Fréttablaðið - 10.08.2005, Page 17

Fréttablaðið - 10.08.2005, Page 17
S enn líður að því að kosningabaráttan um setu í Öryggis-ráði Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2009-2010 hefjistfyrir alvöru. Íslendingar hafa sem kunnugt er tilkynnt að þeir sækist eftir sæti í ráðinu, og var sú ákvörðun form- lega tilkynnt árið 1998. Venjan hefur verið sú að norrænu rík- in styðja hvert annað þegar um er að ræða setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og þannig hafa Íslendingar margoft stutt aðrar Norðurlandaþjóðir í þessum efnum, og lagt sitt lóð á vogarskálarnar til þess að viðkomandi ríki fái þar sæti. Formleg tilkynning um framboð Íslands var enda gefin á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í tíð Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra, þar sem hann talaði í nafni rík- isstjórnarinnar undir forsæti Davíðs Oddssonar, núverandi utanríkisráðherra. Það liggur fyrir að hefðu Íslendingar ekki tilkynnt um áhuga sinn á setu í Öryggisráðinu árið 1998 hefði röðin verið komin að Finnum að sækjast eftir setu í ráðinu. Íslendingar hefðu þá að sjálfsögðu stutt þá til setu í ráðinu eins og áður, og síðan átt þess kost að freista þess síðar að fá sæti í ráðinu, þegar hið svokallaða Norðurlandasæti yrði laust á ný. Í vetur komu fram efasemdaraddir um að Íslendingar ættu að standa við framboð sitt til setu í Öryggisráðinu, og voru þar á ferð flokksmenn núverandi utanríkisráðherra. Ýmsir tóku undir sjónarmið efasemdarmannanna, en segja má að þá hafi verið orðið of seint að snúa til baka, ef Íslendingar ætl- uðu að halda andlitinu í alþjóðasamstarfi, og þá sérstaklega í samstarfi á vettvangi Norðurlandanna. Finnar myndu taka það mjög óstinnt upp við Íslendinga ef þeir hættu við fram- boðið. Finnar hafa mjög verið að sækja í sig veðrið á alþjóða- sviðinu á undanförnum árum og lagt mikið upp úr því að vera þar í sviðsljósinu. Það hefur verið eftir því tekið innan Evr- ópusambandsins hvað Finnar hafa lagt sig í framkróka með að standa sig í stykkinu þegar kemur að ábyrgðarstöðum og forystu innan þess. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Íslendingar hafa tryggt sér þriðjung þeirra atkvæða sem þarf til að hljóta sæti í Ör- yggisráðinu. Tekið hefur verið upp stjórnmálasamband við fjölmörg ríki á undanförnum mánuðum, samtals 54 á tæplega tveimur árum. Sendinefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hefur borið hitann og þungann af því starfi sem þessu fylgir ásamt stjórnarerindrekum í utanríkisráðuneytinu í Reykja- vík. Verulegur kraftur hefur þó enn ekki verið settur í kosn- ingabaráttuna að því er séð verður, og því er mikið verk enn óunnið á þessum vettvangi. Þeim sem tóku ákvörðun um framboðið á sínum tíma hlýtur að hafa verið ljóst að því fylgdi töluverður kostnaður. Ef Íslendingar ætla ekki að snúa við í miðri á og halda aftur til sama lands hlýtur að vera gert ráð fyrir fjárveitingum til þessa verkefnis í fjárlagafrum- varpi næsta árs, sem lagt verður fram eftir tæpa tvo mánuði. Skömmu áður verður leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna haldinn í New York, og þá þarf það að liggja alveg ljóst fyrir hvernig þessum málum verður háttað. 10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Fjölmörg ríki hafa þegar lýst stuðningi sínum við framboð Íslands til setu í Öryggisráðinu. Íslendingar ver›a a› ákve›a sig FRÁ DEGI TIL DAGS Stökktu til Rimini 11. eða 18. ágúst frá kr. 29.990 Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Rimini 11. ágúst í 2 vikur eða 18. ágúst í 1 eða 2 vikur. Njóttu lífsins á þessum vinsælasta sumarleyfis- stað Ítalíu. Bókaðu sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Síðustu sætin 29.990 í viku / 39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur (ath. 11. ágúst er aðeins tveggja vikna dvöl í boði). Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. 39.990 í viku / 49.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur (ath. 11. ágúst er aðeins tveggja vikna dvöl í boði). Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Framboð umfram eftirspurn Þær fréttir berast að Árni Páll Árnason héraðsdómslögmaður hafi verið dug- legur undanfarið við að kanna jarðveg fyrir hugsanlegu framboði sínu á lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi fyr- ir næstu þingkosningar. Árni Páll er sagður hafa hringt í fjölda fólks og kannað hug þess til framboðs síns. Kunnugir segja undirtektir flestra vera á þá leið að framboðið sé umfram eftirspurn. Árni Páll hefur lengi verið samverkamaður Öss- urar Skarphéðinssonar, fyrrum for- manns Samfylkingar, og hafa menn lengi búist við framboði hans. Spurning hvort dræm við- brögð við hugsanlegu framboði Árna Páls séu í takt við fallandi fylgi eins helsta samherja hans. Ánægður með viðbrögðin Einar K. Guðfinnsson vakti mikla at- hygli um síðustu helgi þegar hann rit- aði grein í Morgunblaðið og mælti til þess að vaxtabótakerfið væri lagt nið- ur í núverandi mynd enda sé það ákaflega vont við núverandi ástæður. Vakti greinin mikla athygli og mikil viðbrögð. Viðbrögðin hafa glatt hann enda segir hann á heimasíðu sinni að þau hafi mestmegnis verið góð, nema hjá Alþýðu- sambandinu sem óttast að niðurfelling kerfisins skaði láglaunafólks. Einar ítrekar að hjá því megi komast með því að koma upp sparnaðar- reikningum sem væru bundnir og leiddu ekki til efnahagslegrar þenslu, sem nú sé að rústa fyrirtækj- um og stífla nýsköpun um land allt. Óvænt lausn skuldara Ævintýrin í bókaútgáfu eru margvísleg. Þannig má lesa á vef Bjarts að óvenju skuldseigur áskrifandi að Neon-bóka- röð útgáfunnar hafi komið á skrifstofu Bjarts til að gera upp skuld sína með óvenjulegum hætti. Sá hafi komið með 20 bækur, allar enn í plastinu og viljað skila þeim gegn niðurfellingu skuldar- innar. Þótti þeim skrýtið að áskrifand- inn skyldi ekki hafa tekið meistaraverk- in úr plastinu en töldu skýringuna þá að viðkomandi hefði komist í bækurn- ar hjá föður sínum sem er líka áskrif- andi. brynjolfur@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA Í Bandaríkjunum er svo hart deilt um rétt samkynhneigðra til þess að ganga í hjónaband, að liggur við að þjóðinni sé sundrað í tvo álíka stóra hópa. Trúarof- stækismenn hafa hafið baráttu fyrir því að slíkt athæfi verði bannað í stjórnarskránni. Þeim er auðvitað jafnljóst og öðrum að nær ómögulegt er að knýja fram slíkt bann í stjórnarskrá, nema um það ríki víðtæk sátt meðal þjóðarinnar og vita vel að slík sátt er ekki fyrir hendi og verður ekki um fyrirsjáanlegan tíma. Með andstöðu sinni við þetta bæta þeir enn einu atriði við í því stríði, sem kallað hefur verið „cultural war“, eða átök lífsskoð- ana. Fyrir eru á dagskrá þeirra barátta gegn lögleiðingu fóstur- eyðinga, takmörkun barneigna og notkun smokksins. Þáttur í þessari baráttu er krafa um skír- lífi og takmörkun kynlífs við hjónabandið. Margir þessara hópa ofstækismanna eru jafn- ákafir baráttumenn fyrir ótak- markaðri byssueign þegnanna og meðmæltir dauðadómum. Samt kenna þeir þessa baráttu sína við „helgi alls lífs“ og virð- ingu fyrir því. Það nýjasta í þess- ari „menningarherferð“ er að krefjast þess að sköpunarsaga biblíunnar fái jafnan sess ávallt