Fréttablaðið - 10.08.2005, Page 6

Fréttablaðið - 10.08.2005, Page 6
6 10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar eru farnir frá Vaði í Skriðdal: Lögregla veitti mótmælendum eftirför MÓTMÆLI Mótmælendum Kára- hnjúkavirkjunar og álvers á Reyðarfirði var veitt eftirför lög- reglu eftir að þeir yfirgáfu Vað í Skriðdal í fyrrakvöld að sögn Birgittu Jónsdóttur talsmanns mótmælenda í Reykjavík. Þórir Oddsson aðstoðarríkis- lögreglustjóri staðfestir að lög- regla hafi fylgst vel með mótmæl- endunum frá því að þeir yfirgáfu Vað. Hins vegar segir hann engin afskipti verið höfð af mótmælend- unum á ferð þeirra. Ragnar Aðalsteinsson lögmað- ur telur aðgerðir lögreglu óheim- ilar án dómsúrskurðar. „Ég tel þetta heimildalaus afskipti af frjálsum borgurum, hafi málið ekki verið lagt fyrir dómara og hann ákveðið að takmarka ferða- frelsi þeirra,“ segir Ragnar. Þórir segir hins vegar skýrar heimildir fyrir því að lögregla megi fylgjast með borgurum að gefnu tilefni. „Mótmæli fólksins fóru ekki friðsamlega fram og yf- irlýsingar voru gefnar út um að halda ætti uppteknum hætti. Mál- inu er því alls ekki lokið,“ segir Þórir. - ht Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar eru á faraldsfæti: Flestir komnir til Reykjavíkur MÓTMÆLI Mótmælendur Kára- hnjúkavirkjunar og álvers á Reyðarfirði eru nú flestir komnir til Reykjavíkur að sögn Birgittu Jónsdóttur, talsmanns mótmæl- enda í Reykjavík. Mótmælendur hafa verið að tínast frá Vaði í Skriðdal síðustu dagana að sögn lögreglu á Egils- stöðum en þar hafa þeir haldið til í um tvær vikur eftir að þeim var gert að yfirgefa tjaldbúðir sínar í landi Valþjófsstaða við Kára- hnjúka. Hópur mótmælendanna fór norður fyrir land að sögn Ólafs Páls Gunnarssonar, eins mótmæl- enda, sem staddur var á Mývatni þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Annar hópur fór hins vegar suður fyrir land áleiðis til Reykjavíkur að sögn Birgittu. Ekki hefur verið tekin ákvörð- un um hvort erlendum mótmæl- endum verður vísað úr landi að sögn Ragnheiðar Böðvarsdóttur, forstöðumanns stjórnsýslusviðs Útlendingastofnunar. Erindi þess efnis barst frá Sýslumanninum á Eskifirði eftir að mótmælendurnir fóru inn á byggingarsvæði álvers Alcoa á Reyðarfirði í síðustu viku. Ákvörðunar um hvort orðið verð- ur við beiðninni er að vænta á allra næstu dögum að sögn Ragn- heiðar. - ht Lending Discovery gekk vonum framar Allt gekk a› óskum flegar geimferjan Discovery lenti á herflugvelli í Kaliforn- íu í gærmorgun. firátt fyrir vel heppna›a lendingu ver›ur nú gert ótímabund- i› hlé á›ur en næstu geimferju ver›ur skoti› á loft. GEIMFERÐIR Geimferjan Discovery sneri aftur til jarðar í gær eftir fjórtán daga spennuþrunga ferð. Óvíst er hvenær geimferjurnar fara aftur út í himingeiminn því ekki liggur fyrir hver rót erfið- leikanna við flugtak þeirra er. Lendingar geimferjunnar Dis- covery hefur verið beðið með óttablandinni eftirvæntingu síðustu daga, ekki síst vegna skakkafalla í flugtakinu 26. júlí, svipuðum þeim og urðu Kólumbíu að fjörtjóni í febrúar 2003 þegar hún fórst með sjö manna áhöfn. Lendingu í Flórída á mánudags- morgun var frestað vegna skýja- þykkni og í gær varð þrumuveður yfir Canaveral-höfða til þess að ákveðið var að flytja lendinguna til Edwards-herflugvallarins í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu. Klukkan 5.11 að staðartíma (12.11 að íslenskum tíma) lenti svo geim- ferjan í náttmyrkrinu. „Til hamingju með sérstaklega glæsilegt flug,“ sagði stjórnstöð bandarísku geimferðastofnunar- innar NASA þegar ferjan hafði numið staðar. „Við erum fegin að vera komin heim og við óskum öllum sem þátt tóku í leiðangrin- um til hamingju með vel unnið verk,“ svaraði Eileen Collins, leiðangursstjóri Discovery. Skömmu eftir lendingu skoðaði áhöfnin farkostinn og var ekkert sem benti til annars en að allt væri í góðu lagi. Engu síður ítrekaði Michael Griffin, forstjóri NASA, í gær að óvíst væri hvenær geimferjum stofnunarinnar yrði skotið út í geiminn á ný. Á meðan ekki ligg- ur fyrir hvers vegna hitahlífar falla af eldsneytisflaugum geim- ferjanna, eins og gerðist hjá Discovery 26. júlí og hjá Kól- umbíu 2003, verða þær látnar halda kyrru fyrir. Þótt allir hefðu glaðst innilega yfir vel heppnaðri lendingu þá urðu fjölskyldur geimfaranna sem biðu á Flórída fyrir örlitlum vonbrigðum með að ferjan skyldi ekki lenda þar. Í dag verða hins vegar kærkomnir endurfundir