Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 12
12 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Stærsta florp á
Su›urlandi
Landsmót skáta var sett í vikunni. Um þrjú þúsund
skátar eru þegar mættir. Þeir voru glaðir og kátir í
mótsbyrjun og önnum kafnir við að byggja upp búðir
sínar í gærmorgun.
Um þrjú þúsund ylfingar, drótt-
skátar og foringjar voru í óða
önn við að setja upp tjaldbúðir
sínar, reisa trönur og súrra þær
saman í gærmorgun á fyrsta
degi 25. Landsmóts skáta sem
haldið er að Úlfljótsvatni. Mótið
var sett á þriðjudagskvöld og
stendur í heila viku. Gestum
fjölgar hægt og þétt í vikunni og
allt eins líklegt að gestafjöldi
slagi upp í tíu þúsund við aðal-
varðeldinn á laugardagskvöld.
Á Úlfljótsvatni er því nú eitt
stærsta bæjarfélag landsins.
Þar má finna flestar stofnanir
sem fylgja sómasamlegu þorpi.
Í ráðhúsi skáta má finna upplýs-
ingamiðstöð, heilsugæslustöð,
verslun, netkaffihús, pósthús og
umferðarstjórnun. Fjölmiðlar
eru einnig áberandi á mótinu en
skátar gefa út sitt eigið dagblað
og reka útvarpsstöð alla vikuna
með fréttum og dægurefni.
Margt spennandi er á dag-
skrá alla vikuna. Það allra vin-
sælasta er án efa vatnsbardagi
sem fram fer daglega en þar er
skotið á andstæðinginn með lit-
uðu vatni úr vatnsbyssu.
Hápunktur mótsins er á laug-
ardag. Þá verða ýmsar spenn-
andi uppákomur. Sniglarnir
verða á staðnum með hjólin sín,
Landssamband kúabænda heil-
grillar naut fyrir gesti og gang-
andi, þyrlur sveima um loftin og
stefnt er að því að setja heims-
met í fatalínu.
Á mótinu eru starfræktar
sérstakar tjaldbúðir þar sem
fjölskyldur skátanna og allir
sem hafa áhuga á skátastarfi og
útilífi geta sett niður tjöld sín
eða annan útilegubúnað. Ekki
þarf að tilkynna þátttöku í fjöl-
skyldutjaldbúðunum og þar er
hægt að dveljast eins lengi og
gestir óska þess.
solveig@frettabladid.is
Margir ökumenn dísilknúinna bifreiða
hömstruðu olíu áður en miklar verð-
hækkanir tóku gildi. Brunamálastjóri
hefur áhyggjur af því að margir
geymi birgðirnar við óviðunandi að-
stæður.
„Ég skil mætavel að fólk vilji hamstra
olíu því verðhækkunin er þvílík,“ seg-
ir Jónatan Garðarsson sjónvarpsmað-
ur. „En að sú staða sé komin upp að
fólk geymi hana í tönkum og tunnum
við húsin sín finnst mér ekki gott
mál, bæði vegna mengunar- og eld-
hættu.“ Jónatan telur að vel hefði
mátt sporna við þessu ástandi með
því að hækka verðið í áföngum. „Það
er greinileg handvömm í lagasetning-
unni og menn hugsuðu málið aug-
ljóslega ekki alla leið.“ Jónatan ekur
sjálfur dísilbíl en hamstraði þó ekki.
„Mér datt það ekki einu sinni í hug.
Uppgufun af dísilolíu er ansi eitruð
og ég er umhverfisverndarsinni.“
JÓNATAN GARÐARSSON sjónvarpsmaður
Handvömm
BIRGÐASÖFNUN Á DISILOLÍU
SJÓNARHÓLL
„Ég get sagt þér nóg af frétt-
um,“ segir Arnþór Helgason,
framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalagsins og formaður Kín-
versk-íslenska menningarfélags-
ins. „Til dæmis hefur kínverska
ríkisútvarpið áhuga á að senda
út klukkustundarlanga dagskrá
með frétta- og menningar-
tengdu efni á ensku á íslensk-
um útvarpsstöðvum og bjóða
greiðslu fyrir. Ég hafði samband
við Íslenska útvarpsfélagið í
fyrra og vakti athygli á þessu en
þar stóð á svörum. Útvarp Saga
sýndi þessi áhuga en þegar því
var fylgt eftir bárust engin svör.