þegar um þróunarkenningu Darwins er fjallað í raunvísinda- kennslu skólanna. Bush forseti hefur lýst því yfir að um sé að ræða jafnréttháar „tilgátur“! Annar Texasbúi Tom de Lay, for- svarsmaður repúblikana í öld- ungadeild þingsins, hefur fullyrt að beint orsakasamband sé milli ódæðisverkanna í Columbine- skólanum, þar sem nokkrir piltar skutu skólasystkin sín til bana, og uppfræðslu um þróunarkenn- inguna í skólum! Hver eru svo rök þessara of- stækismanna gegn því að fólk af sama kyni stofni til varanlegs sambands sín á milli? Fyrst auð- vitað þau, að heilög ritning og önnur helgirit telji samkyn- hneigða andstyggð góðra manna og þá beri annað hvort að „lækna“ af villu síns vegar elleg- ar útskúfa þeim úr mannlegu samfélagi, að minnsta kosti sam- félagi trúaðra. Nú er það svo að hjónabandið á sér langa þróunar- sögu, jafnvel eldri en trúar- brögðin. Frá upphafi er hjóna- bandið fyrst og fremst efnahags- leg stofnun, sem miðar að því að tryggja afkvæmum fjárhagslegt öryggi, svo að vöxtur og við- gangur samfélagsins sé tryggur í kynslóðanna rás. Það þótti svo vissara að tryggja þessa stofnun enn frekar „fyrir augliti guðs“ og leit kirkjan þá svo á að sam- bandið væri órjúfanlegt ævi- langt. En á 19. öld óx þeirri skoðun fylgi, og varð smám saman alls ráðandi, að þetta samband ætti ekki að byggjast á fjárhagsfor- sendum heldur ást milli einstak- linganna. Þá varð skammt í þá skoðun að um leið og ástin hyrfi brysti grundvöllur sambandsins og því yrði að leyfa hjónaskiln- aði. Nú er reyndar svo komið í flestum ríkjum Vesturlanda að raðhjónabönd eru algeng og börn úr mismunandi samböndum eru alin upp að meira eða minna leyti saman. Aðeins eru gerðar þær lágmarkskröfur af hálfu samfé- lagsins að ást foreldranna á börnunum haldist gegnum þykkt og þunnt og að framfæri þeirra sé tryggt, þótt leiðir foreldranna skilji. Það eru því ekki samkyn- hneigðir sem hafa ó(mis,sví)virt „heilagt“ hjónaband. Gagnkyn- hneigðir höfðu þegar slegið úr því botninn. Við þekkjum vel úr Íslands- sögunni að öreigum var meinað að eigast og ganga í hjónaband. Allt fram á fjórða áratug síðustu aldar var sveitarstjórnamönnum heimilt að leysa upp heimili fá- tæklinga og stía þeim í sundur hver á sína sveit – og látið óátalið af kirkjunni og kirkjunnarmönn- um. Einnig hér sigraði það sjón- armið að hjónaband ætti að byggjast á ástinni og það væri réttur barna að vera alin upp við ástríki foreldra eða annarra að- standenda – og þá ekki spurt hvort þessir aðstandandendur væru til dæmis tvær konur eða tveir karlar. Hví ætti börnum þá að vera óhollt að alast upp í ást- ríku sambandi tveggja samkyn- hneigðra? Er einhver ástæða til að halda að slík sambönd verði síður varanleg en sambönd gagn- kynhneigðra eru í dag? Það er því ánægjulegt að hér á landi hefur þetta mál ekki valdið teljandi ágreiningi. Hommar og lesbíur eru ekki lengur litin hornauga og neydd til að fara dult með kynhneigð sína. Þvert á móti. Réttindabarátta þeirra hef- ur snúist upp í eitt alls herjar karnival, sem allir telja sig mega taka þátt í. Hlutverk löggjafans á að vera það eitt að skapa öllum jafnan rétt til fjölskyldulífs – án tillits til kynhneigðar, efnahags og holdafars. Heilagt hjónaband? Einnig hér sigra›i fla› sjónar- mi› a› hjónaband ætti a› byggjast á ástinni og fla› væri réttur barna a› vera alin upp vi› ástríki foreldra e›a ann- arra a›standenda og flá ekki spurt hvort flessir a›standend- ur væru til dæmis tvær konur e›a tveir karlar. ÓLAFUR HANNIBALSSON Í DAG LÖGGJAFINN OG HJÓNABANDIÐ f04070404_einar.jpg

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.