Fréttablaðið - 21.07.2005, Qupperneq 8
21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Hrafn Gunnlaugsson ósáttur við sláttustefnu borgarinnar:
Leifar af minnimáttarkennd
UMHVERFI „Það er fallegt að sjá
þessi yndislegu ungmenni við
vinnu úti í náttúrunni en maður
vildi frekar sjá þau tína upp rusl
heldur en að tæta upp þessar alís-
lensku jurtir sem vaxa þarna ótil-
neyddar innan borgarmarkanna,“
segir Hrafn Gunnlaugsson, leik-
stjóri og íbúi í Laugarnesi, en þar
var slegið í góða veðrinu í fyrra-
dag. „Sérstaklega hefði maður
viljað að bæjarhóllinn gamli hefði
verið látinn ósnertur.“
Hrafn segist finna að almenn-
ingur hafi gaman af því að labba
þar um og skoða umhverfið, en
jurtirnar sem þar vaxa segir hann
hvergi ræktaðar í skrúðgörðum
bæjarins. „Jónas Hallgrímsson orti
um fífla og sóleyjar, en þær jurtir
eru nú upprættar sem hvert annað
illgresi. Á sama tíma er verið að
rækta jurtir í skrúðgörðum borgar-
innar sem alls ekki vilja vaxa í ís-
lensku umhverfi,“ segir Hrafn. „Ég
held að þetta séu leifar af minni-
máttarkennd frá þeim tíma þegar
við vorum dönsk nýlenda.“ - grs
Kristinn H. Gunnarsson segir KEA reyna að kaupa stjórnsýsluákvarðanir:
A›dróttanir af grófasta tagi
LUCKNOW, AP Í það minnsta 239
manns hafa drukknað í flóðum á
Indlandi síðustu dægrin. Rign-
ingartíminn stendur nú sem
hæst í landinu.
Í gær fórust tíu manns í Uttar
Pradesh-héraðinu þegar hús
þeirra hrundi vegna flóðanna.
Öðrum átta skolaði á brott í
vatnsflaumnum.
Indversk stjórnvöld telja að
Nepalar hafi aukið enn á vatns-
elginn með því að opna gáttir
stífla til að grynnka í fleyti-
fullum uppistöðulónum.
Ástandið er verst í Gujarat-
héraði, þar hefur 131 dáið, 55 eru
látnir í Uttar Pradesh og 23 í
Madhya Pradesh.
Húsaleigubætur:
Samdráttur
í grei›slum
HÚSALEIGUBÆTUR Greiðslur húsa-
leigubóta lækka verulega á þessu
ári miðað við fyrri ár að því er
fram kemur í fréttabréfi jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga um húsa-
leigubætur. Greiðslur lækkuðu
um 5,14 prósent frá fjórða árs-
fjórðungi 2004 til fyrsta ársfjórð-
ungs 2005 samanborið við 2,47
prósent árið áður.
Sveitarfélögin ofáætluðu
greiðslur sínar til húsaleigubóta á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs
verulega. Áætlanir gerðu ráð
fyrir að 426,5 milljónum króna
yrði varið í húsaleigubætur
meðan greiddar bætur námu ein-
ungis 381,7 milljónum. - ht
UMMÆLI Benedikt Sigurðarson,
formaður stjórnar Kaupfélags
Eyfirðinga, segir Kristin H.
Gunnarsson þingmann á villi-
götum varðandi áform KEA um
fjölgun starfa á Akureyri og efl-
ingu byggðar á Norðurlandi en
Kristinn ýjar að því í pistli á
heimasíðu sinni að KEA ætli að
kaupa stjórnsýsluákvarðanir
tveggja ráðherra. „Sýnu verra er
þó að Kristinn allt að því sakar
okkur um að bera fé á ráðamenn.
Það er aðdróttun af svo grófu
tagi að stjórn KEA tekur ekki
þátt í slíkri umræðu,” segir
Benedikt.
Stjórn KEA hefur lýst yfir
vilja til að liðka til fyrir flutningi
opinberra verkefna til Akureyr-
ar með því að taka þátt í kostnaði
við flutning. Jafnframt hefur
stjórnin beitt sér fyrir bættum
samgöngum í þágu Norðlendinga
og finnur Kristinn báðum
áformum KEA flest til foráttu.
„Við höfum sem betur fer mætt
velvilja og góðu viðmóti stjórn-
valda en það er sorglegt þegar
menn sem segjast áhugasamir
um byggðamál eru ekki tilbúnir
að taka á móti okkar útspili og
vinna með okkur,” segir Bene-
dikt.
-kk
BÆJARHÓLLINN Í LAUGARNESI SLEGINN Hrafn segir að á honum vaxi meðal annars
hvönn, draumsóley, mjaðjurt, kerfill, fífill, villtur rabarbari og njóli.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Monsún-rigningarnar á Indlandi:
Hundru› hafa be›i› bana
BRAHMAPUTRA Brahmaputra-fljótið er
yfirfullt þessa dagana. Þeir sem búa í
námunda við það hafa nýtt tækifærið og
þvegið föt sín og klæði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
BENEDIKT SIGURÐARSON „Það er hárrétt hjá Kristni að KEA á ekki að vera í pólitík enda
er það ekki svo. Við höfum hins vegar markað félaginu þá stefnu að vera verkfæri í
byggðapólitík,” segir stjórnarformaður KEA.
LANDAKOTSSKÓLI „Umbjóðendur
mínir segjast hafa fengið loforð
um það á fundi 13. júní síðastlið-
inn að leitað yrði allra leiða til að
finna skólastjóra sem allir gætu
sætt sig við,“ segir Einar Hugi
Bjarnason, lögmaður hóps ósátt-
ra kennara í Landakotsskóla.
„Síðan frétta þeir það í fjölmiðl-
um að Fríða Regína Höskulds-
dóttir hafi verið ráðin. Ekkert
samráð var haft við kennarana
um ráðninguna. Ég hefði búist
við meira samráði við þá í ljósi
deilnanna,“ segir Einar.
„Stjórn skólans ber að ráða
skólastjóra og það liggur fyrir að
kennararnir töldu engan um-
sækjanda hlutlausan. Ég tel að
við höfum ráðið hæfasta um-
sækjandann,“ segir Björg
Thorarensen, formaður stjórnar
skólans, um ráðninguna. Hún
segist líta á Fríðu sem hlutlausan
skólastjóra sem ekki hafi haft
neina aðkomu að deilunum innan
skólans eða starfsemi skólans að
öðru leyti.
- grs
Skólastjóraráðning við Landakotsskóla:
Ekkert samrá› haft vi› kennara
EINAR HUGI BJARNASON Lögfræðingur hóps ósáttra kennara í Landakotsskóla.