Fréttablaðið - 10.08.2005, Side 25

Fréttablaðið - 10.08.2005, Side 25
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Allt stefnir í að íslensk hlutabréf skili mjög hárri ávöxtun þriðja árið í röð. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 35 prósent frá ára- mótum, þar af um átta prósent frá byrjun júlí. Á síðasta ári var hækkunin um 59 prósent og 56 prósent árið áður. Hækkun það sem af er ári er lægri en fyrstu sjö mánuði ársins í fyrra en mun meiri en á sama tíma árið 2003. Greining Íslandsbanka spáði því, þegar hún gaf út afkomuspá sína í júlí, að úrvalsvísitalan myndi hækka um 30-39 prósent í ár. Jónas G. Friðþjófsson, sér- fræðingur hjá greiningu Íslands- banka, telur að bankinn hækki spá sína í ljósi nýrra upplýsinga. Hálfsársuppgjör félaga hafi í nær öllum tilvikum verið um- fram væntingar og samruni Burðaráss við Landsbankann og Straum hafi styrkt félögin. „Verðin eru ekki komin út í vitleysu en þau eru samt orðin allhá. Maður sér ekki að óbreyttu að markaðurinn hækki mikið meira og geri ég ráð fyrir því að markaðurinn verði stöðugur. Nokkur félög eru komin í efri mörk verðmatsbils að okkar mati eins og Burðarás, Landsbankinn, Marel og Straumur,“ segir Jónas. Hann bendir á að stemningin sé reyndar mjög góð á markaðn- um og fjárfestar telji hlutabréfa- markaðinn mun betri kost en til dæmis skuldabréfamarkaðinn. „Rekstrarskilyrði og horfur hjá bönkunum góðar. Þóknanatekjur vaxa gríðarlega og vanskil eru í lágmarki.“ Jónas segir að væntingar hafi áhrif á verð félaga. Þegar vænting- arnar verði að veruleika sé eins og aukahækkun bætist við. Hugmynd- ir um sameiningu Burðaráss við Straum og Landsbankann höfðu verið til umræðu áður. Aðeins sex Kauphallarfélög af 29 hafa lækkað frá síðustu ára- mótum. Ekkert félag hefur hækkað meira en Landsbankinn en hækkun hans nemur um sjötíu prósentum og Bakkavör fylgir í kjölfarið með um 65 prósenta hækkun. Flaga hefur lækkast mest af félögum í úrvalsvísitöl- unni eða um fjórðung. Jónas útilokar ekki að mark- aðurinn fari í gegnum sams konar dýfu og í október á síðasta ári og lækki um 5-10 prósent. „Það gæti verið gott fyrir mark- aðinn að hann sveiflaðist í báðar áttir.“ Vika Frá áramótum Actavis Group 2% 10% Bakkavör Group 3% 66% Burðarás 5% 44% Flaga Group -7% -28% FL Group 0% 49% Grandi 0% 6% Íslandsbanki 3% 28% Jarðboranir -3% 3% Kaupþing Bank 3% 31% Kögun -1% 25% Landsbankinn 6% 69% Marel 9% 30% SÍF 0% -1% Straumur 7% 41% Össur 1% 14% *Miðað við gengi í Kauphöll á mánudag MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Verðið orðið allhátt Þótt rekstrarskilyrði séu góð er markaðurinn orðinn fulldýr að mati sérfræðings. 410 4000 | www.landsbanki.is B2B | Banki til bókhalds Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna Fyrirtækjabanki Erlend verðbréfakaup námu 8,9 milljörðum króna í júní, kemur fram á vef greiningardeildar Ís- landsbanka. Það er rúmlega helmingi meira en á sama tíma í fyrra. Mest er keypt af erlendum hlutabréfum. Greiningardeildin telur að þessa miklu aukningu megi rekja til sterkrar krónu og segir lífeyr- issjóðina hafa nýtt sér hátt gengi hennar til fjárfestingar í erlend- um verðbréfum. Keypt hafa verið erlend verðbréf fyrir 35,6 milljarða króna það sem af er ári. Á síðasta ári námu erlend verðbréfakaup 75,8 milljörðum og telur Íslandsbanki að þau auk- ist lítillega milli ára og verði á bilinu áttatíu til níutíu milljarðar á þessu ári. - jsk Þórstorg hefur keypt Hótel Óðinsvé við Óðinstorg, en innan vébanda hótelsins er einnig fyrirtækið Brauðbær. Seljendur eru Bjarni Árnason og fjölskylda hans, sem rekið hafa Brauðbæ og hótelið um ára- bil. Þórstorg er í eigu nokkurra einstaklinga sem rekið hafa íbúðahótelið Lúnu á Spítalastíg. Nýju eigendurnir tóku við rekstri hótelsins um síðustu mán- aðamót og hyggjast reka Óðinsvé og Lúnu sameiginlega. Með því