Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 60
Sá tímamótaviðburður verður í
dag að stór sýning á verkum í
eigu Listasafns Íslands verður
opnuð í húsakynnum Listasafns
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Sýningin heitir „Listasafn Ís-
lands – úrval verka frá 20. öld“
og á henni eru verk eftir braut-
ryðjendur fjögurra þátta í lista-
sögu landsins á síðustu öld.
„Listasafn Íslands er með
þessari sýningu að heimsækja
Kjarvalsstaði með úrval verka
úr safneigninni,“ segir Ólafur
Kvaran sýningarstjóri, sem jafn-
framt er safnstjóri Listasafns Ís-
lands.
„Aðdragandinn að þessari
heimsókn er sá að við tökum virk-
an þátt í Listahátið með sýningu á
Dieter Roth sem er á þeim sýning-
artíma þegar venjan hefur verið
sú að halda hér sumarsýningu á
íslenskri myndlist sem einkum er
ætluð erlendum ferðamönnum.
Það er út frá þessum kringum-
stæðum sem við ákváðum að
heimsækja Kjarvalsstaði og halda
þessa sýningu þar með úrval
verka úr safneigninni.“
Ólafur segist vonast til þess
að hægt verði að þróa áfram
samstarf þessara tveggja
stærstu listasafna landsins.
„Með því að sameina kraftana
er hægt að ráðast í mjög stór og
víðtæk sýningarefni, og það er
mjög spennandi. Ég er þess full-
viss að það verður framhald á
slíkri samvinnu.“
Á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um verða fjórir lykilþættir ís-
lenskrar listasögu kynntir. Sýnd
eru verk eftir brautryðjendur
hins rómantíska landslagsmál-
verks, fulltrúa hins frásagnar-
kennda expressjónisma á fjórða
áratugnum, abstraktlistarinnar á
sjötta áratugnum og konseptlist-
ar sjöunda áratugarins.
„Þessi sýning er sviðsetning á
fjórum köflum í íslenskri lista-
sögu, sem spanna nánast alla 20.
öldina,“ segir Ólafur. „Sýningin
er ekki hugsuð sem heildaryfirlit
yfir sögu íslenskrar myndlistar á
20. öld, enda myndi sú saga ekki
rúmast á Kjarvalsstöðum. En
þetta er stór og víðtæk sýning
með málverkum og höggmynd-
um, ljósmyndum og vídeó.“ ■
44 11. júní 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
... afmælistónleikum Jazzvakn-
ingar sem verða haldnir á Björt-
um dögum í Hafnarfirði annað
kvöld.
... síðasta tangókvöldi vetrarins
með Tangósveit lýðveldisins í
Iðnó, sem verður haldið annað
kvöld.
... tónleikum Jóhanns Friðgeirs
Valdimarssonar stórtenórs í há-
deginu á mánudaginn í Hafnar-
borg, Hafnarfirði.
Eva Rún Þorgeirdóttir og Halla Ólafsdóttir
hlutu fyrstu verðlaun í dansleikhússamkeppn-
inni 25 tímar í Borgarleikhúsinu á fimmtudag-
inn. Þær hlutu verðlaunin, sem námu 250
þúsund krónum, fyrir verk sitt „Beðið eftir
hverju“.
Önnur verðlaun hlaut Peter Anderson fyrir
verk sitt Twelve points, en þriðju verðlaunin
hlutu þær Halldóra Geirharðsdóttir, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir og Elma Lísa Gunnarsdóttir
fyrir verkið Örlög systra.
Áhorfendasalur Borgarleikhússins var fullskip-
aður og komust færri að en vildu, en áhorf-
endur völdu einnig eitt verk til verðlauna. Það
voru þau Álfrún Örnólfsdóttir og Friðrik Frið-
riksson sem hlutu þau fyrir verkið 9:50 alla
virka daga. Titillinn vísar þar til morgunleikfimi
Ríkisútvarpsins sem er einmitt á þessum tíma
alla virka daga.
Samkeppnin var nú haldin í þriðja sinn og að
vanda í samvinnu við SPRON sem frá upphafi
hefur stutt keppnina dyggilega. Verkin níu
sem kepptu til úrslita voru valin úr á fjórða
tug hugmynda sem bárust í keppnina.
Kl. 14.30
Dansinn og óperan mætast, rekast á og
víxlast í verkinu D&D con fuoco strin-
gendo eftir Karen Maríu Jónsdóttur,
sem Karen María sýnir á Hlemmi ásamt
dönsurunum Lovísu Gunnarsdóttur og
Aðalheiði Halldórsdóttur og óperusöng-
konunni Sibylle Köll.
menning@frettabladid.is
Sigruðu í dansleikhúskeppni
SKÓGARHÖLLIN Sýning á úrvali verka frá 20. öld verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag.
Á sýningunni má meðal annars sjá þetta verk eftir Jóhannes Kjarval.
Í heimsókn á
Kjarvalsstöðum
!
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17 UPPS,
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPS.,
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20,
Mi 15/6 kl 20,
Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20 - UPPS.
Þri 14/6 kl 20 - Styrktarsýning,
Fi 16/6 kl 20,
Lau 18/6 kl 20,
Su 19/6 kl 20
Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Le ik l i s t og söngur
Kennt er daglega frá kl. 10-16.
Gæsla frá kl. 8:45 fyrir yngri hópinn.
Skráning í Borgarleikhúsinu
Sími 568 8000 og á www.borgarleikhus.is
S u m a r n á m s k e i ð í B o r g a r l e i k h ú s i n u
Leikfélag Reykjavíkur – Sönglist
Listabraut 3 • 103 Reykjavík • www.borgarleikhús.is
L e i k g l e ð i • S j á l f s t r a u s t • S k ö p u n a r k r a f t u r • H r e y f i n g • O r k a
Leikistar- og söngnámskeið fyrir börn og
unglinga í Borgarleikhúsinu í sumar.
Kennt er í tveim aldurshópum:
8 -10 ára og 11 - 13 ára
Kennt verður í Borgarleikhúsinu dagana:
20. júní -24. júní
27. júní -1. júlí
4. júlí - 8. júlí
11. júlí - 15. júlí
18. júlí -22. júlí
25. júlí -29. júlí