Fréttablaðið - 10.08.2005, Side 64
30 10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
„Þegar tveir snillingar leggjast
saman í eina sæng kemur út úr því
hrein snilld. Ég hefði ekki getað
beðið um meira,“ segir kvikmynda-
gerðarmaðurinn Ari Alexander
eftir að hafa horft á frumsýningu á
mynd Matthew Barney, Drawing
Restraint 9, hér á landi í gær. „Þetta
er í fyrsta sinn sem kvikmyndin er
sýnd utan Japans og Matthew
Barney sýnir Íslandi heiður með því
að sýna hana hér.“
Ari Alexander segir að Drawing
Restraint 9 höfði sterksta til sín af
þeim verkum sem hann hefur séð
eftir Barney. „Í myndinni sameinar
leikstjórinn mín helstu áhugamál,
kvikmyndagerð og myndlist. Það er
ákaflega heillandi að sjá þann heim
sem tekst að skapa þegar tónlistin
Bjarkar bætist við.“
Ari segir Drawing Restraint 9
vera tæknilegt snilldarverk en að
kveikjan að verkinu sé ekki síst
það sem geri myndina spennandi.
„Matthew Barney ber virðingu
fyrir viðfangsefninu og treður
ekki sinni skoðun að þó að hann sé
að takast á við ekki minni mál en
stríðið og hvalveiðarnar,“ segir
Ari en myndin byggir Barney á
þakkarbréfi Japana til bandarísks
hershöfðingja sem skrifað er eftir
kjarnorkuárásina á Nagasaki og
Hiroshima. „Matthew Barney
skoðar í myndinni samviskubit
Bandaríkjamanna og þetta flókna
samband sem ríkir milli Ameríku
og Japans en tekst samt sem áður
að taka ekki afstöðu.“
Ari segist verða að gefa
Drawing Restraint 9 fullt hús.
„Þetta er kvikmyndagerð og
myndlist eins og best gerist.“ ■
Kvikmyndager› eins og hún gerist best
DRAWING RESTRAINT 9 „Þegar tveir snillingar leggjast saman í eina sæng kemur út
úr því hrein snilld,“ segir Ari Alexander eftir frumsýningu á mynd Matthews Barney.
„Að horfa á myndir Matthews er í
rauninni eins og að njóta náttúr-
unnar eða horfa á fallegt lands-
lag,“ sagði tónlistarkonan Björk
Guðmundsdóttir rétt áður en
Drawing Restraint 9, nýjasta
kvikmyndalistaverk Matthews
Barney, eiginmanns Bjarkar, var
frumsýnt hér á landi í gær.
Myndin er fyrsta samstarfs-
verkefni hjónanna en Björk sem-
ur tónlistina og leikur í myndinni.
„Ég samdi tvo klukkutíma af tón-
list á sex mánuðum, sem er per-
sónulegt hraðamet,“ segir Björk
og hlær. „Ég hefði ekki lagt í þetta
nema af því að ég vissi að á síð-
ustu fimm árum hefðum við sáð
mörgum fræjum. Við höfum til
dæmis gengið niður Tryggvagöt-
una, horft á skipin í höfninni og
gert grín að því hvað það væri
gaman að gera skipasinfóníu.
Svona hefur ýmislegt seytlað í
undirmeðvitundinni og þegar við
lögðum af stað vorum við með
góðan grunn og gommu af hlutum
til að vinna úr.“
Drawing Restraint 9 gerist á
japönsku hvalveiðiskipi og er að
mestu leyti tekin upp í Nagasaki.
Myndin tekur á flóknu sambandi
Bandaríkjamanna og Japana en
opnunarlagið í myndinni sömdu
Björk og Barney við þakkarbréf
sem Japanar skrifuðu 13. júlí 1946 til bandarísks hershöfðingja.
„Þetta er allt mjög skrýtið því
Bandaríkjamenn byrjuðu á því að
sprengja borgirnar í tætlur. Þá
var enga vinnu að fá í Nagasaki og
Hiroshima og allt stefndi í
hungursneyð þar til bandarískur
hershöfðingi, MacArthur, ákvað
að breyta herskipunum í frystihús
fyrir hvalveiðar. MacArthur fékk
svo Bandaríkjastjórn til að aflétta
hvalveiðibanninu hjá Japönum.
