Fréttablaðið - 10.08.2005, Side 40
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN16
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Kristján B. Jónasson, þróunar-
stjóri hjá Eddu – útgáfu og rit-
höfundur, segist hafa einfalt ráð
að gefa: Vinnan er allt og hún er
lífsstíllinn. „Ef maður hefur ekki
áhuga á henni þá er allt eins gott
að flytja til Mósambík og byrja
nýtt líf. Hún er allt sem maður
gerir og ég held að mér væri
ómögulegt að lifa án hennar.“
Kristján hefur lengi verið viðloð-
andi ritstörf og bókaútgáfu og
þekkir vel til hlutanna þar. „Ég
held að allir sem eru í bóka-
útgáfu og menningarlegum við-
skiptum leggi mikið upp úr vinn-
unni og hugsi þannig að hún
skipti máli.“
Miklar breytingar hafa orðið
á bókaútgáfu á Íslandi á undan-
förnum árum en nú er hún eins
og hver annar rekstur. „Það hefði
þurft að segja mér þrisvar fyrir
nokkrum árum að einkafyrir-
tæki gæti eingöngu byggt starf-
semi sína á útgáfu bóka.“ - eþa
B E S T A R Á Ð I Ð
Ef til vill kemur það mörgum á
óvart að heyra að Ice in a
bucket skuli vera alíslenskt
merki, enda hljómar það
eins og heiti erlendrar stór-
keðju. Félagið á rætur sínar
rekja aftur til ársins 2001,
þegar Halla Rut Bjarnadóttir
og Agnar Örn Jónasson opnuðu
litla verslun í Kringlunni. Keðjunni
hefur vaxið fiskur um hrygg og er
nú á sex stöðum.
Eigendurnir hyggja á frekari
landvinninga og beina spjótum
sínum að einum fremsta smásölu-
markaði Evrópu – Bretlandi – ef
nægilegt fjármagn fæst.
MIKILL VÖXTUR Á SKÖMMUM
TÍMA
„Við opnuðum fyrst litla búð í
Kringlunni. Það voru mjög fáir
sem höfðu trú á hugmyndinni í
fyrstu,“ segir Halla. Hún viður-
kennir að mikil vinna hafi farið í að
koma hugmyndinni á koppinn. Hún
gekk með hugmyndina í maganum
í tvö ár áður en af henni varð.
Hugmyndin var sú að opna eins
konar íslenska útgáfu af bresku
verslunarkeðjunum Accessorize
og Claire’s þar sem boðið yrði upp
á fylgihluti, skartgripi, töskur,
belti, snyrtivörur og svo framvegis
fyrir konur á öllum aldri á góðu
verði.
Hjólin fóru að snúast strax og
reksturinn sýndi hagnað fyrstu
þrjá mánuðina. Þau opnuðu á Akur-
eyri ári seinna og svo í Smáralind-
inni og umfangið hélt áfram að
aukast. Önnur verslun var opnuð á
Akureyri og Kringlubúðin var
stækkuð með því að flytja sig upp á
aðra hæð. Á þessu ári voru opnað-
ar tvær verslanir, í Hveragerði og
á Selfossi.
„Reksturinn hefur alltaf skilað
hagnaði og verið jafn og stöðugur
að öðru leyti. Veltuaukningin hefur
verið í öllum verslunum á hverju
ári og allar skila þær hagnaði,“
segir Halla.
SÉRFRAMLEIÐSLA ÁBERANDI
Gríðarleg vöruvelta er hjá versl-
ununum og eru seldar fleiri
hundruð vörur á hverjum einasta
degi. Fyrirtækið rekur einnig
fimm hundruð fermetra lagerhús
þar sem starfsmenn keppast við
að verðmerkja og flokka.
Mikið af vörunum eru hannað-
ar af Höllu Rut og sérframleitt
fyrir Ice in a bucket en einnig
eru keyptar inn vörur héðan og
þaðan. Fyrirtækið kaupir af tvö
hundruð birgjum og skiptir ört
um þá.
