Fréttablaðið - 10.08.2005, Qupperneq 20
Í vetur verður hægt að stunda
nám á Vestfjörðum við frum-
greinadeild Viðskiptaháskólans á
Bifröst. Kennt verður annars
vegar á Ísafirði og hins vegar í
Bíldudal. Deildin veitir eins árs
sérhæfðan undirbúning fyrir há-
skólanám á Bifröst og er tilvalin
fyrir þá sem hafa mikla starfs-
reynslu og vilja auka menntun
sína. Hún er einnig góð leið fyrir
þá sem hafa verið frá námi í lang-
an tíma og treysta sér ekki beint
í háskólanám. Þeir sem ljúka
fullu námi í deildinni með góðum
árangri hafa einnig fengið að-
gang að námi við aðrar háskóla-
stofnanir. Steinunn Eva Björns-
dóttir er umsjónarmaður frum-
greinadeildar, en hún hefur net-
fangið steinunn@bifrost.is
3MIÐVIKUDAGUR 10. ágúst 2005
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
S á k ið f i k di bö
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvernig var á
sumar á s inu?
Keramik fyrir alla
Frábært!
Skemmtileg verkefni
og flottir hlutir sem
maður málar.
Eitt af undirstöðuatriðum
skólastarfsins er að kenna
nemendunum lestur. Sum
börn eru hins vegar orðin læs
áður en skólagangan hefst.
Hvernig skyldi menntakerfið
bregðast við því?
„Barn sem kemur með ákveðið
forskot inn í skóla á að halda því
líka þegar það fer úr skólanum.
Maður má ekki sitja á barninu og
toga hin að því, heldur verður það
að fá að halda því forskoti sem
það hefur,“ segir Edda Huld
Sigurðardóttir, skólastjóri Ísaks-
skóla. Hún segir þau börn sem
orðin eru læs þegar þau koma í
skólann fá vinnubækur og önnur
verkefni til að leysa meðan verið
sé að kenna hinum að þekkja staf-
ina. Oftast langi þó læsu börnin
að hlusta á söguna sem sögð er
með hverjum staf og hverju
hljóði. „Sagan sem fylgir hverjum
staf er yfirleitt ákaflega
skemmtileg og spennandi þannig
að í 98% tilfella er það þannig að
börnin leggja frá sér vinnubókina
og fara að fylgjast með en hafa
verkefnin samt við hendina,“
segir hún.
Oftast segir Edda Huld læs og
ólæs börn vera í sömu stofu en
þó sé það misjafnt. „Maður spil-
ar þetta dálítið eftir eyranu
hverju sinni en það er alltaf
reynt að láta börnin ekki að vera
með of létt verkefni. Hér í Ísaks-
skóla höfum við alltaf reynt að
mæta börnunum þar sem þau
eru stödd, bæði í lestri og öðru,
og þannig er það almennt með
skólana í dag. Námið er sniðið að
þörfum einstaklingsins enda er
það réttur barnsins sem mann-
eskju.“
Barnið á að halda því
forskoti sem það hefur
Edda Huld segir reynt að láta börnin ekki vera með of létt verkefni heldur mæta þeim
þar sem þau eru stödd, bæði í lestri og öðru.
Frá haustinu 2001 hafa starfs-
menn Háskólans á Akureyri
tekið á móti nýnemum með dag-
skrá sem kallast velgengn-
isvika. Þann tíma nota nýnemar
til að kynnast hver öðrum,
starfsfólki háskólans og eldri
nemendum eftir því sem kostur
er. Að þessu sinni býður skólinn
500 nýja nemendur velkomna til
starfa og skiptist nýnemahópur-
inn í þrjá meginhópa sem hver
og einn fær velgengnisviku út
af fyrir sig. Þar er tölvuum-
hverfi skólans kynnt og þjón-
usta við nemendur. Þeir finna
strax að þeir eru velkomnir í
skólann og velgengnisvika
hjálpar þeim við að aðlagast há-
skólalífinu.
Sorgin og sálgæslan
Tvö námskeið í sálgæslu verða á
haustönn hjá Endurmenntunardeild
Háskóla Íslands.
Sálgæslunámskeiðin tvö, sem heita Dauð-
inn og sorgin og Sálgæsla og tólf spora
leiðin, eru haldin í samstarfi við guðfræði-
deildina. Þau eru ætluð guðfræðinemum
og þeim sem starfa innan heilbrigðiskerfis,
skólakerfis, félagsþjónustu og löggæslu og
hafa háskólapróf á áðurnefndum sviðum
eða fimm ára starfsreynslu. Kennsla fer
fram með fyrirlestrum, umræðutímum og
verkefnavinnu. Verkefnisstjóri er Kristín
Birna Jónasdóttir og hún hefur netfangið
kristind@hi.is
Nemendur við Háskólann á Akureyri geta leigt skápa fyrir tölvur og bækur svo þeir þurfi
ekki að bera það á milli daglega.
Aðlögun að háskólalífinu
Velgengisvika er sérstök dagskrá við Háskólann á Akureyri í
ágúst, ætluð nýnemum.
Bifröst til Vestfjarða
Frumgreinadeild Viðskiptaháskólans á Bifröst verður á Vest-
fjörðum í vetur.
Runólfur Ágústsson skólameistari við stytt-
una af stofnanda skólans, Jónasi frá Hriflu.