Það bjargaði ástandinu og þá
sendu Japanir bréf til hershöfð-
ingjans þar sem þeir þakka
honum kærlega fyrir að hafa
bjargað þeim og vilja senda hon-
um þúsund gjafir.“
Japönsk menning og tengslin
við hafið er nokkuð sem aðdáend-
ur Bjarkar þekkja úr hennar fyrri
verkum. „Ég held að tengingin við
Japan sé sterkari í mér en Matt-
hew því fólk hélt oft að ég væri
frá Asíu þegar ég var lítil og Jap-
anar halda oft að ég sé frá Norður-
Japan. Mér var strítt á þessu í
skóla en ákvað að gera gott úr því
og ákvað að Japanir væru æðis-
legir. Ég sótti meira að segja um
skóla í Tókýó þegar ég var 18 ára
og ætlaði að læra þar teikni-
myndagerð. Svo var ég bara í
hljómsveit svo það varð ekkert úr
því,“ segir Björk en hún samdi
tónlistina við Drawing Restraint 9
í beinu framhaldi af útgáfu plöt-
unnar Medúlla. „Ég hef hangið
mikið með skúlptúristum í nokkur
ár og þeir hugsa svolítið öðruvísi.
Þeir spekúlera meira í umhverf-
inu en gengur og gerist og mér
fannst spennandi að stilla mig
meira inn á þá hugsun. Sumir
kalla þetta veggfóðurtónlist, sem
mér finnst reyndar ekki mjög að-
laðandi hugtak. Erik Satie kallaði
þetta húsgagnatónlist á sínum
tíma en sú tónlist krefst annars
konar athygli. Í raun er hægt að
raða hverju sem er við hana og
hlusta á hana í hjólreiðatúr, á
meðan fólk elskast eða eldar mat-
inn heima hjá sér.“
Í mynd Matthews Barney
virðist heimur Bjarkar og Barn-
ey renna algjörlega saman í eitt
og úr verður heillandi og áhrifa-
ríkt sköpunarverk. „Þú getur séð
það á vinkonu þinni ef kærastinn
hennar hefur áhrif á hana en hún
sér það ekki sjálf. Maður er inni
í púpu þegar maður er ástfang-
inn svo það er erfitt fyrir mig að
segja til um hvort eða með hvaða
hætti ég hef haft áhrif á verk
Matthews.“
Drawing Restraint 9 mun
ferðast með skúlptúrlistaverk-
um Matthew Barney á helstu
listasöfn heims á næstu tveimur
árum og verður auk þess sýnd á
kvikmyndahátíðum víða um
veröld. thorakaritas@frettabladid.is
BJÖRK Söngkonan blés til blaðamannafundar í gær til að kynna samstarfsverkefni sitt og
eiginmannsins Matthews Barney, Drawing Restraint 9.
Heimur Bjarkar og Matthews Barney
Þegar sextíu ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunni á Hiroshima og Nagasaki leiða eldfimu listamennirnir
Matthew Barney og Björk saman hesta sína í kvikmyndinni Drawing Restraint 9. Björk semur tónlistina við
kvikmynd eiginmannsins, sem fjallar að hennar sögn um flókin samskipti Bandaríkjamanna og Japana.
Eðlilegt þak enda peningarnir
takmarkaðir
Ég held að það sé ósköp eðlilegt
að hafa eitthvert þak á fæðingar-
orlofinu, hvort sem það er þessi
upphæð eða önnur. Þar sem
þessir peningar eru takmarkaðir
er þetta ágætis leið til að útdeila
orlofinu. Mér þætti þó betra að
láglaunafólk fengi 100 prósent af
launum í fæðingarorlofi og há-
launafólk fengi einhverja skerð-
ingu. Aðalatriðið er að foreldrar
geti verið hjá börnum sínum. Ég
efast um að þakið hafi veruleg
áhrif á hvort fólk taki fæðingaror-
lof.
Útgjöld vegna fæðingarorlofs
mikil
Hvort þetta er nákvæmlega sú tala
sem miðað á við má auðvitað
ræða, en ljóst er að við verðum að
hafa eitthvert þak á þessum
greiðslum. Því miður er ekki raun-
sætt að hafa þetta mikið hærra, út-
gjöld vegna fæðingarorlofs eru
þegar orðin mjög há og þetta eru
laun sem fólk ætti að geta lifað af.
Hins vegar er auðvitað slæmt ef
þetta verður til þess að hálauna-
fólk tekur ekki út sitt fæðingarorlof.