Vörunum er skipt í grunnvörur
og tískuvörur. Grunnvörurnar eru
til dæmis ýmsar spennur, teygjur
og klassískir skartgripir og eru að
mestu leyti sérframleiddar.
Tískuvörurnar eru einkum keypt-
ar frá Bretlandi, Frakklandi, Ítal-
íu og Þýskalandi.
Vægi sérframleiðslunnar er
alltaf að aukast, enda er inn-
kaupsverð mun lægra af henni en
á móti þarf að kaupa inn töluvert
magn sem dugar kannski í ár.
Mikil verðmæti geta því legið í
lagernum.
Halla er fús að viðurkenna að
gríðarleg vinna felist í því að
reka stóra keðju sem þessa en
fyrirtækið er vel skipulagt.
Um tuttugu starfsmenn
starfa fyrir Ice in a bucket.
FÆRA ÚT KVÍARNAR
„Ice in a bucket var stofnað
með það í huga að fara í stóru
samkeppnina í Bretlandi,“ segir
Halla blákalt. „Við viljum opna
þrjár til fimm verslanir á Bret-
landseyjum til að byrja með og
svo eina verslun á mánuði.“
Draumurinn er sá að opna eitt
hundrað verslanir á Bret-
landseyjum sem sameini vöru-
úrval helstu samkeppnisaðila á
borð við Accessorize and
Claire’s. Halla segir að viðskipta-
og markaðsáætlanir liggi fyrir,
búið sé að finna húsnæði og ráð-
gjafarfyrirtækið Oury Clark
Corporation Finance er meðal
annars að vinna að verkefninu.
„Það er mikilvægt að opna á
réttum stöðum ef af þessu verð-
ur. Við höfum mikinn áhuga á að
opna til að byrja með á túrista-
stað eins og í Brighton, sem og í
verslunarmiðstöðvum nærri
London.“
Halla bendir á að breski smá-
sölumarkaðurinn sé í lægð og því
sé gott tækifæri til að fara inn á
hann um þessar mundir. Þau
fyrirtæki í smásölurekstri sem
skila mestum hagnaði eru
einmitt þau sem selja ódýra
aukahluti eins og Accessorize og
Monsoon eða ódýran fatnað eins
og New Look.
KALLA Á FJÁRFESTA
Útrásin er þó háð fjármagni og
nú er leitað logandi ljósi að því.
Startkostnaður er um eitt
hundrað milljónir króna og segir
Halla að hlutafjárloforð liggi frá
fjölmörgum aðilum. Nú vanti að
banki eða stærri fjárfestar leggi
inn um sextíu milljónir.
Hún óttast helst að bankarnir
hafi einungis áhuga á stórum
aðilum þegar kemur að því að
lána til fjárfestinga erlendis.
Ekki sé hægt að leita til Nýsköp-
unarsjóðs og því séu fáar leiðir
fyrir minni fyrirtæki til að leita
sér að fjármagni.
Halla vonar að hugmyndin
strandi ekki á skilningsleysi karl-
manna sem eru aðalleikararnir í
viðskiptalífinu. Hún tekur dæmi af
eigin fyrirtæki: „Við erum að selja
konu- og stelpudót. Karlmenn hafa
ekki áhuga á spennum og skarti og
skilja ekki þessar vörur. Þeir átta
sig ekki á hvað konur eyða miklu í
aukahluti á hverju ári. Konur eru í
eðli sínu sjúkar í aukahluti og
maður sér enga konu sem ber ekki
skart á sér.“
Lánaumsókn liggur inni hjá
Landsbankanum og bíður hún
spennt eftir því að sjá hvort
bankinn hafi trú á konum í við-
skiptum.
Ice in a bucket
Eigendur: Halla Rut Bjarnadóttir og
Agnar Örn Jónasson.
Fyrirtækið stofnað árið 2001.