ástvinanna í Houston, Texas. Sjálf geimferjan verður aftur á móti í viku til viðbótar í Kali- forníu en síðan verður henni komið fyrir ofan á Boeing 747- flugvél sem flytur hana í heima- höfn á Canaveral-höfða. sveinng@frettabladid.is BAGDAD, AP Lögmenn Tariq Aziz, fyrrverandi utanríkisráðherra Íraks, lýstu því yfir í gær að hann myndi ekki bera vitni gegn Saddam Hussein í réttarhöldun- um sem senn fara í hönd. Aziz var einn nánasti sam- starfsmaður Hussein á valdatíma hans og bíður hann sjálfur réttar- halda fyrir þátt sinn í grimmdar- verkum ógnarstjórnar Baath- flokksins. Íraskir uppreisnarmenn héldu uppteknum hætti í landinu í gær. Sautján manns féllu í fjölmörgum sprengjuárásum, þar á meðal bandarískur hermaður. ■ LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögregl- unnar í Kópavogi leiddi hana á slóð fimmtán ára pilts sem hefur viðurkennt að hafa hringt í unga drengi í símasjálfsala utan við Smáralind síðastliðinn föstudag og viðhaft dónalegt orðbragð. Hann hefur ekki komið áður við sögu lögreglu. Hann hefur áður í fé- lagi við jafnaldra sína hringt í síma- sjálfssala til að kanna viðbrögð fólks sem svarar. Hann sagði að fyrst og fremst hefði verið um fífla- skap að ræða. - grs Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16). Ver› á mann í tvíb‡li á Munch Tulip Inn Rainbow 21.-23. okt., 11.-13. nóv., 10.-12. des., 20.-22. jan., 3.-5. feb. og 17.-19. mars. Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld. www.icelandair.is/oslo Flug og gisting í tvær nætur Verð frá 34.990 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 29 01 3 0 8/ 20 05 Osló VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og Icelandair notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið. Var rétt af KEA að meina fram- kvæmdastjóra sínum að fara í fæðingarorlof? SPURNING DAGSINS Í DAG: Eiga Íslendingar að standa við fram- boð sitt til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 62,8% 37,2% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN LÖGREGLUFRÉTTIR NEPAL Á SJÖUNDA TUG LÁTNIR Tals- menn nepalska hersins sögðust í gær hafa fundið lík fjörutíu félaga sinna sem féllu í átökum við uppreisnarmenn úr röðum Maóista í vesturhluta landsins fyrir skemmstu. Uppreisnar- mennirnir segjast sjálfir hafa misst 26 menn í orrustunni sem er sú blóðugasta síðan Gyan- endra konungur hrifsaði til sín öll völd í landinu fyrir um hálfu ári síðan. TJALDBÚÐIR FELLDAR Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar komu sér upphaflega fyrir í landi Valþjófsstaða við Kárahnjúka en var gert að fella tjald- búðir sínar þar. Nýjar tjaldbúðir voru í kjöl- farið reistar í landi Vaðs í Skriðdal. SMÁRALIND Fimmtán ára piltur stóð að hringingu sem talin var að kynni að vera frá kynferðisafbrotamanni. Atvik í Smáralind: Hrekkur 15 ára pilts SÖKK Í HÖFNINNI Gamall plast- bátur með utanborðsmótor sökk við bryggju í smábátahöfninni í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Hafnarverðir töldu lítið mál að ná bátnum upp með krana en lentu í vandræðum þar sem báturinn var ómerktur og ekki vitað hver átti hann. Lögregla hafði uppi á eigand- anum sem var utanbæjar og kvaðst eigandinn láta hífa bátinn upp. VESTMANNAEYJAR KOMINN TIL JARÐAR Áhyggjur manna af erfiðleikum í lendingu Discovery vegna skakkafalla í flugtaki reyndust með öllu ástæðulausar. ELDUR Í DRÁTTARVÉL Eldur kom upp í dráttarvél í Fljótshlíð um fjögurleytið í fyrradag. Einn maður var í dráttarvélinni þeg- ar eldsins varð vart en hann hafði rétt bakkað henni út úr fjósi að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Slökkvilið Rangár- vallaskýrslu var kallað á staðinn til að slökkva eldinn og gekk það bæði fljótt og vel fyr- ir sig. ÓKU OF HRATT Níu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í sameiginlegu umferð- areftirliti lögreglu á Dalvík og Ólafsfirði í fyrradag. Margir þeirra eiga von á háum sektum fyrir hraðaksturinn en verið er að endurnýja klæðningu þar sem þeir voru stöðvaðir og há- markshraði því fimmtíu kíló- metrar. Margir keyrðu langt yfir þeim mörkum að sögn lög- reglunnar. Glæpir Saddams: Aziz neitar a› bera vitni MÓTMÆLENDUR KOMNIR TIL REYKJAVÍKUR Flestir mótmælenda Kárahnjúkavirkjunar eru nú komnir til Reykjavíkur og hyggja á frekari mótmælaaðgerðir næstu daga. Meðal þeirra er stór borði sem hengdur var upp við kaffi Hljómalind í gær. M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.