Barneignir kosta pásu frá starfs-
frama
Við verðum að gera okkur grein fyrir
því að það kostar alltaf vissa pásu frá
starfsframa að eignast börn. Konur
hafa í gegnum tíðina fengið að annast
þessa fórn og á móti fengið alla gleð-
ina af því en maður verður að sætta
sig við að það fylgir því viss launalækk-
un. Þegar fólk er komið með svona há
laun ætti það að hafa efni á því að
færa þessa fórn í launum. Ég skil mjög
vel þörfina á því að setja þak því við
getum ekki staðið undir því að annast
þessa byrði. Að sjálfsögðu er nauðsyn-
legt að hálaunafólk fái sama rétt til að
taka fæðingarorlof og aðrir. Það á að
vera þitt val, ekki atvinnurekandans.
HVAÐ FINNST ÞÉR UM AÐ ÞEIR SEM ERU MEÐ HÆRRI LAUN EN 600.000 EIGI EKKI RÉTT Á HÆRRA FÆÐINGARORLOFI EN 480 ÞÚSUND VEGNA LAUNA-
ÞAKS FÆÐINGARORLOFSSJÓÐS? Mánaðarleg greiðsla fæðingarorlofs getur ekki orðið hærri en 480 þúsund krónur, eða 80% af 600.000 króna mánaðarlaunum.
3 SPURÐIR
Brynhildur Fló-
venz, lögfræð-
ingur
Bolli Thorodd-
sen, formaður
Heimdallar
Elísabet Ólafía
Ronaldsdóttir,
kvikmyndargerð-
arkona
...fá íslensku friðarhreyfingarnar
sem stóðu að kertafleytingunni á
Reykjavíkurtjörn í tuttugusta
sinn í gærkvöldi í minningu fórn-
arlamba kjarnorkuárásanna á
Japan árið 1945.
HRÓSIÐ
STYLUS CX-3650
VILTU
TÖLVU?
Sendu SM
S skeyti›
BT SLF á
númeri›
1900 og
flú gætir
unni›.
Vi› sendu
m flér sp
urningu.
fiú svara
r
me› flví a
› senda S
MS skeyt
i› BT A,
B e›a C á
númeri›
1900.
Klikka›ir
aukavinn
ingar!
MEDION far
tölvur • EPS
ON prentara
r • SONY m
p3 spilarar
GSM símar
• SONY staf
rænarmynd
avélar • PS2
tölvur
Bíómi›ar á
Ævintýrafer
ðina • PS2 S
ingstar
Battlefield 2
• God of W
ar tölvuleik
ir • Kippur a
f Coke
og enn meir
a af DVD, g
eisladiskum
, tölvuleikju
m og fleira.
..
Taktu þátt
!
Þú gætir u
nnið
fartölvu fr
á BT og
margt flei
ra!
10. hver v
innur!
SMSLEIKUR
Vi
nn
in
ga
r
ve
r›
a
af
he
nd
ir
í
BT
S
m
ár
al
in
d,
K
óp
av
og
i.
M
e›
fl
ví
a
›
ta
ka
fl
át
t
er
tu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
i›
C8 OPTIVIEW 17
100GBharður diskur!
17” WideXGA skjár!
SUPER DVDskrifari!
NVIDIA
GeForce skjákort
Flottasta
skólavélin
!
TÖLVULEIKIR
CYBER
SHOT
DSC-S
40
X1 BLACK DRAGON
Ódýr
asta
skóla
vélin
!
GSM SÍM
AR
Lárétt: 2 undirlag, 6 frá, 8 mar, 9 nafar,
11 belti, 12 kornmeti, 14 ilmefni, 16
íþróttafélag, 17 á fæti, 18 ærða, 20 átt,
21 skjögra.
Lóðrétt: 1 gangur, 3 ármynni, 4 ljúf ( um
skáldskap), 5 fantur, 7 mótaði, 10 ítalska
sjónvarpið, 13 blóm, 15 fuglar, 16 söng-
hópur, 19 til.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2gólf, 6af, 8sjó,9bor, 11ól,12
brauð,14mirra,16ka,17tær, 18óða,
20na,21riða.
Lóðrétt: 1labb,3ós,4ljóðræn,5fól,7
formaði,10rai,13urt, 15arar, 16kór, 19
að.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI