Fréttablaðið - 21.07.2005, Síða 25

Fréttablaðið - 21.07.2005, Síða 25
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er fimmtudagur 21. júlí, 202. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 3.59 13.34 23.07 AKUREYRI 3.20 13.19 23.15 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Ásgeir Kolbeinsson, dagskrárstjóri FM 95,7 og Popptíví, hefur einfaldan smekk á fötum og gengur helst í galla- buxum og skyrtu eða peysu. „Það sem ég gæti ekki lifað án í fataskápnum mínum eru gallabuxur. Ég nota gallabuxur níutíu prósent af tímanum og á ein tíu pör,“ segir Ásgeir sem segir einfalda ástæðu vera fyrir því. „Þær passa bara svo vel við öll tæki- færi.“ „Ég er mikið í Diesel-gallabuxum því þær hafa verið að passa vel upp á síðkastið. Ég myndi segja að ég eigi þrennar gallabuxur sem eru í sérstöku uppáhaldi; tvennar Diesel og einar frá Gap. Gallabuxur endast rosalega vel en ég er ekki alveg nógu duglegur að end- urnýja þær. Ég kaupi föt í rispum,“ segir Ás- geir. Ásgeiri finnst leiðinlegt að kaupa föt og vill helst gera það á sem stystum tíma. „Ég fer yfirleitt inn í búðir og segi afgreiðslumannin- um frá því sem mig vantar og hann reddar því. Þess vegna finnst mér mjög gott að versla í GK því þar er einn afgreiðslumaður Bóas sem sér um allt fyrir mig. Ég segi honum bara hvað ég vil og hann reddar því á örskots- stundu og veitir mér rosalega góða þjónustu.“ „Ég er líka rosalega mikil kerling í skómál- um. Ég á mjög mikið af skópörum og tek al- gjört kaupæði í þeim málum þar sem ég kaupi þrjú pör í einu og síðan kaupi ég ekkert í nokkra mánuði. Ég á líka nóg af skyrtum og peysum þannig að það má segja að ég hafi mjög einfaldan smekk,“ segir Ásgeir. lilja@frettabladid.is Gallabuxur passa við allt tiska@frettabladid.is Tónlistarmaðurinn Damon Dash hefur sett á markað lúxusúralínu fyrir verulega ríkt fólk. Línan heitir Tiret watches og kosta frá tæplega tveimur milljónum króna en sérhönnuð úr kosta talsvert mikið meira. Talið er að úr tónlistarmannsins Usher sem var sérhannað með gulum og svörtum demöntum hafi kostað eina milljón punda sem samsvarar 114 milljónum íslenskra króna. Línan er hönn- uð af Damon og skartgripa- hönnuðinum Daniel Lazar og fæst í Harrods í London. Formúlu eitt stjórinn og al- þjóðlegi glaumgosinn Flavio Bri- atore ætlar að setja á markað sína eigin tískulínu. Línan heitir Billionaire Couture og er fyrir þá sem eru með ansi þykkt veski. Flavio ætlar að nota ekta gull í skyrtur og galla- buxur sem kosta frá tæplega sextíu þúsund krónum upp í rúmlega hundrað þúsund krón- ur. Sérsaumaðar skyrtur og jakkar verða á rúmlega þrjátíu þúsund upp í tæplega sjö hundruð þúsund. Flavio hannar línuna með Angelo Galasso. Fyrrum au pair Guess-hönnuð- arins George Marciano, Eliza- beth Eichelman, hefur kært hönnuðinn fyrir kynferðislega áreitni. Hún heldur því fram að hann hafi rekið sig eftir að hún neitaði að sofa hjá honum fyrir sex hundruð dollara, eða tæp- lega fjörutíu þúsund krónur. Elizabeth heldur því fram að George hafi snert hana á óvið- eigandi stöðum og reynt að setja hendi sína á getnaðarlim hans. Talsmaður Georges vísar ásökununum á bug og kveðst ekki haft neina kynferðislega tilburði í frammi. Ásgeir á tíu pör af gallabuxum og er eiginlega alltaf í gallabuxum. LIGGUR Í LOFTINU í tísku FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Er gúllas búið til úr kúm sem hafa verið úti í rigningunni? Notaðir hlutir kitla ímyndundaraflið BLS. 8 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is Tískurisinn Versace ætlar að opna tólf nýjar tískuverslan- ir í Kína í sumar og haust til að ná bita af kökunni í ört stækkandi markaði fyrir lúxusföt. Þessi tilkynning kom stutt eftir að Versace var sagt vera mest þekkta lúxus- merkið á meginlandi Kína í rannsókn á vegum Bocconi háskóla í Mílanó, virtasta viðskiptaskóla á Ítalíu. Sjö af þessum tólf verslun- um verða Versace verslanir en hinar fimm verða Ver- sace Jeans Couture verslan- ir. Nú þegar hafa þrjár verslanir opnaðar í Kína og eru þær hver annarri glæsi- legri í gráum og hvítum lit alsettar marmara og kristal. ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L B ER G M AN N Versace er þekkt fyrir fágaða og klassíska hönnun. Tólf nýjar Versace verslanir TÍSKURISINN HEFUR OPNAÐ ÞRJÁR VERSLANIR Í KÍNA OG ÆTLAR AÐ OPNA NÍU TIL VIÐBÓTAR.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.