Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 31

Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 31
7FIMMTUDAGUR 21. júlí 2005 heimilið } Aldrei aftur týnt vegabréf HVAR Í HÚSINU Á AÐ GEYMA LITLU HLUTINA SEM MAÐUR VILL EKKI TÝNA OG GETA GENGIÐ AÐ ÞEGAR Á ÞARF AÐ HALDA? Hversu oft hefur þú lent í að finna ekki vegabréfið kvöldið áður en lagt er af stað til útlanda. Eða lykilinn að sumarbústaðnum sem er bara ekki við hæfi að hafa alltaf á kippunni. Við eigum alls konar smádót sem er mjög mikilvægt að halda til haga hér eru nokkrar grundvallarreglur sem hafa ber í huga þegar því er fundinn staður. 1. Fyrsta regla er að geyma lítinn hlut í einhverjum stærri. Litlu hlutirnir týnast en stórir hlutir gera það ekki svo glatt. Til dæmis er gott að taka gamla ferðatösku og setja þar allt mikilvægt og draga hana síðan fram þegar eitthvað er týnt. Þó þarf að passa að hafa töskuna eða geymslu- hirsluna ekki of stóra til að litlir hlutir týnist ekki inni í henni. 2. Ekki finna upp á of góð- um stað. Ef þú hefur aldrei hugsað um þennan „góða“ stað áður eru líkur á því að þú hugsir aldrei um hann aftur og allra síst þegar þú ert að reyna að muna hvar hann er. Reyndu frekar að velja stað á stað sem þú ert alltaf að nota. Til dæmis undir bakkanum í hnífaparaskúffunni. 3. Skrifaðu niður hvar þú geymir hlutina. Gott er að halda geymslu- dagbók þar sem þú skráir hvar þú setur hlutina. Ef þú ert hrædd/-ur um að týna geymsludagbókinni er hægt að hafa hana á alveg föstum stað, til dæmis í tölvunni. Algjör þumalputta- regla er þó að geyma ekki geymslu- dagbókina á sama stað og hlutina sem skráðir eru í hana. 4. Ekki læsa hluti inni. Þótt það virð- ist góð hugmynd að hafa mikilvæga hluti inni í peningaskápum eins og í Hollywood-myndunum þá er hægt að leysa málið á mun einfaldari hátt og án þess að þurfi að halda lykli til haga eða muna talnaröð. 5. Ekki geyma mikilvæga smáhluti innan um aðra ómerkilegri smáhluti. Til dæmis er mjög óskynsamlegt að geyma sérstöku varaskrúfuna fyrir nýju myndavélina á sama stað og skrúfurnar þú keyptir á þrjár krónur í Kolaport- inu. Betra er að geyma samtíning af sérstöku dóti saman en að geyma sérstaka dótið innan um ómerkari skyld- menni sín. Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 og Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850 ı Myndsmi›jan Egilsstö›um ENGRI LÍK! Finepix F10 hefur teki› næsta skref í stafrænni ljósmyndun.Me› ljósnæmi allt a› ISO 1600 í fullri upplausn! Miklu minni líkur á hreyf›um myndum. Ótrúleg flassdrægni. Margfalt lengri rafhlö›u ending, allt a› 500 skot! Eldsnögg a› kveikja - 1,3 sek og tökutöf 0,01 sek. Finepix F10 6.3M Super CCD 3X linsua›dráttur 2.5 tommu skjár ISO allt a› 1600 Ver› kr. 49.900 N‡ kynsló› af Super CCD www.ljosmyndavorur.is Verð frá 95.800 kr. Robomow frá Friendly Robotics Robomow slær grasið, ekki þú Vinnur í sól jafnt sem regni, hvenær dags sem er Fjarlægir og vinnur gegn mosa Slær grasið í smátt kurl sem hverfur í svörðinn Engin þörf að raka og hirða grasið Örugg, hljóðlát og einföld í notkun Fáanleg með hleðslustöð, tímastilli, þjófavörn og fleira Mjög hentug í sumarbústaðinn Krossgötur ehf Listhúsinu Engjateig 17-19 Reykjavík “Jú elskan, ég er að slá” Robomow Friendly Robotics RL 350 RL550 RL 850 RL 1000 Símar: 892-0999 699-4070 Lýsing skiptir miklu máli á heim- ilinu og falleg ljós geta verið mik- il heimilisprýði. Hjá bandaríska framleiðandanum Lampa má fá fallega hannaðar ljósakrónur, veggljós og lampa. Útilitið minnir á látlausa hönnun fjórða og fimmta áratugarins en inn á milli er að finna skrautlegri og nútíma- legri ljós úr blásnu gleri og stáli. Allar vörurnar eru handunnar og borðlamparnir eru margir hverjir þannig útbúnir að það kviknar á þeim við snertingu. Heimasíða Lampa er einstak- lega skemmtieg og þar er hægt að skoða allar þær vörur sem Lampa býður upp á. Þar er líka hægt að panta vörurnar og fá þær sendar til sín um hæl. Slóðin er www.lampa.com. Leikandi ljós og lampar Bandaríski framleiðandinn Lampa framleiðir skemmtileg ljós fyrir heimilið. Veggljós úr stáli og handblásnu gleri. Minnir einna helst á kolkrabba. Látlaus hönnun sem minnir á gamla tíma. Loftljósin fást í ýmsum stærðum og gerðum. Fallegir þráðlausir borðlampar sem kvikn- ar á við snertingu. Þetta fallega loftljós fæst í nokkrum útgáfum. Úr hlyni, kirsuberjaviði og hvítu líni. » BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á FIMMTUDÖGUM NEWLYWEDS SUNNUDAGA KL. 21:00

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.