Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 26
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Starfsmenn í KB banka eiga um
19,5 milljarða í hlutabréfum í
bankanum. Um síðustu áramót
áttu starfsmenn KB banka um
fimm prósent hlutafjár í bankan-
um, samkvæmt upplýsingum er
komu fram í ársreikningi, og
nam andvirði hlutanna 14,5 millj-
örðum króna. Bankinn hefur
hækkað um 35 prósent frá ára-
mótum og virði bréfanna um
fimm milljarða. Stór hluti af heildareign
starfsmanna í bankanum er í
höndum helstu stjórnenda og
framkvæmdastjóra. Ætla má að
markaðsvirði hlutabréfa í þeirra
eigu hafi hækkað um 2,5 millj-
arða frá áramótum.
Á mánudaginn síðastliðinn var
tilkynnt um að stjórnendur í KB
banka hefðu gert framvirka
samninga um kaup á hlutabréf-
um fyrir rúma 1,7 milljarða
króna á genginu 580. Kaupend-
urnir hafa hagnast strax á samn-
ingunum því gengi bankans er
komið yfir 600 krónur á hlut.
Hagnaðurinn á hvern aðila nem-
ur átta milljónum.
Af þeim innherjum sem eiga
aðild að þessum samningum eru
forstjórinn Hreiðar Már Sigurðs-
son og Sigurður Einarsson, starf-
andi stjórnarformaður, með
kauprétt að tæpum 7,7 milljónum
hluta samanlagt. Markaðsvirði
hlutanna miðað við síðasta gengi
er 4,6 milljarðar króna.
Á aðalfundi KB banka í mars
árið 2004 var samþykkt að veita
Hreiðari Má og Sigurði rétti til
þess að kaupa 812 þúsund hluti á
ári næstum fimm árin. Miðast
kaupgengi við markaðsvirði dag-
inn sem rétturinn er veittur.
Eignarhlutur Hreiðars Más,
án kaupréttar, er þessa stundina
um 1,2 milljarðar króna. Hann
hefur gert framvirkan samning
um kaup fyrir 232 milljónir
króna á genginu 580. Lokaupp-
gjör samnings verður 29. nóvem-
ber næstkomandi.
Eignarhlutur Sigurðar er um
1,5 milljarðar króna og hann hef-
ur sömuleiðis gert framvirkan
samning um kaup á bréfum fyrir
232 milljónir króna.
Kaupréttarsamningar til
starfsmanna hafa verið hluti af
starfskjörum þeirra allar götur
síðan árið 2000 þegar Kaupþing
og Búnaðarbankinn störfuðu sitt
í hvoru lagi. Ekkert félag í Kaup-
höll Íslands hefur jafn viðamikl-
ar kaupréttaráætlanir og KB
banki.
Vika Frá áramótum
Actavis Group 0% 7%
Bakkavör Group 2% 75%
Burðarás 1% 47%
Flaga Group -2% -34%
FL Group -2% 56%
Grandi 0% 7%
Íslandsbanki 1% 36%
Jarðboranir -3% 2%
Kaupþing Bank 1% 34%
Kögun -1% 24%
Landsbankinn 3% 80%
Marel 0% 28%
SÍF -3% -3%
Straumur -1% 39%
Össur -1% 16%
*Miðað við gengi í Kauphöllinni á mánudaginn
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Starfsmenn hagnast vel
Hlutabréfaeign starfsmanna í KB banka hefur hækkað um
fimm milljarða frá áramótum, þar af um 2,5 milljarða hjá 14
stjórnendum. Lykilstjórnendur hagnast um 8 milljónir króna
á einum degi vegna framvirks samnings.
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum
netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á
mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
Úrvalsvísitalan stóð í rúmum
4.600 stigum við lokun markaða í
gær og hefur aldrei verið hærri.
Vísitalan hefur hækkað um 38
prósent frá áramótum og um sex-
tíu prósent á ári undanfarin tvö
ár.
Atli B. Guðmundsson hjá
greiningu Íslandsbanka segir
engar blikur á lofti um að verð á
hlutabréfum lækki í bráð: „Þetta
er búið að vera gríðarlega öflugt
í sumar. Ég sé enga ástæðu til
annars en að búast við því að
verð á hlutabréfum haldi áfram
að tikka upp á við.“
Atli telur hækkanir síðustu
vikna knúnar áfram af góðum
uppgjörum fyrirtækja Kauphall-
arinnar: „Verð á hlutabréfum
byggir fyrst á fremst á vænting-
um og uppgjörin gefa vísbend-
ingu um að afkoma verði áfram
góð og vaxandi.“
Atli segir gamla máltakið um
að það sem upp fari hljóti að
koma aftur niður ekki endilega
eiga við í þessu tilviki: „Starf-
semi fyrirtækjanna hefur vaxið
mikið og kakan því stækkað.“ - jsk
KB banki á þrettán prósenta hlut
í danska Bonusbanken, sem
hækkað hefur hvað mest í
dönsku kauphöllinni á þessu ári.
Danski bankinn hefur tvöfaldast
í verði frá því í byrjun júní.
Bonusbanken hefur vaxið
hratt á undanförnum árum og
sérhæfir sig í einkabankaþjón-
ustu fyrir einstaklinga og minni
og meðalstór fyrirtæki. Bankinn
hagnaðist um eitt hundrað millj-
ónir á fyrri helmingi ársins, sem
er lítið minni hagnaður en fyrir
allt síðasta ár. - eþa
Ekkert lát á hækkunum hlutabréfa
Úrvalsvísitalan stendur í rúmum 4.600 stigum. Sérfræðingur Íslandsbanka
segir engar blikur á lofti um að verð fari lækkandi í bráð.
SPRON í sérflokki
Hagnaður sparisjóðanna eykst milli ára.
