Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 8
1Hver var endurkjörinn forseti Egypta-lands?
2Hvað heitir nýrekinn forsætisráðherraÚkraínu?
3Með hvaða liði í Englandi spilarHannes Þ. Sigurðsson?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Launahækkanir hjá fyrirtækjum í verslun og þjónustu:
Gert vel vi› útvalda starfsmenn
LAUNAMÁL „Fyrirtæki í verslun og
þjónustu hafa að undanförnu
hækkað laun þeirra starfsmanna
sinna sem þykja eftirsóknarverðir
til að tryggja að þeir hætti ekki,“
segir Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu. Þetta var niðurstaða
könnunar starfsmanna samtak-
anna á stöðu launa- og starfs-
mannamála hjá tíu stórum aðildar-
fyrirtækjum.
„Þetta er ekki almennt launa-
skrið,“ segir Sigurður. „Samkvæmt
svörum fyrirtækjanna er verið að
gera vel við útvalda starfsmenn.“
Flest fyrirtækin sögðu starfs-
mannaveltu mun meiri núna en á
sama árstíma undanfarin ár, þó
ekki þannig að til vandræða horfði.
Hvað varðar fjölgun auglýsinga
þar sem auglýst er eftir eldra fólki
sögðu stjórnendur fyrirtækjanna
sem haft var samband við það ekki
vera nýja stefnu að leggja áherslu
á ráðningu eldra starfsfólks.
Ástæðan væri fremur sú, að þessir
einstaklingar hefðu ef til vill ekki
áttað sig á því að þeirra starfs-
krafta væri óskað til jafns við alla
aðra góða starfsmenn.
- jss
VESTFIRÐIR „Það er einfaldlega verið
að reyna að koma í veg fyrir það að
óþægilegar skoðanir fyrir stjórnar-
flokkana heyrist á fjórðungsþing-
inu,“ segir Sigurjón Þórðarson,
þingmaður Frjálslynda flokksins,
eftir fjórðungsþing Vestfjarða sem
haldið var um síðustu helgi.
Hann segir á vef sínum að Birna
Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar, hafi viljað skerða
málfrelsi þingmanna sem boðnir
voru á þingið í kjölfar ræðu þar sem
Sigurjón deildi hart á framgöngu
stjórnvalda í málefnum fjórðungs-
ins. Lagði hún fram tillögu að breyt-
ingum þingskapa sem kveður harð-
ar á um málfrelsi, setu- og tillögu-
rétt þingmanna á fjórðungsþinginu.
Tillagan var samþykkt.
„Ég lít einfaldlega svo á að fjórð-
ungsþingið sé ekki vettvangur fyrir
þingmenn til að karpa um það hver
sé bestur heldur á að þetta að vera
vettvangur fyrir sveitarstjórnar-
menn til að tala um málefni fjórð-
ungsins, en undanfarin ár hefur
mér fundist sem þingmenn líti á
þetta sem einhverskonar vasaút-
gáfu af Alþingi,“ segir Birna. - jse
Ungur Ísfirðingur:
Var heimilt a›
berja mann
DÓMSTÓLAR Ísfirðingi á þrítugs-
aldri var ekki gerð refsing í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í gær fyrir
að hafa slegið mann nokkrum
sinnum í andlitið aðfaranótt
sunnudagsins 13. febrúar síðast-
liðins.
Sá sem var laminn hruflaðist
á nefi og bólgnaði í andliti. Sá
sem kýldi lýsti því hjá lögreglu
að hann hefði verið nauðbeygður
til að slá hinn til að stöðva árás
hans á þriðja mann. Dómurinn
féllst á að ákærði hefði ekki
gengið lengra en þurft hefði til
að stöðva þá árás og var ungi
maðurinn því sýknaður.
- óka
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON Sigurjón segir
það fáheyrt að kjörnir fulltrúar séu
boðaðir til fjórðungsþings en síðan
reynt að þagga niður í þeim ef skoð-
anir þeirra séu öðrum óþægilegar.
SIGURÐUR JÓNSSON Ekki almennt
launaskrið, heldur launahækkanir til
einstakra starfsmanna.
Fjórðungsþing Vestfirðinga:
Málfrelsi takmarka›
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLYS Í KÓPAVOGI Ekið var á
gangandi vegfarenda á gangbraut
í Kópavogi í fyrradag. Vegfar-
andinn var fluttur á slysadeild
með fótbrot en slapp að öðru
leyti vel.
Lánsbíll eyðilagður:
Eigandinn fær
ekki bætur
DÓMSTÓLAR Maður á fertugsaldri
fær ekki bætta rúmlega 2,5
milljóna króna Audi-bifreið sem
hann átti. Maðurinn lánaði hana
öðrum um mitt sumar árið 2002.
Sá sem fékk bílinn lánaðan
gjöreyðilagði hann með ofsa-
akstri um vegþrengingu á
Laugavegi fyrir ofan Hlemm og
skemmdi fjölda annarra bíla í
leiðinni, en hann missti vald á
bílnum þegar hann ók á
vegkannt.
Dómurinn segir bíleigandann
hafa borið ábyrgð á akstrinum
að því leyti sem á reyndi í mál-
inu, því hann hafði lánað bílinn.
Eigandinn stefndi Sjóvá-
Almennum til greiðslu bótanna.
