Fréttablaðið - 31.08.2005, Side 57
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2005 17
VÍSINDI Geimvísindamenn segja
uppgötvanir sínar um Enceladus,
eitt tungla Satúrnusar, hreint út
sagt ótrúlegar. Með því að nota hið
háþróaða geimfar Cassini-Huygens
hefur þeim tekist að fá staðfest að
umhverfis tunglið, sem er rétt um
500 kílómetrar í þvermál, er all-
þykkur lofthjúpur.
Þeir hafa einnig komist að því að
á öðrum pól þessa íshnattar virðist
vera vatn í fljótandi formi í eins-
konar ám sem mynda rákir á yfir-
borði tunglsins. Vísindamennirnir
hafa hinsvegar ekki skýringu á
hinni miklu virkni tunglins Encela-
dus.
Tunglið er eitt af aðalviðfangs-
efnum Cassini-leiðangursins. Cass-
ini-gervitunglið er sagt vera sá
hlutur í alheiminum sem varpar
best frá sér ljósi en um 90 prósent
þeirrar birtu sem lendir á farinu
endurvarpast um hæl út í geiminn.
Farið er á sporbaug um Satúrnus,
um 240 þúsund kílómetra frá yfir-
borðinu eða eins og í ysta hring
reikistjörnunnar. - oá
stjórnarkosningar hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn haldið prófkjör fimm
sinnum en tvisvar hefur verið stillt
upp á listann af kjörnefnd flokks-
ins í Reykjavík. Auk síðustu kosn-
inga var það árið 1990.
Síðast var því prófkjör hjá
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík
árið 1997 en þá var reyndar einnig
barist um efsta sætið því þá bauð
Inga Jóna Þórðardóttir sig fram
gegn Árna Sigfússyni, þáverandi
oddvita borgarstjórnarflokksins, í
prófkjöri en Árni sigraði og hlaut
4.542 atkvæði í efsta sætið en Inga
Jóna 1.184 atkvæði. Inga Jóna
hafnaði í þriðja sæti í prófkjörinu
en prófkjörsreglur voru öðruvísi
þá en í því prófkjöri sem áður var
vísað til og hægt að merkja við
frambjóðendur í númeraðri röð.
Þátttaka í prófkjörum sjálf-
stæðismanna er mikil. Rík hefð er
fyrir prófkjörum hjá flokknum
hvort sem er fyrir borgarstjórnar-
kosningar eða alþingiskosningar.
Ekki mun skoðanakönnun Frétta-
blaðsins frá því um helgina um
fylgi flokkanna í Reykjavík draga
úr áhuga reykvískra sjálfstæðis-
manna til að taka þátt í prófkjör-
inu, hvort sem er sem frambjóð-
endur eða kjósendur. Ekki síst þeg-
ar efsta sætið í prófkjörinu getur
gefið borgarstjórastólinn eins og í
prófkjörinu þegar Davíð sigraði.
HJÁLMAR BLÖNDAL
ritstjorn@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING
Útiljós á vegg – Galv.
7.990-
Útistaur – h: 110 cm
HELSINKI
5.960-
Útistaur – h: 43 cm
APOLLO
3.950-
Útiljós á vegg – HELSINKI
2.990-
Útiljós á vegg – Svart
1.990-
Útiljós á vegg – Hvítt
1.990-
Útistaur - h: 43 cm
HELSINKI
3.980-
Útistaur – h: 92 cm
Kopar
9.990-
Útiljós á vegg – Stál
4.950-
Garðsett
3 útistaurar – Svart
6.990-
úrval útiljósa á frábæru verði
Útiljósatilboð
Opið laugardaga:
11:00 - 16:00
Útistaur – h: 90 cm
Svart
5.980-
Útiljós á vegg – Svart
4.930-
Útiljós á vegg - Stál
Midi
7.990-
KLAKKUR, Vík / BYM, Mosfellsbæ / FOSSRAF, Selfossi / GEISLI, Vestmannaeyjum / HS RAF, Eskifirði / KH. BLÖNDUÓSI / KAUPF.HVAMMSTANGA / LÓNIÐ, Höfn
RAFBÚÐ RÓ, Keflavík / RAFBÚÐIN ÁLFASKEIÐI, Hafnarfirði / RAFALDA, Neskaupstað / RAFBÆR, Siglufirði / ÞRISTUR, Ísafirði / RAFLAMPAR, Akureyri
ÖRYGGI, Húsavík / RAFSJÁ, Sauðárkróki / KRÁKUR, Blönduósi / SVEINN GUÐMUNDSSON, Egilsstöðum / RAFLOST, Djúpavogi
ENCELADUS Í HLUTFALLI VIÐ BRETLANDSEYJAR Vatn virðist renna frá öðrum pól tunglsins.
M
YN
D
/N
AS
A
Cassini-Huygens leiðangurinn:
Lofthjúpur um eitt
tungla Satúrnusar