Fréttablaðið - 10.09.2005, Side 53
LAUGARDAGUR 10. september 2005 29
miklu máli fyrir efnahagsstjórn-
ina, þurfi meira til. Það er ekki í
takt við breytta tíma að standa
svona að málum eins og gert er.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð
stofnun sem fer með stjórn efna-
hagsmála en ekki framlenging á
ráðuneyti efnahagsmála,“ segir
hún.
Sigurður Snævarr, fulltrúi hag-
fræðinga í Félagi viðskipta- og
hagfræðinga, er annarrar skoðun-
ar. Hann segir að stjórn Seðla-
bankans sé ekki hagfræðilegt úr-
lausnarefni heldur ákveðin list.
Bakgrunnur Davíðs Oddssonar og
reynsla hans af stjórnmálum
muni nýtast honum og bankanum
mjög vel.
„Það skiptir öllu máli að bank-
inn sé sjálfstæður gagnvart
stjórnmálamönnum og stjórnmál-
um. Það skiptir líka verulegu máli
að seðlabankastjóri hafi nef fyrir
tíma svo hann skynji hvenær rétti
tíminn er til að grípa til aðgerða.
Það er list. Ég hef mikla trú á hag-
fræði og hagfræðingum en mér
finnst fráleitt að það sé skilyrði til
að gegna þessu starfi að menn
hafi einhvern sérstakan bak-
grunn,“ segir Sigurður.
Ekki einu sinni í Afríku
Þorvaldur Gylfason, prófessor í
hagfræði við Háskóla Íslands,
bendir á að löggjöf um seðlabanka
hafi breyst til batnaðar undan-
gengin ár í flestum nálægum
löndum og einnig hér heima með
nýju Seðlabankalögunum frá
2001. „Höfuðmarkmið breyting-
anna var að auka sjálfstæði seðla-
bankanna innan stjórnkerfisins til
að draga úr hættunni á því, að
skammsýnir stjórnmálamenn
valdi skaða, til dæmis með því að
beita völdum sínum til þess að fá
seðlabankastjóra til að prenta
peninga til að fjármagna at-
kvæðakaup fyrir kosningar,“ seg-
ir Þorvaldur.
„Af þessum sökum þykir það
nú brýnt, að stjórnmálamönnum
sé haldið í fjarlægð frá seðlabönk-
um. Þeir eru ekki aðeins taldir
óhæfir, heldur beinlínis vanhæfir
samkvæmt eðli málsins. Sums
staðar, til dæmis í Ísrael, hafa
menn jafnvel sótt seðlabanka-
stjóra til útlanda einmitt til að
draga sem allra mest úr hættunni
á hagsmunatengslum bankastjóra
við stjórnmálamenn og flokka
innan lands,“ segir Þorvaldur.
„Við þetta bætist það, að seðla-
bankastjórn hefur undangengin
ár kallað í auknum mæli á yfir-
gripsmikla sérþekkingu á efna-
hagsmálum, sérþekkingu af því
tagi sem menn hafa yfirleitt ekki
tök á að afla sér nema þeir séu
annaðhvort þrautþjálfaðir hag-
fræðingar eða þaulreyndir banka-
menn,“ segir hann.
„Ráðning Davíðs Oddssonar í
stöðu seðlabankastjóra gengur í
berhögg við þessi sjónarmið og
gengur einnig í berhögg við anda
nýju seðlabankalaganna, sem rík-
isstjórn hans fékk samþykkt á Al-
þingi 2001. Ráðning Jóns Sigurðs-
sonar í stöðu Seðlabankastjóra
fyrir fáeinum misserum var sama
marki brennd, og hið sama er að
segja um ráðningu til dæmis Birg-
is Ísleifs Gunnarssonar og Stein-
gríms Hermannssonar á sínum
tíma, enda voru þeir ráðnir á allt
öðrum forsendum, yfirleitt til að
greiða götu þeirra út úr stjórn-
málum,“ segir Þorvaldur.
„Slíkir menn eru ekki taldir
henta til seðlabankastjórastarfa í
nálægum löndum, ekki heldur í
Afríku nema á stöku stað, og gild-
ir þá einu, hversu vel þeir kunna
að hafa reynst í ólgusjó stjórnmál-
anna,“ segir hann. ■
BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON 1991-2005
MENNTUN: Lögfræðipróf
frá Háskóla Íslands
FYRRI STÖRF: Lögmaður
1963-1972. Borgarstjóri í
Reykjavík frá desember
1972-1978. Þingmaður
Sjálfstæðisflokksins 1979-1991. Mennta-
málaráðherra 1987-1988.
EIRÍKUR GUÐNASON 1994-
MENNTUN: Hagfræðipróf
frá Háskóla Íslands
FYRRI STÖRF: Hefur unnið
í bankanum frá árinu
1969, fyrst sem fulltrúi,
þá deildarstjóri og svo
hagfræðingur bankans frá 1984-1986.
Aðstoðarbankastjóri 1987-1994.
JÓN SIGURÐSSON 2003-
MENNTUN: Doktorspróf í
menntunarfræði og
fræðslustjórnun frá
Bandaríkjunum. MBA í
rekstrarhagfræði.
FYRRI STÖRF: Ritstjóri Tím-
ans 1978-1981. Skólastjóri Samvinnu-
skólans á Bifröst 1981-1988. Rektor
Samvinnuháskólans á Bifröst 1988-
1991. Framkvæmdastjóri Vinnumála-
sambandsins (sameinað í Samtök at-
vinnulífsins) 1997-1999. Ýmis trúnaðar-
störf á vegum Framsóknarflokksins, sat
í miðstjórn flokksins 1978-1981.
NÚVERANDI BANKASTJÓRN
DAVÍÐ ODDSSON 2005-
MENNTUN: Lögfræðipróf frá Háskóla Íslands.
FYRRI STÖRF: Borgarstjóri í Reykjavík 1982-1991.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins 1991-2005. Forsætis-
ráðherra 1991-2004, utanríkisráðherra 2004-2005.
Formaður Sjálfstæðisflokksins 1991-2005.
» Tekur vi› af Birgi Ísleifi í október næstkomandi
„Hva›a skilyr›i menn eigi
a› uppfylla til a› geta
rækt stö›u se›labanka-
stjóra flá er fla› fyrst og
fremst náttúrlega almenn
skynsemi, í ö›ru lagi
grundvallarflekking á
fljó›lífinu, í flri›ja lagi
ví›tæk flekking á efna-
hagsmálum fljó›arinnar, í
fjór›a lagi stjórnunar-
hæfileikar, í fimmta lagi
hæfileikinn til fless a›
geta teki› ákvar›anir og
svo framvegis.“
DAVÍÐ ODDSSON
í umræðum á Alþingi um breytingar
á lögum um Seðlabanka Íslands 2001
PANTAÐU SMÁAUGLÝSINGAR Í SÍMA 550 5000 EÐA Á VISIR.IS.
– SMÁAUGLÝSINGAR SEM ALLIR SJÁ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
7
2
7
Vantar þig...
YFIR 150.000 ÍSLENDINGAR LESA FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI Á HVERJUM DEGI. SMÁAUGLÝSING
Í FRÉTTABLAÐINU ER ÓDÝR OG ÁHRIFARÍK LEIÐ
SEM TRYGGIR MESTU HUGSANLEGU ÚTBREIÐSLU
Á SKILABOÐUM ÞÍNUM. AUGLÝSINGIN ER AUK
ÞESS BIRT ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU Á VISIR.IS.