Fréttablaðið - 21.07.2005, Síða 26
Hattar
Hattatískan nær aldrei að festa sig í sessi á Íslandi en alveg að ástæðulausu því hattar
geta verið höfuðprýði og skemmtilega hressandi aukahlutur. Málið er að þora og hafa
í huga að það er ekki samasem merki milli hatta og breskra hástéttakerlinga.[ ]
Sólgleraugu me› styrkleika
9.900,-a›eins
• 3-ja mán. skammtur
• linsuvökvi
• linsubox3.500,-
a›eins
Linsutilbo›
Sólgleraugu á tilbo›i!
Laugavegi 62
sími 511 6699
www.sjon.is
sjon@sjon.is
Gar›atorgi
sími 511 6696
Útsalan
í fullum gangi,
30 – 70 % afsláttur
Laugavegi 70
www.hsh.efh.is
Íslensk hönnun
Mikið úrval
af barnahúfum
Inga Stefánsdóttir keypti þetta pils á leið í
inntökupróf fyrir sjö árum og hefur notað
það mikið síðan.
Ingu Stefánsdóttur óperusönkonu
finnst gaman að klæða sig upp
við skemmtileg tækifæri og hún
á eitt pils sem hún keypti sér í
Dýrinu fyrir allmörgum árum
sem er í algjöru uppáhaldi. Pilsið
er svart, með klassísku sniði og
rauðri mynd af tré áprentuðu
framan á.
„Þegar ég var á leið í áheyrn-
arprófið í Royal Academie of
Music í London fyrir um það bil
sjö árum árum langaði mig að
klæðast einhverju fallegu og
óvenjulegu sem mér liði vel í. Ég
fór á búðarráp og endaði með að
kaupa mér þetta pils í versluninni
Dýrinu sem var og hét og hef
ekki séð eftir því eina mínútu.
Pilsið hefur algjörlega staðið
fyrir sínu síðan. Ég klæðist því
reglulega með einhverju nýju við
og ætli ég verði ekki að segja að
þetta séu ein bestu fatakaup sem
ég hef gert.“
Að því er ekki að spyrja, Inga
brilleraði í áheyrnarprófinu
klædd pilsinu góða og komst inn í
akademíuna og stundaði þar nám
næstu þrjú árin. Eftir útskrift
starfaði Inga um skeið í London
en kom svo heim fyrir tveimur
árum og hefur fengist við sitt
lítið af hverju síðan.
Um þessar mundir á söngleik-
urinn Kabarett, sem verður
frumsýndur 4. ágúst, hug hennar
allan.
Í Kabarett setur Inga sig í
hlutverk einnar af Kabarettmeyj-
um Kit Kat klúbbsins í Berlín
árið 1932 og þegar frí gefst frá
æfingum syngur Inga í brúð-
kaupum út um allan bæ, sinnir
sonum sínum tveimur og nýtur
lífsins.
Sokkabönd eru eitt það kynþokka-
fyllsta sem konur geta skartað en
eftir að sokkabuxurnar voru fundn-
ar upp hefur notkun á sokkabönd-
um dalað verulega. Þó notkunin sé
ekki eins mikil og í gamla daga þá
eru sokkabönd klassík í nærfata-
bransanum og verða stundum
tískubóla.
Í dag eru sokkaböndin mun
meira áberandi en oft áður og
ungar stúlkur eru farnar að sýna
sokkaböndunum verðskuldaða
athygli. Sokkabönd eru ýmist til
sem sérflík eða áföst á nærbuxur
og blúnduefni er langalgengast.
Litaúrvalið er líka breytt og svo er
hægt að vera í ýmsum gerðum af
sokkum við. Séu draumasokkarnir
ekki til er lítið mál að klippa sokka-
buxur og smella afklipptu sokk-
unum í sexí sokkaböndin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Trépilsið langbestu kaupin
Inga Stefánsdóttir óperusöngkona á sér uppáhaldspils sem er ekki nýtt.
Sokkabönd eru últrasexí
Blúnduefni er algengasta efnið þegar sokkabönd eru annars vegar.
Haldari kr. 2.513, nærbux-
ur kr.1253, sokkabönd kr.
1.393, útsala
Haldari kr. 3.590, nær-
buxur með sokkabönd-
um kr. 2.990
Haldari kr. 3.790, nær-
buxur kr. 1.590, sokka-
bönd kr. 2.390
Haldari kr. 2.303, nærbuxur
með sokkaböndum kr.
1.743, útsala