Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 10
10 10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Tugir mótmæla því að heitavatnsnotkun húseigenda í Hrísey verði mæld:
Sumarhúsaeigendur og eyjarskeggjar ósáttir
HITAVEITA Rúmlega sextíu íbúar og
sumarhúsaeigendur í Hrísey hafa
sent bæjaryfirvöldum á Akureyri
erindi þar sem áformum Norður-
orku um uppsetningu rennslis-
mæla vegna hitaveitu er mót-
mælt. Húseigendur í Hrísey
kaupa nú ákveðið magn af heitu
vatni sem þeir ákveða sjálfir ár-
lega en hemlar á heitavatnskerf-
inu eiga að koma í veg fyrir um-
framnotkun.
Björgvin Pálsson er einn
þeirra sem andsnúnir eru breyt-
ingunni og telur hann að kostnað-
ur sumra húseigenda aukist þegar
rennslismælar verða teknir upp.
„Við viljum fá meiri upplýsingar
um hvaða áhrif breytingin hefur í
för með sér og okkur finnst aðlög-
unartíminn of stuttur en breyting-
in á að taka gildi í næsta mánuði,“
segir Björgvin.
Franz Árnason, forstjóri Norð-
urorku, segir Hríseyinga notast
við gjaldskrárkerfi sem aflagt var
á Akureyri fyrir tuttugu árum.
„Það fellur enginn kostnaður á
húseigendur vegna uppsetningu
mælanna en tilgangurinn með
breytingunni er að húseigendur í
Hrísey og á Akureyri sitji við
sama borð,“ segir Franz. - kk
Hreinsað út úr fjárhirslum banka í þaulskipulögðu bankaráni í Brasilíu:
Hurfu me› fjóra milljar›a
BRASILÍA Bankastarfsmenn eins
stærsta útibús Banco Central í
borginni Fortaleza í Brasilíu
urðu furðu lostnir þegar þeir
uppgötvuðu, er þeir mættu í
vinnu sína á mánudag, að fjár-
hirslur bankans voru tómar en í
þeim voru geymdar rúmlega
fjórir milljarðar króna.
Um er að ræða eitt bíræfn-
asta bankarán í sögu landsins en
þjófarnir skipulögðu glæpinn af
mikilli nákvæmni.
Þeir leigðu sér húsnæði ná-
lægt bankanum og þóttust vera
garðyrkjumenn og gátu þannig
gefið skýringar á talsverðum
jarðvegsflutningum.
Í ljós kom að þeir höfðu graf-
ið áttatíu metra göng frá húsi
sínu að fjárhirslum bankans.
Sérstyrktir steypuveggir hvelf-
ingarinnar komu að litlu haldi
og fullkomið þjófavarnarkerfi
varð ekki vart við gjörninginn.
Þó náðust einhverjar myndir í
öryggismyndavélum bankans
sem lögregla rannsakar nú. ■
Jafn réttur samkyn-
hneig›ra er sjálfsag›ur
Bjarni Benediktsson segir löngu tímabært a› breg›ast vi› kröfum samkyn-
hneig›ra um rétt til víg›rar hjónavígslu og ættlei›inga á vi› gagnkynhneig›a.
Kirkjunnar menn eru flestir sammála um a› jafna beri rétt samkynhneig›ra.
JAFNRÉTTI „Það þurfa að vera mjög
sterk rök sem mæla gegn því að
skrefið verði stígið til fulls og ég
tel að allar þær rannsóknir sem
gerðar hafi verið bendi til þess
að þau rök séu ekki til,“ segir
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formað-
ur allsherjarnefndar, þegar hann
var spurður hvort samkyn-
hneigðir ættu að njóta réttinda
til vígðrar hjónavígslu og ætt-
leiðinga á við gagnkynhneigða.
Hann telur löngu tímabært að
bregðast við kröfum samkyn-
hneigðra þó mörg mikilvæg
skref hafi verið tekin á undan-
förnum árum.
Jón Helgi
Þ ó r a r i n s s o n
prestur í Lang-
holtskirkju og
formaður nefnd-
ar á vegum bisk-
ups, sem hefur
til umræðu mál-
efni samkyn-
hneigðra innan
þjóðkirkjunnar,
segir að meðal
presta ríkji al-
mennur vilji
fyrir því að rétta hlut samkyn-
hneigðra. „Þó eru sumir innan
kirkjunar sem vilja stíga varlega
til jarðar í þessum efnum,“ segir
Jón Helgi.
Sigursteinn Másson, varafor-
maður samtakanna '78, segir að nú
sé aðeins spurningin hvort kirkjan
eða löggjafavaldið verði fyrri til að
stíga skrefið til fulls og veita sam-
kynhneigðum rétt til vígðrar
hjónavígslu. Hann bendir á að á
Spáni þar sem löggjafavaldið hafi
tekið frumkvæði í þessum málum
hafi nú áunnist stuðningur meiri-
hluta presta fyrir slíkum vígslum.