En tilboðið stendur enn,“ segir
Arnþór sem telur það mikinn
feng fyrir hlustendur að heyra önnur
sjónarmið en gengur og gerist í vest-
rænu útvarpi.
Arnþór er annars nýkominn frá
Hollandi þar sem hann sótti ráð-
stefnu um réttindi fatlaðra og Evr-
ópusambandið. „Þar var meðal ann-
ars rætt um hvernig hægt er að nýta
Evrópuráðið og lög Evrópusambands-
ins til að bæta stöðu fatlaðra í ein-
stökum aðildarríkjum.“
Arnþór hefur ekki ráðstafað sumarfrí-
inu sérstaklega en nýtur samvista við
fjölskylduna. „Sonur konu minnar og
tengdadóttir voru að flytja í nýtt hús í
Hafnarfirði og afi og amma hafa haft
þá ánægju að gæta fimm mánaða
gamals barnabarns. Það er í sjálfu sér
mun meira virði en frí.“
Talar fyrir kínversku útvarpi
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ARNÞÓR HELGASON FRAMKVÆMDASTJÓRI ÖRYRKJABANDALAGSINS
nær og fjær
„En eins og öllum er
kunnugt hefur enginn
reynt a› flagga ni›ur í
[Össuri] sí›ustu daga
enda er fla› vonlaust.“
STEFÁN JÓN HAFSTEIN BORGARFULL-
TRÚI Í FRÉTTABLAÐINU.
„fiegar Villi er farinn
a› syngja, flá er fletta
komi›. Ég yr›i mjög
sáttur ef hann yr›i í
efsta sæti og tæki
fletta.“
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
BORGARFULLTRÚI Í DV.
OR‹RÉTT„ “
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
Lífsreynslusaga • Heils
a • • Matur
• Krossgáturg•á~t
28. tbl. 67. árg., 20. júl
í 2005.
Stelpubíókvöld Persónuleikapróf
Flott
fyrir
fæturna
Það sem þú
vissir ekki ...
Linda
Pétursdóttir
Sætir
strákar
við barinn
Aðeins
599 kr.
Sigrún Haraldsdótt
ir
hefur flakkað um
Evrópu í húsbíl í þr
jú ár
Með
sígaunann
í blóðinu
Íslenskar og
aðþrengdar
Hverri vinkvennann
a í
Desperate Housew
ives
líkjast þær?
16 ára lömuð frá
nefi og niður úr
Er nú á góðum bat
avegi
Góður árangur
með aukakílóin
00 Vikan28.
tbl.'05-1
8.7.2005
11:03 Pag
e 1ný og fersk í hv
erri viku
Náðu í eintak á næsta sölustað
Í SKÁTUNUM Í 50 ÁR Jóhannes Borg-
fjörð Birgisson, eða Boggi blaðamaður
eins og hann kallar sig, hefur verið í skát-
unum frá ellefu ára aldri. Hann fór á sitt
fyrsta Landsmót árið 1963 og hefur síðan
farið á og unnið við öll Landsmót. Hann er
félagi í Garðbúum og hefur safnað á húfu
sína merkjum af mörgum að þeim mótum
hérlendis og erlendis sem hann hefur farið
á í gegnum tíðina.
VÍGREIFIR SKOTAR Um átta hundruð erlendir skátar frá 22 þjóðlöndum eru staddir á
Landsmótinu. Þessir hressu skátar klæddu sig í skotapilsin fyrir myndatöku og blésu fagra
hljóma í sekkjapípu. Hópurinn kemur frá 600 manna þorpi í Skotlandi sem heitir Glen-
ferg. Drengirnir voru hressir og sögðu að sér líkaði vel á Íslandi enda væri þetta nánast
eins og heima hjá þeim.
ORKA JARÐAR Þema Landsmótsins er
orka jarðar. Af því tilefni hafa verið sett upp
ýmis tæki sem knúin eru af orku mannsins.
Til að mynda þetta flotta sturtuhjól.
Í RÓLUNNI Þeir Sigurður Ýmir og Alexander Enok sátu stoltir í rólunni sem þeir byggðu
ásamt félögum sínum í Hraunbúum í Hafnarfirði.
SÚRRAÐ Í upphafi mótsins eru skátar uppteknir við að setja upp trönur og súrra þær
saman. Ýmsar útgáfur eru á trönubyggð félaganna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR