Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 2
2 2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Bilun í katlabún-
aði Landspítala-háskólasjúkra-
húss við Hringbraut í Reykjavík
varð til þess að síðustu daga hefur
meira borið á því að svartan reyk
legði frá spítalanum.
„Við erum með olíuketil sem
keyrður er upp snemma á morgn-
ana og varakyndingu, svartolíu-
katla, en frá þeim kemur stund-
um svartur reykur þegar þeir eru
keyrðir upp,“ segir Aðalsteinn
Pálsson, sviðsstjóri bygginga-
sviðs LSH. Hann segir brennslu-
búnað spítalans vera í yfirferð og
lagfæringu sem ljúki senn.
Í hádeginu á mánudag mátti í
smástund sjá nokkrar kolsvart-
ar gusur. Aðalsteinn segir svo
óvanalegt orðið að reykur sjáist
í borginni að mörgum bregði við.
„Þannig var það í Fossvoginum
fyrir nokkru, en þar uppi er rautt
ljós fyrir flugvélar sem lýsti upp
reykinn og fólk hélt að kviknað
væri í.“ - óká
Mökkinn lagði frá spítalanum:
Brennslubún-
aður lagfærður
MÖKKUR FRÁ SJÚKRAHÚSINU vartolíukatlar
Landspítala-háskólasjúkrahúss við Hring-
braut reykja þegar þeir eru keyrðir upp.
Níu tonn af hnetum innkölluð
Maarud í Noregi hefur látið innkalla
níu tonn af salthnetum sem dreift var
til verslana fyrir um mánuði eftir að
rotvarnarefni fannst í hnetunum sem
talið er valda krabbameini, að því er
norska ríkisútvarpið NRK hermir. Hnetur
í pakkningunum sem um ræðir eru ekki
seldar hérlendis og því stafar íslenskum
neytendum engin hætta af þeim.
NOREGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Stefanía, eru þið nokkuð að
pissa í skóinn ykkar?
„Nei, hitaveitan mun skila Ólafsfirð-
ingum hlýju vatni áfram rétt eins og
undanfarin árin.“
Stefanía Traustadóttir er bæjarstjóri
Ólafsfjarðar. Meirihluti bæjarstjórnar hefur
heimilað að hitaveita bæjarins verði seld til
að borga niður skuldir.
SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk-
ur fengi meirihluta borgarfulltrúa
ef kosið yrði til borgarstjórnar nú,
samkvæmt könnun Gallup.
Sjálfstæðisflokkur fengi tæp-
lega 57 prósent, en mældist með
56 prósent í september. Samfylk-
ing fengi 25 prósent fylgi, en fékk
28 prósent í síðustu könnun. Vin-
stri grænir fengju rúmlega tólf
prósent, en mældust síðast með
ellefu prósent. Framsóknarflokk-
ur fengi fjögur prósent, en fékk
síðast þrjú prósent. Frjálslyndi
flokkurinn fengi rúmlega tvö
prósent og breytist fylgi þeirra
ekki.
28 prósent aðspurðra tóku ekki
afstöðu til spurningarinnar. Spurt
var „Ef kosið yrði í dag til borg-
arstjórnar hvaða flokk eða lista
myndir þú kjósa? En hvaða flokk
eða lista er líklegast að þú myndir
kjósa?“ Úrtakið var 2,614 Reyk-
víkingar og var svarhlutfall um
61 prósent. - ss
Skoðanakönnun Gallup:
D-listinn
fengi borgina
2004 2005
JANOKTJÚLAPR
KAUPMÁTTUR LAUNA
Sept 2003 - 107,7
VÍSITALA NEYSLUVERÐS
Sept 2003 - 227,9
LAUNAVÍSITALA
Sept 2003 - 239,9
JAN
LAUN OG KAUPMÁTTUR
APR JÚL
269,8
246,9
111,8
OKT
EFNAHAGSMÁL Laun hafa hækkað
um rúm þrjú prósent að meðaltali
frá áramótum en kaupmátturinn
hefur staðið í stað. Launahækkan-
ir hafa étist upp af verðbólgunni
sem hefur haldið í við launavísi-
töluna frá áramótum.
Ef horft er tvö ár aftur í tím-
ann er hið sama upp á teningnum.
Þrátt fyrir 12 prósenta launa-
hækkanir að meðaltali er kaup-
máttaraukningin á sama tíma
aðeins fjögur prósent. Verðbólga
síðustu tveggja ára er rúm átta
prósent. Á síðustu tólf mánuðum
hafa laun hækkað um sjö prósent
að meðaltali en kaupmáttaraukn-
ingin er einungis tvö prósent.
Verðbólga á tímabilinu var tæp
fimm prósent.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur Alþýðusambands
Íslands, segir það áhyggjuefni að
verðbólgan sé að éta upp kaup-
máttinn. „Við höfum litlar vísbend-
ingar um launaskrið á almennum
vinnumarkaði þannig að okkur
sýnist að þorri launþega hafi verið
að fá þrjú prósent launahækkun á
síðustu tólf mánuðum en á sama
tíma hefur verðlag hækkað um 4,6
prósent,“ segir hann.
„Kaupmáttur þeirra, sem ekki
hafa fengið aðrar launahækk-
anir en hinar almennu samn-
ingsbundnu hækkanir í janúar
síðastliðnum, er að rýrna og það
er verulegt áhyggjuefni,“ segir
Ólafur Darri.