geta þeir boðið viðskiptavinum sínum upp á að velja milli fullbú- inna íbúða og fjögurra stjörnu hótels. Ellert Finnbogason einn eigenda verður hótelstjóri en aðrir í eigendahópnum eru Linda Jóhannsdóttir, Birgir Sigfússon og Jóhann Gunnarsson. Hótelið hefur verið í rekstri í tvo áratugi en að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum á húsnæðinu, auk þess sem byggð hefur verið hæð ofan á húsið, þar sem eru lúxusherbergi með útsýni yfir miðborgina. Siggi Hall hefur rekið veit- ingastað við hótelið og verður engin breyting þar á. Kaupverðið er ekki gefið upp. - hh Matsmenn, sem skipaðir voru af Héraðsdómi Reykjavíkur í des- ember árið 2003 til að gefa út sitt mat á yfirtökuverði í Baugi Group, skila niðurstöðum sínum innan skamms. Baugur var tekinn af markaði sumarið 2003 og stóðu Fjárfest- ingarfélagið Gaumur og KB banki meðal annars að yfirtök- unni í gegnum Mund ehf. Öðrum hluthöfum voru boðnar 10,85 krónur á hvern hlut. Sparisjóður Mýrasýslu eign- færir enn 912 þúsund króna hlut að nafnverði í Baugi þótt spari- sjóðurinn sé ekki gefinn upp sem hluthafi í félaginu. Á hluthaf- alista í Baugi, sem birtist á heimasíðu Kauphallarinnar skömmu eftir áramótin, var SPM ekki meðal 24 hluthafa í félag- inu. Sparisjóðurinn er í hópi nokk- urra eldri hluthafa sem sættu sig ekki við það að hlutir þeirra yrðu innleystir á umræddu verði og óskaði hann, ásamt nokkrum öðrum hluthöfum, að fengnir yrðu dómskvaddir matsmenn til að leggja mat á það verð sem í boði var við yfirtökuna. - eþa Gefa enn upp hlut í Baugi Matsmenn skila brátt niðurstöðum sínum um yfirtökuverð í Baugi. Aukin erlend verðbréfakaup Eigendaskipti á Óðinsvéum Bjarni Árnason, kenndur við Brauðbæ, hefur selt. Tekjur einstaklinga aukast mikið Norska fyrirtækið Opera Software, sem er að næststærst- um hluta í eigu Íslendingsins Jóns S. von Tetzchner, hefur hækkað hressilega að undan- förnu, rétt um fjörutíu prósent á einum mánuði. Um sautján prósenta hlutur Jóns S. er talinn vera um 2,5 milljarða virði. Opera Software selur vafra meðal annars í síma. Á dögunum tilkynnti félagið að vafrar þess yrðu notaðir í nýja farsíma frá Hitachi og Nokia. - eþa ALDREI HÆRRI Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 35 prósent frá áramótum. Sérfræðingur telur að markaðurinn sé fullhátt metinn og standi frekar í stað fremur en að hækka. Fr ét ta bl að ið /S te fá n AÐALFUNDUR BAUGS Beðið er eftir niðurstöðu matsmanna um yfirtökuverð í Baugi Group sem var tekinn af markaði sumarið 2003. Heildartekjur á mann hafa vaxið um 57 prósent frá árinu 1994 og ráðstöfunartekjur um tæpan helming. Ráðstöfunartekjur juk- ust um rúm þrjú prósent á síð- asta ári og var það tíunda árið í röð sem þær vaxa. Tekjur og ráð- stöfunartekjur voru lægstar árið 1994. Á þessum tíma hafa skattar hins vegar einungis hækkað um ellefu prósent á mann. Í Vefriti fjármálaráðuneytissins segir að það felist í eðli skattkerfisins að skattar hækki meira sem hlutfall af tekjum í uppsveiflu þótt ráð- stöfunartekjur á mann hækki meira. - dh RÁÐSTÖFUNARTEKJUR HÆKKA UM 57 PRÓSENT Skattar hafa hækkað um ellefu prósent á sama tíma. Fr ét ta bl að ið /H ör ðu r ERLENDUR VERÐBRÉFASALI Íslendingar kaupa sífellt meira af erlendum verðbréfum og námu kaupin 8,9 milljörð- um króna í júní. HÓTEL Á BESTA STAÐ Íbúðahótelið Lúna verður rekið samhliða Hótel Óðinsvéum en eigendur Lúnu hafa keypt af Bjarna í Brauð- bæ. JÓN S. VON TETZCHNER Opera Soft- ware hækkar um fjörutíu prósent á einum mánuði eftir fréttir um stóra samninga. 9.8.’04 9.9.’04 8.10.’04 9.11.’04 9.12.’04 10.1.’05 9.2.’05 9.3.’05 11.4.’05 9.5.’05 9.6.’05 11.7.’05 8.8.’05 7 8 9 10 11 12 13 14 15 G E N G I H L U T A B R É F A Í O P E R A S O F T W A R E S Í Ð U S T U 1 2 M Á N U Ð I Í N O R S K U M K R Ó N U M Opera hækkar mikið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.