2005 39
Frönsku meistararnir í Lyon fráFrakklandi hafa neitað kauptil-
boði Chelsea í miðjumanninn
Michael Essien
og segja að
hann hafi skrif-
að undir fram-
lengdan samn-
ing við félagið
til ársins 2009.
Essien þessi
hefur verið
mjög eftirsóttur
af liðum á
Englandi, sem og víðar, en frönsku
meistararnir eru ekki á þeim bux-
unum að láta hann fara. „Við viljum
halda leikmanninum hérna hjá
okkur í lengstu lög og aðeins risa-
tilboð í hann fær okkur til að skipta
um skoðun,“ sagði Gerard Houlli-
er, knattspyrnustjóri Lyon, sem
vinnyr hörðum höndum að því að
fá Milan Baros til liðs við félagið
þessa dagana.
Birmingham hefur gengið frákaupum á finnska framherjan-
um Mikael Forssell frá Chelsea og
er kaupverðið talið vera um þrjár
milljónir punda.
Everton hafði lengi
verið á höttunum
eftir leikmannin-
um, en talið er að
þeir hafi hætt við
að kaupa hann eft-
ir að hann varð
fyrir því óláni að
meiðast á hné á
dögunum. Forssell
er öllum hnútum kunnugur hjá
Birmingham, því hann átti frábært
tímabil með liðinu í hitteðfyrra og
skoraði þá 19 mörk fyrir þá þegar
hann var þar á lánssamningi.
Manchester United hefur núgengið formlega frá samningi
sínum við hollenska markvörðinn
Edwin van der Saar og hafa stað-
fest kaup
hans frá Ful-
ham fyrir
upphæð
sem talin er
vera í kring
um 2,5 millj-
ónir punda.
Samningur-
inn er til
tveggja ára
og mun taka
gildi fyrsta
júlí. „Ég er
mjög spenntur fyrir að leika með
Manchester United, enda eru þeir
eitt vinsælasta knattspyrnufélag í
heiminum. Ég get ekki beðið eftir
að hitta nýju félaga mína í liðinu
og mér sýnist sem næsta ár verði
það mest spennandi á ferli mínum
hingað til,“ sagði markvörðurinn.
Spænski æfingaökumaðurinnPedro de la Rosa náði bestum
tíma á fyrstu æfingunni fyrir Montr-
eal-kappaksturinn í
formúlu eitt um
helgina. McLaren
liðið var í miklu
stuði á æfingunni
og Kimi Raikkönen
var með þriðja
besta tímann.
Michael
Schumacher náði
fimmta besta tím-
anum á æfingunni, en hann gerir
sér eflaust ágætar vonir um að
sigra í keppninni, því enginn hefur
sigrað oftar en hann í Montreal.
Daniel Levy, stjórnarformaðurTottenham Hotspurs, hefur gef-
ið það út að félagið ætli ekki að
fara í formlega málssókn á hendur
Chelsea fyrir
að standa
ólöglega að
því að fá yfir-
mann knatt-
spyrnumála
hjá liðinu
Frank
Arnesen til
liðs við sig.
„Þó svo að við
vitum að ef
við förum
með málið fyrir enska knattspyrnu-
sambandið, myndi það örugglega
hafa í för með sér að stig yrðu
dregin af Chelsea, höfum við
ákveðið að fara ekki þá leið í mál-
inu, heldur ætlumst við til þess að
Chelsea bæti okkur brotthvarf hans
að fullu,“ sagði Levy í gærkvöld, en
liðin funda nú stíft til að reyna að
finna lausn á málinu, sem væntan-
lega verður í formi peninga og af
þeim virðist vera nóg hjá Chelsea.
ÚR SPORTINU
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun LOKAÐ
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
-20%
Marlboro sett
bekkur, borð og tveir stólar án sessu
Verð : 105.000.-
Verð nú á öllu settinu:
31.200.-
Stakur bekkur:
84.000.-
-20%
Stækkanlegt borð (120cm x 120cm + 60cm)
og sex staflanlegir stólar án sessu
Verð : 83.400.-
Verð nú:
66.720.-
-20%
Átthyrnt borð (120cm x 120cm)
og fjórir klappstólar án sessu
Verð : 43.500.-
Verð nú:
34.800.-
Falleg garðhúsgögn
úr gegnheilu tekki
Allar sessur eru með rennilás (auðvelt er að taka áklæðið af og má þvo á 50°)
Kanada-kappaksturinn í Formúlu eitt er á dagskránni um helgina:
Eykur Fernando Alonso forskoti› sitt?
FORMÚLA 1 Um helgina heldur For-
múlu 1 kappaksturinn áfram en
keppt verður í Kanada. Spánverj-
inn Fernando Alonso hjá Renault
hefur tekið afgerandi forystu eft-
ir að síðustu keppni lauk á draum-
kenndan hátt fyrir hann.
Hans helsti keppinautur, Kimi
Räikkönen á Mercedes, var með
örugga forystu uns bilun í hjóla-
búnaði varð til þess að honum
tókst ekki einu sinni að ljúka
keppni og ná þannig í nokkur stig.
Þess í stað tryggði Alonso sér
stigin tíu og 32 stiga forystu á
Räikkönen og Jarno Trulli,
Toyota.
„Það er mikið verk að vinna á
mörgum sviðum,“ sagði Michael
Schumacher, sem er 43 stigum á
eftir Alonso og hefur ekki fengið
nema 16 stig og er í 8. sæti í
keppni ökumanna.
„Ég reyni alltaf að gera mitt
besta en það er meira að segja
ekki alltaf nóg,“ sagði
Schumacher sem hefur þó ekki
gefið titilvonir upp á bátinn.
„Það er langur vegur frá því,“
sagði hann en Schumacher hefur
ekki þurft að bíða jafn lengri eftir
sigri og nú síðan 1993. Best í ár
hefur hann náð 2. sætinu sem
hann afrekaði í San Marínó.
Austurríkismaðurinn Christian
Klien mun taka ökuþórssæti Vit-
antonio Liuzzi hjá Red Bull en
ákveðið var fyrir tímabilið að þeir
myndu deila með sér keppnum
ársins. - esá
FERNANDO ALONSO Hefur 32 stiga for-
skot í stigakeppni ökumanna og er
kominn vel á veg með að tryggja sér
Heimsmeistaratitilinn í fyrsta sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS/GETTY