Fréttablaðið - 21.07.2005, Qupperneq 24
Guðni Bergsson, fyrrverandi at-
vinnu- og landsliðsmaður í knatt-
spyrnu og lögfræðingur, fagnar
fertugsafmæli í dag. Hann segist
vera ungur í anda þótt árin fær-
ist yfir.
„Ég geymi fagnaðarlætin
fram á laugardag en þá býð ég
gestum hingað heim og verð með
létta veislu og partí. Þetta verður
bara gott og gamaldags. Ég vona
bara að nágrannarnir taki það
ekki óstinnt upp. Það er eins gott
að nota tækifærið og biðja þá af-
sökunar fyrirfram ef þeir verða
fyrir einhverju ónæði, en ég á þó
ekki von á að lætin keyri fram úr
hófi,“ segir Guðni og hlær.
Guðni kveðst ekki hafa haft
það að sið að gera mikið úr því
þegar aldursárin fylla heilu ára-
tugina. „Ég geri ráð fyrir að
geyma stórveislur þangað til ég
verð eldri, en maður verður
samt aðeins að lyfta sér á kreik
og peppa sig upp á svona tíma-
mótum.“
Guðni segist ekkert kvíða því
að verða fertugur, en finnst
skrítið að hann sé að skríða inn á
fimmtugsaldurinn. „Mér kemur
það óneitanlega spánskt fyrir
sjónir. Í Bretlandi segja menn
að þegar maður er á milli fer-
tugs og fimmtugs sé maður „in
your forties.“ Það hljómar ein-
hvern veginn betur, það þarf að
finna góða þýðingu á þessu.“
Guðna segist hafa notið sum-
arsins vel, hann hefur bæði
ferðast um sveitir landsins og
skellt sér á sólarströnd erlendis.
Þá reynir hann líka að fara dálít-
ið á völlinn. „Ég reyni alltaf að
fylgja mínum mönnum í Val eft-
ir og það er búið að vera gaman
á Hlíðarenda í sumar. Það er
heldur ekki langt að bíða þangað
til maður getur tyllt sér í nýja
og flotta stúku því það er verið
að taka aðstöðuna í gegn. Það er
því margt að hlakka til,“ sagði
Guðni á meðan hann naut síð-
ustu stundanna á fertugsaldri
með svalandi drykk úti garði og
lét sólina sleikja sig. ■
24 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
ALAN SHEPARD (1923-1998)
lést þennan dag
„Það er skrítin tilfinning að vera staddur í geimnum
og gera sér grein fyrir því að öryggisstuðull skipsins
réðist af lægsta tilboði í verkið.“
- Alan Shepard geimfari var fyrsti Bandaríkjamaðurinn
til að fara út í geim árið 1961.
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1939 Tveir þýskir kafbátar koma til
Reykjavíkur rúmum mánuði áður
en síðari heimsstyrjöldin skellur á.
1944 Adolf Hitler tilkynnir í útvarpi að
hann sé enn á lífi eftir morðtil-
raun í höfuðstöðvum hans dag-
inn áður.
1963 Skálholtskirkja er vígð við hátíð-
lega athöfn. Allmörgum afbrota-
mönnum eru gefnar upp sakir af
því tilefni.
1970 Byggingu Aswan High stíflunnar
yfir ána Níl í Egyptalandi lýkur.
Gerð hennar tók ellefu ár.
1987 Héðinn Steingrímsson verður
heimsmeistari í skák á móti fyrir
börn 12 ára og yngri.
1994 Tony Blair er kosinn leiðtogi Verka-
mannaflokksins í Bretlandi.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Halldór Jónsson
frá Sunnutúni, Eyrarbakka, Baugstjörn 6, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 23. júlí
nk. kl. 13:30.
Valgerður Jóna Pálsdóttir
Ingunn Hinriksdóttir Sigurður Ingólfsson
Jón Halldórsson Svana Pétursdóttir
Stefán Anton Halldórsson Erna Friðriksdóttir
Páll Halldórsson Ingibjörg Eiríksdóttir
Anna Oddný Halldórsdóttir Jón Arnar Sigurðsson
afabörn og langafabörn
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Sæmundsson
Briti,
Ljósheimum 8a,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 17. júlí.
Útförin fer fram í Fríkirkjunni mánudaginn 25. júlí kl. 13:00.
Margrét Kr. Sigurpálsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
Hallfreður Örn Eiríksson
Háaleitisbraut 56, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, sunnudaginn 17. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Minningarsjóð hjúkrunarheimilisins
Skógarbæjar, sími 510 2100 eða aðrar líknarstofnanir.
Olga María Franzdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarþel vegna andláts
Ástu Einarsdóttur
frá Reykjadal, Uppsölum, Vestmannaeyjum.
Dætur og tengdasynir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, fyrrverandi sam-
býlismaður, sonur og bróðir,
Gestur Bjarnason
frá Fremri-Hvestu í Arnarfirði,
Minningarathöfn fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 23.
júlí kl. 13.30.
Elvar Geir Gestsson, Linda Ström,
Ásdís Gestsdóttir, Ævar Örn Ómarsson,
Arnar Geir Gestsson, Guðrún Geirsdóttir, Ragnhildur Finnboga-
dóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Guðbjartur Ingi Bjarnason, Margrét
Bjarnadóttir, Guðbjörg Bjarnadóttir, Kristófer Bjarnason, Marinó
Bjarnason, Jón Bjarnason, Ingibjörg Bjarnadóttir, Elín Bjarna-
dóttir, Gestný Bjarnadóttir, Katrín Bjarnadóttir, Dagur Bjarnason,
Ragnar Gísli Bjarnason,
og aðrir aðstandendur.
Elsku móðir mín, tengdamóðir, amma og systir,
Helga Guðrún Þorsteinsdóttir
Hraunbæ 80, Reykjavík,
lést 12 júlí.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 22. júlí kl.13.00.
Helga Margrét Söebech Gunnar Örn Guðmundsson
Þórður Freyr Söebech
Guðmundur Örn Gunnarsson
Helgi Valur Gunnarsson
Jódís Þorsteinsdóttir Jón Níelsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Sigríður G. Antonsdóttir
Sogavegi 20, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. júlí kl. 13.
Birgir Guðmundsson Ásdís Guðnadóttir
Bragi Guðmundsson Margrét Gísladóttir
Anton Örn Guðmundsson Guðný Björgvinsdóttir
Sigurjón Guðmundsson Kristín Gunnarsdóttir
Stefán Guðmundsson Stefanía Muller
barnabörn og barnabarnabörn
GUÐNI BERGSSON KNATTSPYRNUMAÐUR ER FERTUGUR
Aldurinn hljómar betur á ensku
www.steinsmidjan.is
GUÐNI BERGSSON Naut síðustu stundanna á fertugsaldrinum með svalandi drykk úti í garði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N