Hann bendir á að ekki sé leng-
ur deilt um að að forsendur kjara-
samninga séu brostnar því verð-
bólga hafi verið langt umfram
það sem gert hafi verið ráð fyrir
í samningum. Hann segir að vitað
hafi verið þegar gengið var til
samninga að hagkerfið væri á leið
inn í þensluskeið.
„Samningar til fjögurra ára
áttu að vera grunnur að því að hægt
væri að stýra hagkerfinu svo upp
mætti byggja kaupmátt og leggja
grunn að framtíðaruppbyggingu
starfa,“ segir Ólafur Darri. „Við
erum hins vegar að upplifa það
núna að ákveðin utanaðkomandi
áföll, eins og olíuverðshækkun,
og hagstjórnarmistök, á borð við
breytingar á íbúðalánamarkaði
og illa tímasettar skattalækkan-
ir, hafa leitt til þess að verðbólga
hefur verið miklum mun meiri en
við áttum von á,“ segir hann.
sda@frettabladid.is
Launahækkanir frá
áramótum gufa upp
Kaupmáttur launa er sá sami og um áramót þótt launavísitalan hafi hækkað
um rúm þrjú prósent á sama tímabili. Verðbólgan hefur étið upp þær launa-
hækkanir sem komið hafa í hlut launamanna frá því um áramót.
ÓLAFUR DARRI
ANDRASON
Hagfræðingur
Alþýðusam-
bands Íslands
������
�����������
������������
�������������������
�������������������
���������������������
����������������
��������������������
� �����������������������������������
�������������������������
���������������
����������
DEILUR Kári Stefánson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar
hefur kært Vilhjálm Rafnsson,
ritstjóra Læknablaðsins til siða-
nefndar lækna fyrir að leyfa
Jóhanni Tómassyni lækni að
birta grein í blaðinu.
Sagt var í kvöldfréttatíma Rík-
isútvarpsins í gærkvöldi að fimm
manna ritnefnd Læknablaðsins
hafi sagði af sér. Þegar haft var
samband við Vilhjálm Rafnsson
ritstjóra í gærkvöldi höfðu enn
engar formlegar afsagnir borist
blaðinu, en nefndin fjallaði um
málið á fundi í fyrrakvöld. Einn
ritnefndarmanna er erlendis og
hefur ekki tekið þátt í þessum
ákvörðunum.
Ástæðan fyrir ókyrrðinni í
ritnefndinni er grein sem Jóhann
Tómasson heilsugæslulæknir
ritaði í níunda tölublað Lækna-
blaðsins þar sem hann fjallar um
afleysingar Kára Stefánssonar á
taugadeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss í sumar. Greinin ber
heitið Nýi sloppur keisarans og
í henni segir Jóhann það vera
ábyrgðarleysi að leyfa Kára að
stunda lækningar. Í grein sinni
segir hann meðal annars: „Ferill
Kára í verklegu og klínísku námi
í læknadeild Háskóla Íslands
og á kandídatsári var með end-
emum. Um það getur heill her
skólafélaga hans vitnað og fjöl-
margir aðrir.“
Ekki náðist í Kára vegna
málsins í gærkvöldi. - saj
Ritnefnd Læknablaðsins sagði af sér í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi:
Kári kærir Vilhjálm ritstjóra
KÁRI STEFÁNSSON Kári kærir ritstjóra
Læknablaðsins til siðanefndar lækna fyrir
að leyfa birtingu á grein um sig.
SLYS Jórunn Hólm var heppin að
sleppa lifandi úr þolraunum sem
hún mátti þola í fyrrakvöld.
Fyrst varð hún fyrir því óláni,
þegar hún ók Skorholtsbrekku í
Leirársveit, að missa stjórn á
bifreið sinni sem hafnaði utan
vegar. Meðan hún beið í bifreið-
inni eftir því að unnustinn kæmi
að sækja hana fauk tengivagn
flutningabíls ofan á hana.
„Ég var að tala við Auði vin-
konu mína í gemsann og var ein-
mitt að segja henni hvað ég ótt-
aðist það að einhver bíll myndi
fjúka á mig og þá fæ ég tengi-
vagninn ofan á bílinn. Ég fékk
algjört áfall en þakið á bílnum
lét undan vagninum og ýtti mér
niður í gólf,“ segir Jórunn.
„Þetta var ekkert auðvelt
fyrir Auði heldur því ég segi
henni að vagninn sé að fjúka á
mig svo heyrir hún bara brot og
braml og þá slitnaði sambandið
og hún fékk algjört sjokk. Það
var ekki fyrr en hálftíma síðar
sem hún náði sambandi aftur og
var náttúrlega dauðfegin að vita
að ég hafði sloppið úr þessu.“
Bifreið Jórunnar lagðist
saman og urðu björgunarmenn
að beita klippum til að ná henni
út. Hún var flutt á sjúkrahús-
ið á Akranesi til rannsóknar en
meiðsl hennar reyndust minni-
háttar. Jórunn var hins vegar
enn að jafna sig eftir áfallið
þegar Fréttablaðið talaði við
hana í gærkvöldi. - jse
Fékk tengivagn flutningabifreiðar á bifreið sína:
Lenti í lífsháska í miðju símtali
GLAÐAR EFTIR ERFIÐA RAUN Jórunn Hólm (t.h.) með Auði Margréti vinkonu sinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N