Atlantic leigir olíuborpall
Færist nær því að verða olíuframleiðandi.
Neytendur
bjartsýnir
Væntingavísitala Gallup hefur
ekki mælst hærri frá því í maí
2003 að því er kemur fram í
Morgunkornum Íslandsbanka.
Tiltrú neytenda á núverandi
ástandi í efnahags- og atvinnu-
málum hefur vaxið verulega að
undanförnu samhliða miklum
vexti í hagkerfinu og minnkandi
atvinnuleysi. Í Morgunkornum
kemur einnig fram að fleiri telji
að heildartekjur sínar verði
hærri en þeir sem telja að þær
verði lægri. - dh
Atlantic Petroleum hefur færst
nær því að verða olíuframleið-
andi með því að taka olíuborpall
á leigu á svokölluðu Chestnut-
svæði. Framleiðslugeta pallsins
er þrjátíu þúsund tunnur af olíu
daglega og geymslupláss fyrir
300 þúsund olíutunnur.
Chestnut-svæðið verður eitt af
minnstu framleiðslueiningunum
í Norðursjónum.
Borpallurinn verður leigður
að minnsta kosti til 30 mánaða
með möguleika á framlengingu
til 24 mánaða í viðbót.
Heildarvirði samningsins er
64 milljónir Bandaríkjadala eða
rúmir fjórir milljarðar.
Atlantic Petroleum, sem er
skráð á íslenska hlutabréfa-
markaðinn, hækkaði um tæp níu
prósent í kjölfar fréttanna af
olíuborpallinum.
Atlantic Petroleum á fimmt-
án prósent í olíuréttindum á
Chestnut-svæðinu en vonir
standa til að svæðið verði veru-
legt olíuframleiðslusvæði árið
2007. - dh
KAUPMANNAHÖFN KB banki er meðal
stærstu hluthafa í Bonusbanken, sem hef-
ur hækkað um 130 prósent frá áramótum.
TVEIR ÆÐSTU STJÓRNENDUR KB BANKA Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri og Sigurður
Einarsson stjórnarformaður.
ATLI B. GUÐ-
MUNDSSON
HJÁ GREIN-
INGU ÍS-
LANDSBANKA
Atli segir engar
vísbendingar
um annað en
að verð hluta-
bréfa í Kaup-
höllinni haldi
áfram að
hækka.
Stórir í Bonusbanken
Hagnaður stóru sparisjóðanna
jókst talsvert á fyrri hluta árs
miðað við sama tímabil í fyrra.
Hann var um þrír milljarðar
samanborið við um það bil 2.300
milljónir árið áður.
SPRON skilaði langmesta
hagnaðinum, nærri 1,6 milljörð-
um króna. Það var einum millj-
arði meiri hagnaður en hjá Spari-
sjóðnum í Keflavík, sem kom
næstur í röðinni. Hlutfallslega
jókst hagnaður mest hjá Spari-
sjóði Kópavogs (+285%) og
Sparisjóði Mýrasýslu (+92%).
SPH var eini sparisjóðurinn
sem skilaði minni hagnaði í ár en
í fyrra.
Ávöxtun eigin fjár var einnig
hæst hjá SPRON á fyrri hluta
ársins, um 55 prósent. Bæði
Sparisjóður Kópavogs og Spari-
sjóðurinn í Keflavík sýndu yfir
35 prósenta arðsemi eigin fjár. -
eþa
Hagnaður Arðsemi Hagnaður
2005 eiginfjár* 2004
SPRON 1.572 54% 1.305
SPKEF 501 37% 363
SPV 434 17% 235
SPM 213 30% 111
SPH 183 12% 276
SPK 135 39% 35
* Á ársgrundvelli
S E X M Á N A Ð A H A G N A Ð U R
S P A R I S J Ó Ð A N N A
MESTI HAGNAÐURINN HJÁ SPRON
Hagnaður stóru sparisjóðanna jókst um
þrjátíu prósent milli ára.
Markaðsvirði*
Sigurður Einarsson 1.507**
Hreiðar Már Sigurðsson 1.203**
Ingólfur Helgason 1.128**
Steingrímur Kárason 1.105**
Ármann Þorvaldsson 1.066**
Magnús Guðmundsson 1.026
Johnie Brogger 765
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson 745
Bjarki H. Diego 680**
Örvar Kærnested 449
Guðný Arna Sveinsdóttir 446**
Helgi Sigurðsson 297
Kristín Pétursdóttir 245
Friðrik S. Halldórsson 240**
* Markaðsvirði 30. ágúst (upphæðir í milljónum
króna)
** Hafa gert framvirkan samning um kaup á 400
þúsund hlutum á genginu 580. Verðmæti hvers
samnings er 232 milljónir. Lokauppgjör samn-
ings er 29. nóvember
Ólafur nær meirihluta í SS
Ólafur Wernersson hefur keypt
tæplega 45 prósenta hlut í B-
deild Sláturfélags Suðurlands.
Alls á Ólafur nú 55 prósent bréfa
í félaginu.
Ólafur keypti 29,45 prósenta
hlut af Frjálsa fjárfestingabank-
anum á rúmar 106 milljónir
króna og 15,14 prósenta hlut af
Guðmundi Alberti Birgissyni frá
Núpum á rúmar 55 milljónir.
Bréfin voru keypt á genginu
1,80 sem er fimmtíu prósentum
hærra en síðasta viðskiptagengi
þeirra. Markaðsvirði félagsins er
nú um 360 milljónir króna. - jsk
OLÍUBORPALLUR Framleiðslugetan er 30
þúsund tunnur daglega.
E I G N A R H L U T I R H E L S T U
S T J Ó R N E N D A K B B A N K A
M I Ð A Ð V I Ð G E N G I Ð 6 0 0