Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 66
42 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Ég er svo heilaþveginn
af gegndarlausum
þjóðrembingsáróðri
um að íslenska vatnið
sé tærast, íslensku
konurnar fallegastar,
íslensku karlarnir
sterkastir og íslenska
heilbrigðiskerfið sé það besta í
heimi að ég taldi víst að dagar mín-
ir væru taldir þegar ég veiktist
skyndilega í útlöndum um daginn.
Hvað um það. Ég fékk skelfi-
lega kviðverki í Grikklandi og eft-
ir að hafa engst um á hótelinu í
tvo daga gafst ég upp og kallaði til
lækni. Sá vildi umsvifalaust senda
mig á spítala, hringdi á sjúkrabíl
og lét bruna með mig á einkarek-
inn spítala sem hann var á mála
hjá. Þar var mér tjáð að það yrði
að skera úr mér botnlangann um-
svifalaust.
Þar sem ég er ótryggður vildi
ég fá að vita hvað slík aðgerð kost-
aði áður en ég færi undir hnífinn.
Listaverðið á botnlangaskurði var
6.000 evrur eða eitthvað í kringum
hálfa milljón. Heimildin á Vísa-
kortinu mínu hefði ekki einu sinni
dugað fyrir þessu þannig að ég lét
flytja mig (enn sárkvalinn auðvit-
að) á ríkisspítala.
Þar var ég skoðaður af vægast
sagt afslöppuðum læknum sen
önguðu af áfengi og tóbaksreyk.
Yfir mér sveimuðu moskítóflug-
urnar og ég átti mér enga ósk heit-
ari en að vera kominn á hinn dauð-
hreinsaða, alíslenska Landspítala -
háskólasjúkrahús. Ég hugsaði auð-
vitað til þess með hryllingi að
þessir slompuðu gaurar, afkom-
endur Hippókratesar í beinan karl-
legg, ættu eftir að skera mig upp
og gladdist því ósegjanlega þegar
þeir tjáðu mér að ég væri með
nýrnastein og það væri ekkert að
botnlanganum mínum.
Nú er það svo að jafnvel traust-
ustu björg geta molnað niður, orð-
ið að sandi og skolast burt og ég
geri mér því vonir um að steinn-
inn sé úr sögunni. Ég hef svo enn
tækifæri til að tryggja botnlang-
ann minn og mun gera það áður en
íslenska heilbrigðiskerfið verður
einkavætt og hann verður skorinn
úr mér upp á grín til að græða
peninga. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON BJARGAÐI HÁLFRI MILLJÓN OG BOTNLANGA Í ÚTLÖNDUM
Botnlanginn tryggður eftir á
Lesendur „Allts“ er fólk með áhuga á efni
hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur
hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að
þeir staldra við.
Það er með öðrum orðum, vel skilgreindur og
áhugasamur hópur, sem skoðar t.d. þessa
auglýsingu.
Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka
auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur
áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til.
„Allt“ er löngu tímabær og áhugaverður valkostur
á íslenskum auglýsingamarkaði.
...um bíla
á laugardögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
5 2 6 7
4 8 3 9
2 6 1 8
5 9 1
9 2 5 3 8 6
2 8 4
1 7 3 8
6 7 5 3
8 4 9 7
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
7 4 1 2 5 6 8 3 9
5 3 8 1 7 9 2 6 4
9 2 6 3 8 4 1 5 7
2 6 9 4 1 5 7 8 3
4 8 3 9 6 7 5 1 2
1 7 5 8 2 3 4 9 6
6 9 2 5 4 1 3 7 8
8 5 7 6 3 2 9 4 1
3 1 4 7 9 8 6 2 5
Lausn á gátu gærdagsins
Af hverju kallast þetta
morgunþynnka ef þetta
varir allan liðlangan daginn?
Hvar eru allar
myndirnar af mér?
Ég er svo ánægður
að þetta dæmi með
Önnu er búið.
Ég held að Anna sé týpan
sem sækist eftir hlutum
sem hún getur einfaldlega
ekki fengið.
Af hverju
segirðu það?
Hef það bara
á tilfinning-
unni.
Hæ
Mikael!
Farðu og spurðu
strákinn hvort hann
vilji leika við þig,
Hannes.
Hann heitir
Matthías.
Það eina sem þú þarft að
segja er: „Hæ, ég heiti
Hannes, viltu leika við mig?“ Tðukkuð!
Tðaktoð!
Eða þú gætir
bara sagt það…
Þungavinnu-
vélar: Alþjóð-
legt tungumál
karlkynsins.
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N