Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 1
Handteknir vegna
gruns um ólöglegan
vopnabur›
FORGOTTEN LORES
▲
FÓLK
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
AFGANISTAN, AP Um 180 afganskir
fangar í Guantanamo eru komnir í
hungurverkfall til að mótmæla
illri meðferð í fangelsinu og knýja
á um lausn sína, segja tveir fang-
ar sem var sleppt í gær.
„180 afganskir fangar borða
hvorki né drekka,“ sagði Habir
Russol, sem var fluttur frá Guant-
anamo á mánudag og sleppt í
heimalandi sínu Afganistan í gær.
„Sumir fanganna segjast hafa ver-
ið beittir harðræði í yfirheyrslum.
Sumir segjast saklausir. Þeir mót-
mæla því að hafa verið í haldi í
fjögur ár og vilja fá frelsi á ný,“
sagði hann.
Russol og Moheb Ullah Bor-
ekzai, sem var sleppt með honum,
segja hungurverkfallið hafa haf-
ist fyrir tveimur vikum.
Neil Koslowe, bandarískur
verjandi tólf Kúveita sem er
haldið í Guantanamo, segir
fjölda fanga hafa skýrt sér frá
því þegar hann heimsótti Guant-
anamo fyrir nokkru að fjöldi
manna hefði farið í hungurverk-
fall. ■
Tveir fyrrum fangar segja 180 Afgana neita mat og drykk:
Hungurverkfall í Guantanamo
HÆGVIÐRI EÐA HAFGOLA ÁFRAM.
Yfirleitt bjart á landinu og fremur hlýtt í
veðri. Hætta á þokubökkum með ströndum.
VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
21. júlí 2005 - 195. tölublað – 5. árgangur
Blöð, lekar, morð
Nú situr þekktur bandarískur blaða-
maður í fangelsi fyrir að
neita að rjúfa trúnað við
heimildarmann, sem
óskaði nafnleyndar.
Í DAG 18
FH úr leik í meistaradeildinni
Lið Neftchi frá Aserbaídsjan lagði í
gær FH í Kaplakrika og komst þar með
áfram í 2. umferð forkeppni
meistaradeildar Evrópu en
FH-ingar sitja eftir með
sárt ennið. Tapið er
mikil vonbrigði fyrir
íslenska
knattspyrnu.
ÍÞRÓTTIR 42
Vandlátur flottræfill
Magnús Friðrik Ólafsson er afar lið-
tækur í eldhúsinu og er hinn eini sanni
Grill-Guðjón á sínu heimili. Hann er
líka í matarklúbbi sem kallast Flottræf-
ilsfélagið en það gengur út á að víkka
sjóndeildarhringinn þegar kemur að
matargerð. Allar sósur eru á bannlista
hjá honum og líka kjötfars.
Hann lumar á
girnilegri
grillupp-
skrift.
MATUR 36
Gallabuxur vi›
öll tækifæri
ÁSGEIR KOLBEINSSON:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● tíska ● heimili
▲
Pólskir verkamenn á Akranesi
fá tæpar 300 krónur á tímann
ATVINNUMÁL „Þetta er grafalvarlegt
að mínu viti enda þýðir þetta að
vandamál sem hefur verið nokkuð
einskorðað við framkvæmdir á há-
lendi Íslands grefur nú um sig í
þéttbýlinu,“ segir Vilhjálmur Birg-
isson, formaður Verkalýðsfélags
Akraness.
Sputnikbátar á Akranesi hefur
fengið til sín fimm pólska verka-
menn til starfa í þrjá mánuði gegn-
um erlenda leigumiðlun og greiðir
leigumiðluninni 2,1 milljón króna
fyrir vinnu mannanna.
Lögmaður fyrirtækisins segir
ekkert athugavert við samning
mannanna eins og Vilhjálmur vill
meina en hann ætlar að leggja fram
kæru á hendur fyrirtækinu hjá
sýslumanninum á Akranesi í dag.