Verslanir: Sex verslanir – þar af fjórar á landsbyggðinni
Starfsmenn: Um 20
Velta: Ekki uppgefin
Sækja á Bretlandsmarkað
Halla Rut Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Ice in a bucket, hefur byggt upp eitt
áhugaverðasta smásölufyrirtæki landsins, sem rekur sex verslanir. Þörfin fyrir
skartgripi, belti, töskur og snyrtivörur á skikkanlegu verði er mikil. Eggert Þór
Aðalsteinsson settist niður hjá þessari kjarnakonu og heyrði hana segja frá út-
rásarhugsunum keðjunar og konum í viðskiptum.
FRIÐJÓN HÓLMBERTSSON hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri veitingasviðs
Ölgerðarinnar Egils
Skallagrímssonar
ehf. Friðjón hóf störf
hjá Ölgerðinni fyrir
tveimur árum sem
sölustjóri veitinga-
deildar. Friðjón hefur
viðamikla reynslu á
veitingasviðinu en
undanfarin tíu ár hefur hann starfað við
vín- og veitingageirann. Hann var hlut-
hafi og einn af stofnendum Tanksins
ehf. sem á og rekur Burger King og TGI
Friday’s á Íslandi. Áður en Friðjón hóf
störf hjá Ölgerðinni var hann sölustjóri
áfengis hjá heildverslun Karls K. Karls-
sonar en frá árinu 1995 til 2001 var hann
sölu- og markaðsstjóri Allied Domecq á
Íslandi.
KJARTAN PÁLL EYJÓLFSSON hefur tekið
við framkvæmdastjórn sölusviðs Öl-
gerðarinnar Egils
Skallagrímssonar
ehf. Kjartan hóf störf
hjá Ölgerðinni árið
2002 sem vöru-
flokkastjóri en
undanfarið ár hefur
hann starfað sem
sölustjóri yfir stór-
mörkuðum. Ábyrgðarsvið Kjartans í dag
er sala á öllum vörum Ölgerðarinnar
utan áfengis, í stórmörkuðum, bensín-
stöðvum eða söluturnum. Kjartan ber
einnig ábyrgð á útibúum Ölgerðarinnar
um allt land. Kjartan lauk BS-gráðu í
markaðsfræðum frá Coastal Carolina
University árið 2002 en áður en hann
hélt utan til náms starfaði hann hjá
sölu- og markaðsdeild Mjólkursamsöl-
unnar og síðar hjá Sól Víking. Á þessum
tíma öðlaðist Kjartan víðtæka reynslu í
sölu- og markaðsmálum á drykkjarvöru-
markaði.
GUÐBRANDUR ÖRN ARNARSON hefur
verið ráðinn þróunarstjóri 365 til að
sinna uppbyggingu
nýrra viðskiptaein-
inga innan fyrirtæk-
isins. Undanfarin
fjögur ár hefur Guð-
brandur Örn starfað
meðal annars sem
markaðs- og sölu-
stjóri hjá EJS, sem
framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu-
sviðs EJS og nú síðast sem þróunar-
stjóri fyrirtækisins. Áður starfaði hann
við vöruþróun hjá Mobilestop.com í
Bandaríkjunum og þar áður sem sölu-
og markaðsstjóri Miðheima-Skímu og
Háskólabíós. Guðbrandur Örn er með
BA-próf í heimspeki og MBA-gráðu
með áherslu á stjórnun og upplýsinga-
tækni.
HALLA RUT BJARNADÓTTIR, EIGANDI ICE IN A BUCKET Rekur stærstu verslanakeðju landsins sem selur aukahluti. Veltan og um-
fang hafa vaxið hröðum skrefum og nú vilja eigendur færa út kvíarnar.
KRISTJÁN B. JÓNASSON
Kristján er vinnufíkill og leggur mikið
upp úr vinnunni. Hann væri fluttur til
fjarlægra landa ef hann hefði ekki
áhuga á því sem hann gerir.
Lifir fyrir vinnuna
M
ar
ka
ðu
rin
n/
H
ei
ða
SKJALASKÁPAR
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF
Sundaborg 3 • sími 568 4800
www.olafurgislason.is
SKJALAPOKAR OG MILLIMÖPPUR
-og allt á
sínum
stað!