Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 4

Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,97 65,29 113,12 113,66 78,46 78,9 10,513 10,575 9,837 9,895 8,332 8,38 0,5754 0,5788 94,09 94,65 GENGI GJALDMIÐLA 20.07.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 109,809 4 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Dýralæknar vilja Landbúnaðarstofnun í bænum: Vilja ekki fara á Selfoss LANDBÚNAÐUR Allir starfsmenn embættis yfirdýralæknis eru and- vígir því að ný Landbúnaðarstofn- un verði staðsett á Selfossi. Land- búnaðarstofnun er ný stofnun sem heyrir undir Landbúnaðar- ráðuneytið og mun taka til starfa í ársbyrjun 2006. Yfirdýralæknir og nokkrar smærri stofnanir munu heyra undir nýju stofnun- ina, en starfsmenn yfirdýralækn- is verða meirihluti starfsmanna hennar. 36 af 41 starfsmanni yfirdýra- læknis skrifuðu bréf til ráðherra í síðasta mánuði og mótmæltu stað- setningunni. Eftir því sem Frétta- blaðið kemst næst áttu fulltrúar starfsmanna í kjölfarið fund með Guðna Ágústssyni landbúnaðar- ráðherra þar sem hann lýsti megnri óánægju með tilurð og innihald bréfsins. Í bréfinu segja starfsmennirn- ir staðsetningu Landbúnaðar- stofnunar kollvarpa fyrirætlun- um embættisins, en í mörg hafi verið stefnt að því að sameina þá starfsmenn sem gegna þjónustu og stjórnsýslu á höfuðborgar- svæðinu. Ekki náðist í Guðna í gær. - grs Bush velur íhalds- mann í Hæstarétt John G. Roberts, sem Bandaríkjaforseti útnefndi dómara í Hæstarétti Banda- ríkjanna í gær, er sag›ur ver›a oddama›ur íhaldsmanna í dómstólnum. BANDARÍKIN, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti útnefndi John G. Roberts í embætti hæstaréttar- dómara, en þetta er í fyrsta sinn í áratug sem nýr maður er skipaður í Hæstarétt Bandaríkjanna. Repúblikanar fögnuðu valinu á Roberts en demókratar eru lítt hrifnir, enda hefur Roberts skap- að sér orðstír fyrir að vera mjög íhaldssamur. Staðfesti öldungadeild Banda- ríkjaþings, þar sem repúblikanar eru í meirihluta, útnefningu Ro- berts verður hann eftirmaður Söndru Day O'Connor og mun ráða yfir oddaatkvæði í dómstól sem er klofinn milli tveggja fylk- inga; annarrar frjálslyndrar og hinnar íhaldssamrar. Bush bauð Roberts starfið sím- leiðis í hádeginu á þriðjudag og tilkynnti síðan þjóðinni um ákvörðun sína í sjónvarpsávarpi um kvöldið. Bush sagði að Ro- berts myndi „framfylgja stjórnar- skránni í þaula lagalega en ekki gerast löggjafi úr dómarasætinu“. Roberts, sem er fimmtugur að aldri, er dómari í áfrýjunardóm- stól District of Columbia en var áður lögmaður og flutti sem slíkur alls 39 mál fyrir Hæstarétti. Næsta skref í útnefningarferl- inu eru vitnaleiðslur fyrir dóms- málanefnd öldungadeildarinnar, en þær munu væntanlega hefjast öðru hvoru megin mánaðamót- anna ágúst-september. Talsmenn demókrata á þingi boðuðu að í staðfestingaryfirheyrslunum myndu þeir fara vel ofan í saumana á ferli Roberts. Engu að síður er þess vænst að áform Bush gangi eftir um að greidd verði atkvæði í þinginu um stað- festingu Roberts í embætti tíman- lega fyrir 3. október næstkom- andi, en þá hefst nýtt starfsmiss- eri dómstólsins. Allt frá því Bush tók fyrst við forsetaembættinu fyrir fjórum og hálfu ári hafa ráðgjafar hans beð- ið eftir tækifæri til að skipa nýjan dómara í Hæstarétt. Tækifærið gafst fyrst er O'Connor tilkynnti 1. júlí síðastliðinn að hún hygðist fara á eftirlaun. Þá blandaði for- setinn sér persónulega í málið og setti saman lista yfir