Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR
TRAUST ELDHÚSTÆKI
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Föstudagur 22. júlí laus sæti
Laugardagur 6. ágúst
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
86
51
06
/2
00
5
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is
fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
Mánaðargjald GSM er 600 kr.
Ég hringi heim, ég hringi í Gunna
í London, ég hringi í konuna og
sendi henni SMS.
Allt þetta á 0 kr.
0 kr. 0 kr. 0 kr.
120 mínútur á mánuði úr GSM í heimasíma í
einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga
mest samskipti við.
Þú heldur áfram að tala við GSM vin fyrir 0 kr.
á mínútuna í 60 mín. á dag og senda honum
30 SMS fyrir 0 kr. á dag.
Þú hringir heim úr GSM símanum þínum án þess
að greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag.
Og1 lækkar verulega kostnað heimila sem eru með GSM áskrift, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone.
Kynntu þér einnig ávinninginn fyrir Heimasíma og Internet.
GSM
Vinur í útlöndum GSM vinur Þegar þú hringir heim
Vinur minn einn var mjög reiðurum daginn af því að löggan
hafði stoppað hann vegna umferðar-
lagabrots. Honum fannst að löggan
hefði átt að láta hann í friði en eltast
frekar við alvöru glæpamenn. Hann
var líka á því að löggur væru yfir-
leitt heimskir fautar og kontrólfrík.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég
heyri talað svona um lögguna og hef
meira að segja gert það sjálfur. Ég
hef líka tekið eftir því að umfjöllun
um lögguna í fjölmiðlum undanfarið
er búin að vera frekar neikvæð. Mér
finnst það mjög ósanngjarnt.
ÉG ER LÖGGUSONUR og kynnt-
ist starfinu í gegnum pabba minn en
hann var lögregluþjónn í Reykjavík
í yfir 40 ár.
Ég veit að lögreglustarfið er eitt erf-
iðasta og hættulegasta starf á Ís-
landi og líka eitt það vanmetnasta.
Álagið er mikið. Löggan veit aldrei í
hverju hún lendir næst. Það getur
verið sjálfsmorð eða bílslys eða
hjónabandserjur. Lögreglumenn
koma að slysum og þurfa oft að
horfa uppá hræðilega hluti sem
flestir sleppa við að sjá, ofbeldi og
allar tegundir af mannlegri eymd.
Svo þurfa þeir, í ofanálag, líka oft að
þola dónaskap frá fólki að ógleymd-
um afskiptum af fullu fólki en fullt
fólk getur verið leiðinlegasta fólk
sem til er.
LÖGGUR ERU EKKI heimskt fólk
og fautar, ekki frekar en kennarar
eða sjúkraliðar. Til að endast í lögg-
unni þarf maður að vera mjög vel
gefinn, hafa mikla hæfni í mannleg-
um samskiptum, geta hugsað hratt
og vera vakandi og æðrulaus. Lögga
þarf að vera sálfræðingur, dyravörð-
ur, prestur, uppalandi, þjónn og of-
urhetja og allt kannski á einum og
sama deginum. Af minni reynslu þá
eru löggur yfirleitt vandað og gott
fólk sem er að reyna að gera sitt
besta við erfiðar aðstæður. Og þó
þeir séu ekki alltaf gráupplagðir að
eyða miklum tíma og áhuga í okkar
hversdagslega líf. Lögregluþjónar
eru bara mannlegir og misjafnir
eins og aðrir. Okkur líkar ekki við
lögguna vegna þess að hún stoppar
okkur þegar við erum ábyrgðarlaus.
Og það særir stolt okkar og fyllir
okkur hroka.
LÖGGAN ÞARF á virðingu okkar
og skilningi að halda til að sinna
starfi sínu sem er að miklum hluta
það að vernda okkur fyrir ábyrgðar-
leysi og frekju annarra og að reyna
að bjarga okkur þegar illa fer.
jongnarr@frettabladid.is
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Löggan