Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 43
PETER MANDELSON SKÁLAR VIÐ KÍNVERSKA VIÐSKIPTARÁÐHERRANN
Mandelson er framkvæmdastjóri viðskiptamála hjá Evrópusambandinu og segir að nú þok-
ist í samkomulagsátt í vefnaðardeilu sambandsins við Kínverja.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 19
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Tveir menn, frá Marokkó og Tyrklandi, hafa
verið handteknir grunaðir um að hafa búið til
tölvuvírus sem olli milljarða tjóni í Bandaríkj-
unum fyrir röskum mánuði.
Farid Essebar var handtekinn í Marokkó og
Atilla Ekici í Tyrklandi stuttu seinna. Félagarn-
ir eru sagðir hafa hannað Zotob-vírusinn svo-
kallaða, sem nýtti sér galla í stýrikerfum frá
Microsoft. Rúmlega hundrað bandarísk stórfyr-
irtæki urðu fyrir tjóni, þar á meðal CNN-frétta-
stöðin og dagblaðið New York Times.
Yfirmaður tölvuglæpadeildar bandarísku al-
ríkislögreglunnar, Louis Reigel, sagðist þakk-
látur yfirvöldum í Marokkó og Tyrklandi fyrir
skjót vinnubrögð í málinu: „Án þeirra gengju
þessir tölvuþrjótar enn lausir.“
Microsoft hefur legið undir ámæli fyrir ör-
yggisgalla í stýrikerfum fyrirtækisins. Brad
Smith, yfirmaður öryggismála hjá Microsoft,
segir þau mál þó í góðum farvegi: „Við sáum
strax úr hvaða tölvum vírusinn kom. Menn
ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir
reyna eitthvað þessu líkt.“ - jsk
Wal-Mart, sem er móðurfélag
bresku stórmarkaðakeðjunnar
Asda, vill að yfirburðir Tesco-
stórmarkaðanna á Bretlands-
markaði verði rannsakaðir.
Tesco hefur 30,5 prósenta
markaðshlutdeild og telja for-
svarsmenn Wal-Mart að fyrir-
tækið hafi haft einokunartilburði
í frammi. Markaðshlutdeild
Asda er rúmlega sextán prósent.
Tesco-menn neita hins vegar
öllum ásökunum um einokun:
„Viðskiptahættir okkar hafa ver-
ið rannsakaðir áður og alltaf er
niðurstaðan sú sama; það er sam-
keppni á markaðnum og neyt-
andinn stendur uppi sem sigur-
vegari,“ sagði Lucy-Neville Rol-
fe yfirmaður lögfræðisviðs
Tesco. - jsk
Peter Mandelson, framkvæmda-
stjóri viðskiptamála hjá Evrópu-
sambandinu, segir að lausn sé í
sjónmáli í vefnaðardeilu ESB við
Kínverja.
Kvóti er settur á innflutning á
vefnaði og hafa Kínverjar nú
þegar fyllt sinn kvóta. Af þeim
sökum eru þúsundir tonna af föt-
um frá Kína fastar í evrópskum
tollum.
Evrópskir kaupmenn hafa
mótmælt þessu fyrirkomulagi og
segjast ekki ná að fylla búðir sín-
ar af varningi fyrir jólavertíðina
fáist kínversku fötin ekki leyst
úr tolli.
„Viðræður eru hafnar við Kín-
verja og það þokast í samkomu-
lagsátt. Það hefur enginn orðinn
gjaldþrota enn og við vonum að
lausn fáist áður en svo fer.“ - jsk
Lausn vefnaðardeilu í sjónmáli
Þúsundir tonna af fötum framleiddum í Kína
eru fastar í evrópskum tollum.
Wal-Mart sakar
Tesco um einokun
Grunaðir tölvuþrjótar handteknir
Tveir menn hafa verið handteknir grunaðir um að hafa hannað tölvuvírus
sem setti allt í uppnám hjá CNN og New York Times. Microsoft er gagn-
rýnt fyrir hönnunargalla í forritum sínum.
STÝRIKERFI FRÁ MICROSOFT Zotob-vírusinn svokallaði olli milljarða
tjóni í Bandaríkjunum. Tveir menn hafa verið handteknir vegna vírussins.
VERSLAÐ Í TESCO Tesco
hefur 30,5 prósenta markaðs-
hlutdeild í Bretlandi. Smásölurisinn
Wal-Mart sakar fyrirtækið um einokun.