Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 48
Ræstitæknir
óskast
Nú styttist í að nýir eigendur
taki við Símanum. Uppgjör fyr-
irtækisins var yfir væntingum
en betur má ef duga skal ef nýir
eigendur vilja fá sómasamlega
ávöxtun á fjárfestingu sína.
Flestir rekstrarspekúlantar eru
á því að ýmis hagræðingartæki-
færi liggi í rekstri fyrirtækisins.
Þeir efast hins vegar um að
Brynjólfur Bjarnason sé rétti
maðurinn í þá tiltekt. Fyrst og
fremst vegna þess að hann hefur
stýrt fyrirtækinu um skeið og
ekki víst að hann vilji fara í sárs-
aukafulla tiltekt. Brynjólfur nýt-
ur fyllsta trausts eigenda og
menn velta því fyrir sér hvort
hann gerist stjórnarformaður og
annar taki til við tiltekt. Orri
Hauksson er nefndur sem
kandídat í forstjórastólinn, en
margir eru á því að best væri að
ráða utanaðkomandi forstjóra
sem myndi svo taka pokann sinn
að tiltekt lokinni.
Á ferð og flugi
Bankamenn eru nú búnir að
draga línuna upp úr laxveiðián-
um og fram undan eru flugu-
hnýtingar til að róa taugarnar á
síðkvöldum. Lífið er aftur að
komast í eðlilegt horf og menn á
ferð og flugi.
Forsvarsmenn Straums með
Þórð Má Jóhannesson í broddi
fylkingar hafa gert víðreist að
undanförnu. Þeir hafa verið að
kynna mikinn styrk bankans eft-
ir sameiningu við hluta Burðar-
áss. Straumsmenn hittu erlenda
fjárfesta og leituðu hófanna með
samstarf í fjárfestingarverkefn-
um. Stoppistöðvarnar í þessum
túr voru London, Frankfurt og
Norðurlöndin.
Hlaup og söngur
Bjarni Ármannsson sem nú talar
orðið „flytande norsk“ hefur líka
verið á fullu í verkefnum bank-
ans. Hann er mikill orkubolti og
lét sig ekki muna um að hlaupa
heilt Reykjavíkurmaraþon á dög-
unum. Tími Bjarna var nokkuð
góður og greinilegt að hér fer
efnilegur langhlaupari. Næsta
sem fréttist af honum var þar
sem hann tók lagið með Stuð-
mönnum á Seltjarnarnesi. Bjarni
er Stuðmönnum að góðu kunnur
og kann öll þeirra lög sem hann
hefur oft áður brugðið fyrir sig
þegar stemningin hefur verið
rétt. Alltaf hefur verið svolítil
starfsmannavelta í Stuðmönnum
og nýtt tækifæri opnaðist nú síð-
ast fyrir Idol-stjörnuna Hildi
Völu. Staða Bjarna í Íslands-
banka er sterkari en oft áður, en
framganga hans með Stuðmönn-
um þykir gefa ágæt fyrirheit um
farsælan feril í poppinu. Einn
gárunginn sagði að eina sem
Bjarni þyrfti að gera til þess að
verða poppstjarna væri að skipta
um hárgreiðslu.
10% 100 40,12Spár gera ráð fyrir að stýrivextir Seðlabank-ans verði 10 prósent í lok september. milljóna króna hagnaður Jarðborana vegnasölu á Einingaverksmiðjunni. milljóna króna tap af Byggða-stofnun fyrstu sex mánuðiársins.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
B A N K A H Ó L F I Ð