Jón Helgi segir að kenningar-
nefnd á vegum kirkjunar skili áliti
til biskups um það hvernig þjóð-
kirkjan geti orðið við ósk samkyn-
hneigðra um formlega hjónavígslu
en ekki er ljós hvenær það álit
liggur fyrir. Hann segir að hins
vegar hafi réttur samkynhneigðra
til ættleiðinga ekki verið mikið
ræddur innan kirkjunnar enn sem
komið er.
Gunnar Þorsteinsson, for-
stöðumaður Krossins, segist hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðum
með yfirlýsingar félagsmálaráð-
herra um síðustu helgi. Hann seg-
ir að um forréttindabaráttu sé að
ræða en ekki jafnréttisbaráttu.
„Til er fólk sem vill fá aðra af-
brigðileika kynlífs viðurkennt,
hvað verður þá um þeirra rétt?“
spyr Gunnar. jse@frettabladid.is
STUND Á MILLI STRÍÐA Björgunarmenn
bíða átekta við námuna.
Námuverkamennirnir:
Litlar líkur á
björgun
PEKING, AP Enn hefur ekki tekist
að bjarga á annað hundrað verka-
mönnunum úr kolanámunni í Gu-
angdong-héraði í Suður-Kína sem
fylltist af vatni á sunnudaginn.
Mikið vatn er enn þá í göngun-
um og hefur gengið illa að dæla
því á brott. Líkurnar á því að
mennirnir náist á lífi fara því
þverrandi.
Eigendur námunnar höfðu ekki
tilskilin leyfi til rekstrar hennar
og því flýðu þeir héraðið þegar
fregnir bárust af slysinu. Stjórn-
völd leita þeirra nú ákaft enda
telja þau þá hafa vanrækt að
tryggja öryggi starfsmanna
sinna. Stjórnendurnir eru auk
þess þeir einu sem vita nákvæm-
an fjölda þeirra sem eru í
námunni. ■
M
YN
D
/A
P
Ríkustu og frægustu
Íslendingarnir borga
skatt í útlöndum
Engir skatta-
kóngar á Íslandi!
NOREGUR
FULLIR VIÐ FERJUSTJÓRN
Lögreglan á Norðurmæri hand-
tók um helgina þriggja manna
áhöfn ferjunnar Edøy sem sigl-
ir á milli Molde og Sekken. Var
það gert eftir athugun sem
leiddi í ljós að áhafnarmeðlim-
irnir voru allir ölvaðir. Sam-
kvæmt heimildum Aftenposten
voru mennirnir nýkomnir úr
gleðskap. Heldur var fámennt
um borð, aðeins tveir farþegar
og einn bíll. Samt sem áður er
er málið litið alvarlegum aug-
um.
MET Í SMÁSKILABOÐUM
Fáar þjóðir senda jafn mörg
texta- og myndskilaboð og
Norðmenn. Sérstaklega hafa
sendingar myndskilaboða auk-
ist mikið. Aftenposten hermir
að viðskiptavinir Telenor og
Netcom, tveggja stærstu síma-
fyrirtækja landsins, hafi sent
35 milljónir myndskilaboða
fyrstu sex mánuði þessa árs og
1,86 milljarða smáskilaboða.
SUÐUR-AMERÍKA
HANDTEKINN Í ARGENTÍNU
Einn hershöfðingja Bosníu-
Serba sem verið hefur á flótta í
tæp fimmtán ár var handtekinn
í Buenos Aires, höfuðborg
Argentínu, í fyrradag. Hers-
höfðinginn Milan Lukic hefur
verið ákærður fyrir glæpi gegn
mannkyni vegna morða á
múslimum í Bosníustríðinu.
SUMARHÚS Í HRÍSEY Forstjóri Norðurorku
segir einu nothæfu heitavatnsholuna í
Hrísey viðkvæma fyrir innrennsli sjávar og
því skynsamlegt að nota ekki meira heitt
vatn en nauðsyn krefur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
GAY PRIDE-GANGA Flestir virðast vera sammála um að aðeins sé spurning um hvenær
samkynhneigðir njóti sömu réttinda og gagnkynhneigðir.
BJARNI Engin rök
gegn því að stíga
skrefið til fulls.
ÁGÆTT TÍMAKAUP Þeir tíu sem brasilíska lögreglan telur standa á bak við stærsta banka-
rán sem framið hefur verið í landinu höfðu rúma fjóra milljarða upp úr krafsinu fyrir
tveggja vikna vinnu.
Í GÓÐRA VINA HÓPI Fílakálfurinn Bongi
var boðinn velkominn í hóp fílanna í dýra-
garðinum í Wuppertal, Þýskalandi, í gær.
Þótt Bongi virðist harla smár er hann samt
178 kíló.
M
YN
D
/A
P