Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 55
FIMMTUDAGUR 21. júlí 2005
The Longest Yard með Adam
Sandler er endurgerð tæplega
þrjátíu ára gamallar myndar með
Burt Reynolds. Paul Crewe var þá
og er enn vandræðagemsi úr NFL-
deildinni. Í nútímaútgáfunni lendir
hann upp á kant við kærustu sína
og rústar bílinn hennar með eftir-
minnilegum hætti í beinni útsend-
ingu. Þetta leiðir til þess að hann er
settur í fangelsi með nokkrum af
harðsvíruðustu glæpamönnum
Bandaríkjanna. Ofan á allt er Paul
fenginn til að setja saman ruðn-
ingslið sem á að vera boxpúði fyrir
fangaverðina. Paul nýtur þó lið-
sinnis þjálfarans Nate Scar-
borough og saman ná þeir að
stappa stálinu í „leikmenn sína“.
Ekki skemmir fyrir að þarna fá
fangarnir kærkomið tækifæri til
að berja aðeins á fangavörðum sín-
um.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
að fangar fá tækifæri til að borga
fyrir sig. Eftirminnilegt er þegar
Vinnie Jones mætti í heldur ófrýni-
legt fangelsi og leiddi samfanga
sína til sigurs í myndinni Mean
Machine. Þá var það kannski held-
ur ógeðslegra þegar ungu strák-
arnir í Sleepers unnu bug á kvelj-
urum sínum í ruðningi.
Auk Sandlers og Reynolds fer
vélbyssukjafturinn Chris Rock
með stórt hlutverk í myndinni. Þá
leikur James Cromvell fangelsis-
stjórann og rapparinn Nelly leikur
þarna sitt fyrsta stóra hlutverk á
hvíta tjaldinu. ■
ROCK, REYNOLDS OG SANDLER Þeir félagar reyna að stilla saman strengi samfanga
sinna og fá þá til að sigrast á fangavörðunum.
Fangar leiddir til sigurs
Sambíóin hafa tekið til sýningar
myndina The Perfect Man með
Heather Locklear og unglinga-
stjörnunni Hilary Duff. Myndin
segir frá Jean Hamilton sem hef-
ur alið dætur sínar tvær upp á
eigin spýtur. Þær hafa aldrei liðið
skort, allt er eins og það á að
vera... ef undanskilin eru ástar-
mál mömmunnar.
Þannig er nefnilega mál með
vexti að mamman virðist alltaf
hitta einhverja lúða og neyðist til
að flytja úr hverri borginni af
fætur annarri svo hún jafni sig á
ástarsorginni. Það kemur svo að
því að elsta dóttirin Holly ákveður
að stíga niður fæti. Hún reynir að
gera allt sem í sínu valdi stendur
til að koma í veg fyrir að fjöl-
skyldan flytjist á brott einu sinni
enn. ■
Hver er hinn full-
komni eiginma›ur?
HILARY DUFF OG HEATHER LOCKLEAR Holly reynir af öllum sálarkröftum að koma
móður sinni í kynni við hinn fullkomna mann. Fyrir valinu verður Ben, frændi vinkonu
hennar.