Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 10
10 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Bændur veðja á ný lausagöngufjós í stað þess að stækka þau gömlu:
Tæp tuttugu n‡ fjós í byggingu
LANDBÚNAÐUR „Það eru sautján ný
fjós í byggingu sem ég veit af,“
segir Lárus Pétursson, umsjón-
armaður innréttinga hjá Land-
stólpa ehf. „Þá eru fimmtán
bændur að breyta eldri fjósum
og langoftast verið að stækka
þau í leiðinni.“ Lárus segir þessi
fjós oftast vera lausagöngufjós
með 60-70 bása eða hátt í það.
Bændurnir séu flestir að koma
sér upp mjaltaróbótum og þá séu
60-70 mjólkandi kýr heppilegur
fjöldi.
Lárus segir uppbyggingu í
mjólkurframleiðslu ekki vera
meiri en síðustu ár á undan, en
mikil þróun hefur verið í grein-
inni síðustu ár. „Það er hins veg-
ar merkjanleg breyting að menn
byggja nú ný fjós frekar en að
stækka þau gömlu.“ Lárus segir
bændur hafa verið að svala upp-
safnaðri endurnýjunar- og upp-
byggingarþörf síðustu árin. „Það
var stöðnun í greininni í tuttugu
ár.“
Um átta hundruð mjólkur-
framleiðendur eru nú starfandi á
landinu, og meðalkúabúið elur
um þrjátíu kýr.
- grs
Íslenskt hugvit nýtt við byggingu vatnsaflsvirkjunar á Grænlandi:
Eitt lengsta línuhaf í heimi
HUGVIT Íslensk fyrirtæki leggja nú
Grænlendingum lið við að reisa
7,2 megavatta vatnsaflsvirkjun
við Qorlortorsuaq, á slóðum hinn-
ar gömlu Eystribyggðar. Nú er
stærstur hluti grænlenskrar raf-
orku framleiddur með olíu.
Leggja þarf háspennulínu um
70 kílómetra leið og yfir tvo firði.
Þar sem línan liggur yfir Einars-
fjörð eru 3,7 kílómetrar stranda á
milli og verður línuhafið eitt það
lengsta í heimi.
Árni Björn Jónasson hjá Línu-
hönnun, sem sér um ráðgjöf við
gerð línunnar, segir allnýstárlega
verkfræðihönnun notaða til að
þvera fjörðinn, hönnun sem megi
líkja við hengibrýr. Til saman-
burðar er breiðasta hafið á
Golden-Gate brúnni í San
Francisco 1.280 metrar og því um
verkfræðilegt afrek að ræða.
Margir íslenskir verktakar
koma að hönnun og byggingu lín-
unnar og virkjunarinnar. Má þar
nefna Ístak, Landsvirkjun, VST,
Afl, Landark, Rafteikningu og
Línuhönnun. Verkið er unnið að
beiðni grænlensku heimastjórnar-
innar og áætlaður verkkostnaður
er hálfur þriðji milljarður.
- oá
Sjó›urinn ofurseldur
aukinni áhættu
Íbú›alánasjó›ur ver›ur a› ávaxta milljar›a uppgrei›slur lána me› eins háum
vöxtum og kostur er. fiví fylgir aukin áhætta, segir Pétur Blöndal flingma›ur
Sjálfstæ›isflokksins. Félagsmálanefnd Alflingis fjallar um málefni sjó›sins í dag.
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Félagsmála-
nefnd Alþingis kemur saman
fyrir hádegi í dag til að fjalla
um lánasamninga Íbúðalána-
sjóðs við sparisjóði og banka.
Álitamál hafa risið um lögmæti
lánveitinganna og hvort þau
samrýmist markmiðum sjóðs-
ins.
Búist er við að á fundinum
verði upplýst um efni samning-
anna og þá hvort Íbúðalánasjóð-
ur eða ríkið beri einhverja
ábyrgð á hugsanlegu tapi sem af
samningunum kann að hljótast.
„Það er ljóst að allt fé Íbúða-
lánasjóðs er með ríkisábyrgð.
Allir peningar sem hann hefur
til ráðstöfunar eru teknir að láni
nema eigið fé sjóðsins,“ segir
Pétur Blöndal þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, en hann á sæti í
félagsmálanefnd. Hann segir að
öll lán umfram eigin fé sjóðsins
ábyrgist ríkið þar með. „Hús-
næðislán sjóðsins voru fjár-
mögnuð með lánum sem sjóður-
inn tók með ríkisábyrgð. Þegar
fólk greiðir upp lán sín hjá
sjóðnum er það að greiða upp fé
sem aflað var með slíkri
ábyrgð.“
Pétur bendir á að Íbúðalána-
sjóður sé nauðbeygður til að
ávaxta milljarða uppgreiðslur
lána á hærri vöxtum en hann
borgar sjálfur fyrir lánin. „Ann-
ars tapar sjóðurinn fé og þá get-
ur reynt á ríkisábyrgðina ef eig-
ið fé hrekkur ekki til. Menn
gleyma því alltaf að á upplýst-
um markaði eru lágir vextir og
áhættulausir eru jafnir háum
vöxtum með meiri áhættu. Sjóð-
urinn eykur áhættu sína ef hann
teygir sig eftir háum vöxtum á
þetta uppgreiðslufé.“
Pétur gagnrýnir einnig
Íbúðalánasjóð fyrir að víkja frá
lögbundnum markmiðum sín-
um. „Bankarnir lána peninga frá
Íbúðalánasjóði gegn veði en
setja ekki kvaðir um kaup á hús-
næði. Þannig getur fólk keypt til
dæmis bíla eða hlutabréf fyrir
lánsfé sem ættað er frá Íbúða-
lánasjóði. Ef þetta er raunin fer
sjóðurinn gegn markmiðum lag-
anna. Við verðum að fá botn í
þennan vanda.“
Pétur Blöndal var stjórnar-
formaður Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis til síðustu ára-
móta og kveðst ekki hafa fengið
að sjá umræddan samning
sparisjóðsins við Íbúðalánasjóð
þótt hann hefði beðið um það.