ellefu manns sem til greina kæmu í embættið. Bush hitti Roberts á föstudag og komst sem sagt í gær að þeirri niðurstöðu að hann væri rétti maðurinn í starfið. - aa Þrír piltar á tvítugsaldri: Í haldi eftir ítreku› innbrot LÖGREGLUMÁL Þrír piltar á átjánda og nítjánda aldursári hafa verið handteknir eftir ítrekuð innbrot í Reykjavík að undanförnu. Piltarnir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 26. júlí næstkom- andi. Þegar liggur fyrir að piltarnir þrír brutust inn á nokkrum stöðum í vesturbæ Reykjavíkur fyrir skömmu og þeir eru grunaðir um fleiri innbrot. Tveir piltanna hafa áður komið við sögu lögreglu vegna innbrota og þjófnaða. Tekin verður afstaða til framhalds máls- ins þegar gæsluvarðhald yfir pilt- unum rennur út á þriðjudaginn. - ht ISSA ER ALLUR Mijbil Issa var skotinn til bana ásamt ráðgjafa sínum og lífverði á þriðjudaginn. Súnníar óttaslegnir: Hættir í kjölfar árása BAGDAD, AP Súnníar hafa dregið sig úr stjórnarskrárnefnd Íraks eftir að Mijbil Issa félagi þeirra var myrtur í fyrradag. Þá var gerð sjálfsmorðsárás í Bagdad sem tíu manns dóu í. Issa var á meðal fimmtán súnn- ía í nefndinni og þeim var sérstak- lega ætlað að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda við samningu stjórnarskrárinnar. Félagar segj- ast ekki geta setið í nefndinni á meðan öryggi þeirra er ekki betur tryggt. Tímenningarnir sem voru drepnir í gær voru umsækjendur um störf í lögreglunni. ■ VEÐRIÐ Í DAG FRÁ SELFOSSI Dýralæknum líst ekki nógu vel á nýja staðinn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P Átak í Kópavogi: Ungt fólk í strætó SAMGÖNGUR Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í fyrradag tillögu sem kom frá Samfylkingunni um átak til að auka notkun fólks á aldrinum tólf til átján ára á strætó. Á átakið að hefjast í lok ágúst og standa í í það minnsta einn mánuð. Meðal annars á að bjóða fólki á þessum aldri sérstök kjör. Sérstaklega er lagt til að að þau geti sótt um fríkort í strætó í til dæmis einn mánuð. Var tillögunni vísað til bæjar- ráðs til áframhaldandi vinnu. - grs BUSH OG ROBERTS George W. Bush Bandaríkjaforseti og John G. Roberts, væntanlegur nýr hæstaréttardómari, ræðast við í Hvíta húsinu. M YN D /A P Í DJÚPAVOGSHÖFN Kjartan lenti í mikilli þoku við sunnanverða Austfirði. Hringróður Kjartans: Erfi›ur kafli framundan FJÁRSÖFNUN Róðrakappinn Kjartan Jakob Hauksson, sem er að róa hringinn í kringum landið til styrktar Sjálfsbjörgu, hélt frá Djúpavogi klukkan fimm í gær- morgun, áleiðis til Hafnar í Hornafirði. Réri hann á móti straumi og hægum vindi en reikn- aði með að koma til Hornafjarðar í gærkvöld. Kjartan á von á erfiðum kafla fram undan og segir suðurströnd- ina opna fyrir veðri og vindum auk þess sem þar sé fáar góðar lendingar að finna. Á hann jafnvel von á að þurfa að brimlenda ef eitthvað bregður út af áætlun. - kk FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B B Vinnuslys við Kárahnjúka: Liggur á gjörgæslu SLYS Filippseyskur starfsmaður Impregilo liggur á gjörgæslu með alvarlega áverka eftir vinnuslys á Kárahnjúkum snemma í gær- morgun. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir slysið. Maðurinn er talinn hafa klemmst milli lestar og rafmagns- stöðvar í fyrstu aðkomugöngum virkjunarinnar að sögn lögreglu. Afleiðingar höggsins voru alvar- legir brjóst- og kviðarholsáverkar að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu. - ht

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.