Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 15
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur verið brautryðjandi
hér á landi í framleiðslu og sölu bjórs í plastflöskum. Eg-
ils Pilsner var framleiddur og seldur á plastflöskum í
fyrrasumar og fékk geysigóðar viðtökur að sögn Andra
Þórs Guðmundssonar, forstjóra Ölgerðarinnar. Nú ný-
lega hefur Egils Gulli, Tuborg Grön og Litla-Jóni einnig
verið tappað á plastflöskur og viðtökurnar lofa góðu.
Með því að framleiða og selja bjór á plastflöskum er
Ölgerðin að feta í fótspor helstu bjórframleiðenda í
heimi og svara kröfum markaðarins um þægilegar um-
búðir utan um bjór - eina helstu neysluvöru heims. Sala
á bjór í plastflöskum hefur margfaldast undanfarin ár
og sífellt fleiri neytendur taka plastflöskurnar fram yfir
umbúðir í gleri og áli. Meðal heimsþekktra framleið-
enda sem tappa bjór á plastflöskur eru Heineken,
Holsten og belgíski framleiðandinn Martens.
Andri segir kosti plastumbúða vera marga en plast-
umbúðir hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þegar gos- og
vatnsdrykkir eru annars vegar. Plastumbúðir vegi ekki
nema einn sjöunda af þyngd glerumbúða. „Tappann má
skrúfa á aftur sem er mikið hagræði. Plastflöskur
brotna ekki og skapa því ekki hættu en það kunna skipu-
leggjendur alls kyns viðburða innanhúss og utan vel að
meta,“ segir Andri. Vegna ofantaldra kosta hafa plast-
umbúðir utan um bjór náð umtalsverðri markaðshlut-
deild á kostnað gler- og álumbúða. Á það ekki síst við um
Þýskaland en þýskir bjórunnendur búa við eitt mesta úr-
val bjórs í plastflöskum og hafa tekið þessari nýjung
afar vel.
Andri segir þó þróunina úr gleri og áli og yfir í plast
ekki hafa verið hindrunarlausa. „Lengi vel voru plast-
umbúðir ekki nægilega vandaðar til þess að geyma bjór.
Eiginleiki plastsins gerði að verkum að hætta var á að
súrefni kæmist að bjórnum og kolsýran seytlaði úr
flöskunni. Hvort tveggja er afar slæmt fyrir bjórinn og
styttir líftíma hans í umbúðunum umtalsvert.“
Fjöllaga plastflöskur hafa þótt mun vænlegri til þess
að ná fyrrnefndum markmiðum, að halda öllum eigin-
leikum bjórsins og tryggja fjögurra mánaða líftíma. Við
þetta má bæta að töluverð þróun hefur orðið í gerð tappa
á plastflöskur sem tryggja að súrefni eyðist úr flöskunni
eftir átöppun.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson notar fjöllaga plast-
flöskur fyrir bjór sem fyrirtækið bruggar en bæði upp-
blástur flöskustautanna, sem keyptir eru frá Þýska-
landi, og átöppun fer fram í verksmiðju fyrirtækisins
við Grjótháls í Reykjavík. - dh
Ölgerðin er frumkvöðull í framleiðslu
og sölu bjórs í plastflöskum
Sala bjórs í plastflöskum hefur stóraukist í helstu bjórlöndum Evrópu.
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ EINUM GLÆSILEGASTA BÍL SEM VÖL ER Á.
Nýbýlavegur 6 • 200 Kópavogur • S. 570 5400 • www.lexus.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
29
32
4
8
/2
00
5
The pursuit of perfection
Stíllinn er glæsilegur, yfirbragðið sportlegt, viðbragðið snöggt
og kraftmikið og aksturinn engu líkur. Vertu fremstur á þínu
sviði. Aktu á Lexus GS. Þú kemst varla nær fullkomnun.
Verð frá 5.150.000 kr.
Lexus GS færir okkur nær takmarkinu
Takmarkið er fullkomnun
SÁTTUR MEÐ PLASTIÐ Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.