Fullyrðir hann að umræddir Pól-
verjar starfi 250 klukkustundir í
hverjum mánuði. „Þessir menn hafa
engin atvinnuleyfi og forráðamenn
vísa í dóminn sem féll vegna er-
lendra starfsmanna GT verktaka
við Kárahnjúka. Á meðan hafa aðrir
atvinnurekendur komið að máli við
mig og bíða spenntir eftir niður-
stöðu þess hvort þetta sé löglegt og
eðlilegt því þá hyggjast þeir leika
sama leik. Það sé eina leiðin til að
vera samkeppnishæfir enda eru
umræddir Pólverjar með rúmlega
70 þúsund krónur á mánuði. Það
þýðir tæplega 300 krónur á tímann
og ef komist verður að þeirri niður-
stöðu að þetta sé löglegt og eðlilegt
munu örlög fjölmargra íslenskra
verkamanna verða ráðin.“ Vilhjálm-
ur segir það aðför að íslensku sam-
félagi verði þetta látið viðgangast.
Verkalýðshreyfingin hefur
sent Vinnumálastofnun erindi
vegna þessa máls en Gissur Pét-
ursson, forstjóri hennar, hafði
ekki yfirfarið öll gögn málsins
þegar í hann náðist. „Við leggj-
umst yfir gögnin núna og skoðum
hvað þarna er á ferð. Í fljótu
bragði virðist vera álitamál hvort
þetta sé hefðbundin launavinna
eða einhvers konar þjónustuvið-
skipti en þetta er keimlíkt öðrum
málum sem valdið hafa ágrein-
ingi.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður Sputnikbáta segir allt með
felldu við samning Pólverjanna.
„Þarna er um hefðbundinn þjón-
ustusamning að ræða sem er
ekkert öðruvísi en aðrir slíkir“.
-aöe
40
SKÁTAR Á TRÖNUM Þeir Hákon og Brynjar í skátafélaginu Kópum litu niður frá vinnu sinni í gær en þeir voru í óða önn að byggja hlið
fyrir félagssvæði sitt. Landsmót skáta stendur nú yfir við Úlfljótsvatn, þar eru þegar saman komnir um þrjú þúsund skátar. Næstu daga
mun fjölga verulega í tjaldbúðum skátanna sem verður stærsta þorp á Suðurlandi þessa viku sem mótið stendur yfir. Sjá síðu 12
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
VEÐRIÐ Í DAG
Verkal‡›sfélag Akraness leggur fram kæru á hendur Sputnikbátum í dag vegna starfa fimm Pólverja sem
forma›ur félagsins segir a› fái tæpar 300 krónur í laun á tímann. Ágreiningur er um hvort mennirnir
stundi hef›bundna launavinnu e›a starfi samkvæmt samningi um fljónustuvi›skipti.
HÖFNIN Á AKRANESI Sputnikbátar notast
við erlent vinnuafl og líta aðrir atvinnurek-
endur öfundaraugum til hennar enda
greiðir hún sem nemur rúmum tveimur
milljónum króna fyrir fimm verkamenn í
þrjá mánuði.
BOREKZAI OG RUSSOL Mönnunum tveimur var sleppt í gær
Kjarasamningur felldur:
Ósáttir vi›
starfsmati›
KJARASAMNINGAR Félagar í Starfs-
mannafélagi Kópavogs felldu kjara-
samning við bæinn með 55 prósent-
um atkvæða í kosningu þar sem 20,8
prósent félagsmanna kusu.
„Þetta er sami samningur og
önnur félög hafa verið að sam-
þykkja,“ segir Jófríður Hanna Sig-
fúsdóttir, formaður félagsins. „Það
virðist vera sem félagar Starfs-
mannafélags Kópavogs miði sig við
Reykjavík,“ segir Jófríður og telur
að óánægja með starfsmat hafi orð-
ið til þess að samningurinn var
felldur. Starfsmatið færir bæjar-
starfsmönnum í Kópavogi lakari
kjör en borgarstarfsmönnum.
Jófríður ræddi við formann
launanefndar sveitarfélaga í gær og
segir líklegt að vegna fría gerist
ekkert í málinu fyrr en eftir versl-
unarmannahelgi. -bþg