„Ég bíð átekta og skoða dagsetn-
ingar og undirskriftir þegar og
ef ég fæ að sjá samningana í
dag,“ segir Pétur Blöndal.
johannh@frettabladid.is
Sumarlokanir stofnana:
Ví›a loka›
vikum saman
SUMARFRÍ Nokkur brögð eru að því
að ýmis samtök og opinberar
stofnanir loki í nokkrar vikur yfir
sumartímann meðan starfsmenn
fara í leyfi.
Þannig er til að mynda lokað
hjá Samtökum iðnaðarins í þrjár
vikur, Bændasamtökin loka í
tvær, skrifstofur Háskóla Íslands
eru lokaðar fram í ágúst, skrif-
stofur Nýsköpunarsjóðs eru lok-
aðar í tvær vikur og svo mætti
lengi telja.
Ljóst er að sumarlokanir sem
þessar geta komið sér illa og rétt
að minna fólk á að athuga hvort
skrifstofur séu almennt opnar til
að fara ekki fýluferð. ■
RJÚKANDI RÚST Lítið var eftir af bíl tilræð-
ismannanna. 66.000 manns hafa látist í
átökum í Kasmír undanfarna áratugi.
Tilræði í Kasmír:
Sex fórust í
sprengjuárás
SRINAGAR, AP Að minnsta kosti sex
fórust í sprengjutilræði í Srinagar,
sumarhöfuðborg Jammu-Kasmír
héraðs, og 20 meiddust.
Tilræðið var framið í hverfi
embættismanna en ekki er vitað
hvernig staðið var að því. Yfirvöld
segja að sjálfsmorðsprengjumaður
hafi ekið bíl sínum á herjeppa. Tals-
maður Hezb-ul Mjuahedeen, ís-
lamskra öfgasamtaka frá Pakistan
sem lýst hafa yfir ábyrgð á tilræð-
inu, segir hins vegar að sprengjan
hafi verið fjarstýrð.
Indverjar og Pakistanar hafa
lengi deilt um Kasmír en á síðustu
misserum hafa friðarhorfurnar
aukist verulega. Tilræðinu virðist
ætla að spilla þeim frið. ■
Mannskætt hryðjuverk:
Fjórtán bi›u
bana í árás
TSJETSJENÍA Fjórtán manns féllu í
valinn eftir skotárás og sprengjutil-
ræði tsjetsjenskra uppreisnar-
manna í þorpinu Znamenskoje í
Tsjetsjeníu. Tutt-
ugu eru særðir.
U p p r e i s n a r -
mennirnir skutu
fyrst á bíl fullan af
lögreglumönnum
en þegar annar
bíll kom aðvífandi
var öflug sprengja
sprengd. Tvö börn
eru í hópi þeirra
sem létust.
Að sögn Inter-
fax-fréttastofunnar kennir Alu Alk-
hanov forseti uppreisnarleiðtogan-
um Shamil Basajev og mönnum
hans um ódæðið en þeir eru meðal
annars sagðir bera ábyrgð á
fjöldamorðunum í Beslan í septem-
ber í fyrra.
Þjóðarsorg var í Tsjetsjeníu í
dag vegna tilræðisins. ■
ÓHRESS MEÐ ÚTIVISTARBANN
Hæstiréttur Bretlands úrskurð-
aði í gær að lögreglu væri ekki
heimilt að reka unglinga heim til
sín á kvöldin nema þau hefðu
brotið eitthvað af sér. Lögregla
hefur gripið til þessara ráða und-
anfarin misseri til að sporna við
andfélagslegri hegðun. Ungur
Lundúnabúi vildi hins vegar ekki
una því að vera sendur heim án
þess að hafa nokkuð til saka unn-
ið og fór því í mál.
BRETLAND
FJÓS Í BYGGINGU Verið er að
byggja 75 bása lausagöngufjós í
Káranesi í Kjós.
DAUÐI OG EYÐI-
LEGGING Sprengj-
an var afar öflug
enda dóu margir
af hennar völdum.
ÞYRLA FLYTUR SPENNUMASTUR Erfitt er að flytja þyngstu hlutina milli vogskorinna og
fjöllóttra fjarða Grænlands. Þyrlur eru notaðar til að koma fyrir háspennumöstrum.
PÉTUR BLÖNDAL SITUR Í FÉLAGSMÁLANEFND. Pétur fékk ekki að sjá umdeildan samning
Íbúðalánasjóðs við SPRON meðan hann var stjórnarformaður sjóðsins.