Fréttablaðið - 11.06.2005, Side 59
SYSTEM OF A DOWN:
MEZMERIZE
NIÐURSTAÐA: System of a Down nær að gera
hið ótrúlega og standast ótrúlegar væntingar
fólks með því að gefa út aðra frábæra plötu.
Lög Mezmerize eru sterk, textasmíðar því mið-
ur lakari.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
LAUGARDAGUR 11. júní 2005
DSC-T7 & 512 MB minniskort
Stafræn myndavél
• 3x optical Carl Zeiss linsa
• 5,1 milljón pixlar
• 2,5" skjár
4.995 krónur á
mánuði vaxtalaust*
59.940 krónur staðgreitt
Sumartilboð í Sony Center
512 MB minniskort fylgir!
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
512 MB minniskort
að verðmæti 10.995,-
fylgir með!
DSC-S90 & 512 MB minniskort
Stafræn myndavél
• 3x optical Carl Zeiss linsa
• 4,1 milljón pixlar
• 2,5" skjár
3.495 krónur á
mánuði vaxtalaust*
41.940 krónur staðgreitt
DSC-P200 & 512MB minniskort
Stafræn myndavél
• 3x optical Carl Zeiss linsa
• 7,2 milljón pixlar
• 2" skjár
4.495 krónur á
mánuði vaxtalaust*
53.940 krónur staðgreitt
System of a Down mætti eins og
sleggja í kjálka almennings með
plötu sinni Toxicity, árið sem turn-
arnir féllu. Tónlist sem var hárrétt
fyrir þá ringulreið sem átti sér stað
í heiminum. Ekkert meikaði sens
fyrir neinum, og þarna voru allt í
einu mættir menn sem gagnrýndu
bandarískt þjóðfélag, öskrandi vits-
munalega texta. Sjaldan hefur rokk-
sveit komið sér fyrir í megin-
straumnum með slíkum þunga. Árið
eftir fylgdi „afgangsplatan“ Steal
This Album! sem innihélt fleiri
ótrúleg lög og sýndi fram á hversu
mikill sprengikraftur bjó í sveit-
inni.
Eftir þriggja ára bið snýr sveitin
aftur með Mezmerize, og mun svo
gefa út aðra plötu í lok árs. Það ættu
að vera góðar fréttir að sveitin er
enn beitt, enn undir áhrifum frá
armenskri þjóðlagatónlist og stígur
bensínið í botn.
Nýja platan er mjög góð, en það
sem kemur mest á óvart er hversu
mistækur Serj Tankian söngvari er
í textasmíðum. Stundum hittir hann
naglann á höfuðið, en þess á milli
lætur hann frá sér setningar á borð
við „my cock is much bigger than
yours“ og þann ömurlega texta sem
er Radio/Video. Slík mistök gera
það að verkum að þegar maðurinn
reynir að vera pólitískur er erfitt að
taka hann eins alvarlega. Sem er
synd, því hann hefur oftast eitthvað
gáfulegt að segja.
System of a Down heldur krúnu
sinni sem athyglisverðasta þung-
arokksveit dagsins í dag með Mez-
merize. Birgir Örn Steinarsson
Anna›
sleggjuhögg