Sjálfur þarf maðurinn hins
vegar að borga tryggingarfélag-
inu 200.000 krónur í máls-
kostnað. - óká
Deilan í Garðasókn:
Sóknarbörn
kæra til biskups
TRÚMÁL Sóknarbörn í Garðasókn
kærðu í síðustu viku til biskups
brota á fundarsköpum á aðalsafnað-
arfundi sem haldinn var 30. ágúst
síðastliðinn. Krefjast þau þess að
fundurinn verði dæmdur ólögmæt-
ur.
Þau segja að dr. Gunnar Krist-
jánsson hafi viðhaft illgirni og
ósanngirni í málflutningi sínum og
nokkrum fundargesta brugðið svo
illa að þeir hurfu grátandi af fundi.
Sóknarbörnin segja fundarstjóra
ekki hafa haft heimild til að víkja af
dagskrá fundarins með því að setja
Gunnar skyndilega á mælendaskrá.
- jse
Úthlutun úr tónlistarsjóði:
Fjörutíu og
einn styrkur
MENNING Menntamálaráðuneytið
kynnti í fyrradag hverjir hljóta út-
hlutun úr tónlistarsjóði í ár en alls
voru veittar tæpar þrettán milljónir
króna til 41 tónlistarmanns.
Hæsti styrkurinn að þessu sinni
var veittur Félagi íslenskra tónlist-
armanna til tónleikahalds á lands-
byggðinni.
Þorkell Sigurbjörnsson hlaut
rúmlega milljón króna ferðastyrk
til að flytja kammeróperuna Gretti í
Toronto og Calgary í Kanada en
hann fer þangað með kammersveit
sinni í janúar á næsta ári.
Einnig hlaut Jóhann Jóhannsson
eina milljón króna til að kynna tón-
list sína í Evrópu og Bandaríkjun-
um. - jse
LANDBÚNAÐUR Á mánudaginn hefst
á ný vinnsla í kjötmjölsverk-
smiðju Kjötmjöls í Hraungerðis-
hreppi, en henni var lokað í apríl
þar sem ekki þótti grundvöllur
fyrir rekstrinum. Frá þeim tíma
hefur sláturúrgangur á Suður-
landi verið urðaður.
Torfi Áskelsson, verksmiðju-
stjóri Kjötmjölsverksmiðjunnar
segir ákveðið hafa verið að Sorp-
stöð Suðurlands leigði rekstur-
inn af KB banka. Sorpstöðin
hættir að taka við sláturúrgangi
til urðunar þegar verksmiðjan
hefur starfsemi að nýju. „Og við
hækkum móttökugjaldið til að ná
núllinu í rekstrinum,“ segir
hann. KB banki keypti verk-
smiðjuna á nauðungaruppboði í
fyrra og rak um sinn með tapi, á
meðan beðið var eftir því að
rekstur hennar yrði tryggður.
Bankinn gafst upp á biðinni í vor
og lokaði verksmiðjunni. Síðan
þá hefur þurft að urða sláturúr-
gang á Suðurlandi, en verksmiðj-
an tekur við úrgangi frá Suður-
landi og höfuðborgarsvæðinu.
Steinþór Skúlason, forstjóri
Sláturfélags Suðurlands, segir
það þýða kostnaðarauka fyrir fé-
lagið þegar verksmiðjan fer í
gang að nýju og hefur nokkrar
áhyggjur af skekktri samkeppn-
isstöðu kjötvinnsla og sláturhúsa
á landinu. „Þó svo að öll ráðstöf-
un og umhverfismál eigi að vera
í lagi, þá þarf það að gilda alls
staðar. Það má ekki skekkja sam-
keppnisstöðu fyrirtækja með því
að við fáum á okkur kostnað upp
á tugi milljóna sem samkeppnis-
aðilar annars staðar á landinu
þurfa ekki að bera af því þar eru
hlutir gerðir með einhverjum
allt öðrum og ófullnægjandi
hætti,“ segir hann og bætir við
að ef móttökugjald verksmiðj-
unnar fyrir sláturúrgang verði
óheyrilegt, þá muni félagið
reyna að leita annarra leiða með
förgun.
„Það er ekki hægt að bjóða
þessum atvinnurekstri á Suður-
landi upp á að hann eigi að búa
við allt önnur starfsskilyrði en
aðrir,“ segir hann.
Kjötmjölsvinnslan verður
með svipuðu sniði og verið hefur
en afurðir verksmiðjunnar eru
urðaðar því engir markaðir eru
fyrir mjölið. Erlendir markaðir
urðu að engu eftir að kúariða
komst í hámæli og svo starfar
verksmiðjan líka á sauðfjárriðu-
svæði. Torfi Áskelsson segir þó
unnið verða að því að finna nýja
markaði fyrir mjölið.
olikr@frettabladid.is
Kjötmjöl unni› í Flóanum á n‡
Sorpstö› Su›urlands hættir a› taka vi› sláturúrgangi til ur›unar á mánudaginn. fiá hefst aftur rekstur
kjötmjölsverksmi›ju í Hraunger›ishreppi, en hærra móttökugjald á a› tryggja reksturinn. Forstjóri
Sláturfélags Su›urlands, Steinflór Skúlason, segir samkeppnisgrundvöll skekktan.
HJÁ ALI KJÖTVÖRUM Í HAFNARFIRÐI Við slátrun og kjötvinnslu leggst til nokkur úrgangur sem farga þarf með einhverju móti. Af slíkum
úrgangi getur stafað nokkur smit- og sjúkdómahætta og því hefur þótt hreinleg lausn að vinna hann í kjötmjöl.